Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 23
Sjómannablaðið Víkingur – 23 Það var í byrjun árs, að Bernharð Haraldsson komst að þeirri niður- stöðu, að hann væri ekki sigldur maður. Hafði þó verið sumrungur á togurum og á síld á skólaárunum, komið til flestra ríkja á meginlandi Evrópu, búið í tveim þeirra, komið til Kanada í vestri og fjórum sinn- um til Kína í austri. Hann hafði nefnilega alltaf farið í flugvél eins og hans kynslóð og nú var kominn tími til að sjá heiminn af hafi, kynnast aftur öldum úthafsins, anda að sér ilmi annars sjávar en hins íslenska. Lagt af stað Það var þó ekki eingöngu sjávarloftið, sem freistaði skrifara. Hann hafði nefnilega komið auga á siglingu frá Seattle, suður Kyrrahafið, í gegnun Panamaskurðinn og til Flórida. Konan var auðsannfærð um ágæti þessar ferðar og keyptir voru far- seðlar snemma árs og mátti ekki seinna vera, því fljótt var uppselt í ferðina. Laugardaginn 24. júní var flogið til Seattle, sem tók 8 tíma og einn góðan danskan reyfara. Far- arstjórinn, Sigmundur Andrésson og Steinunn, kona hans, tóku á móti okkur á flugvellinum, nærri fimmtíu manna hópi og óku með okkur á hótel, sem var á besta stað í miðbænum. Sunnu dagurinn var frjáls og við skruppum upp í Nálina, 200 m. háan turn, sem reistur var árið 1962 í tilefni af heimssýningu, sem þá var haldin í borginni. Þaðan er gott útsýni, en rigningarskúrir skemmdu svolítið fyrir. Þá fórum við á markaðinn, sem allir verða að heimsækja, eins konar Kolaport af bandarískri stærð. Árla á mánudagsmorgun kom rúta og tók okkur og tösk- urnar og farið var í stutta kynnisferð um borgina. Þá var komið að skipshlið, við skráð inn eftir kúnstarinnar öryggisreglum og gengið um borð í Infinity, 91000 tonna skip, sem varð heimili okkar næstu 17 dagana. Eftir hádegismatinn var farið yfir öryggisreglur og þá var ekkert að vanbúnaði, sjálf siglingin gat hafist. Þá var komið undir ljósaskipti Stórborgin Alls voru rúmlega 2000 farþegar í ferðinni, þar af voru 50 Ís- lendingar, 45 Danir og rúmlega 60 Norðmenn. Skömmu eftir að lagt var frá bryggju var kvöldmatur, sem var kl. 18.00 og 20.30, því matsalurinn rúmaði ekki allan þennan hóp í einu. Íslend- ingarnir voru í síðari hópnum og í þann mund, er eftirréttur var á borð borinn, var skipið komið út úr sundinu, sem skýlir Seattle fyrir úthafinu. Þá fór Infinity að velta, fyrst hægt og ró- lega, en síðan nokkru betur. Á Kyrrahafinu, sem þekur rúmlega þriðjung jarðarkringlunnar, hafði einhvers staðar verið óveður og strekkingur og stór undiralda skall á okkur á bakborðshlið. Klefinn okkar var á sjöunda dekki og því varð veltan ansi drjúg. Okkur varð þó vel svefnsamt, en vöknuðum tvisvar um miðja nótt og þá mátti heyra brothljóð úr næstu klefum; glös og annað þess háttar fór á flug, því einhverjum hafði láðst að gera sjóklárt. Mikið voru sumir morgunverðargestir fölir á HDS 10/20-4 M 30-200 bör 500-1000 ltr/klst HDS 8/17-4 M 30-170 bör 400-800 ltr/klst HDS 5/11 U/UX 110 bör 450 ltr/klst 1x230 volt Gufudælur Aflmiklir vinnuþjarkar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Bernharð Haraldsson Heimshafanna á milli – um Panamaskurðinn – Fyrri hluti – Greinarhöfundur með fjarskyldum ættingjum ef eitthvað er að marka þróunarkenninguna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.