Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 16
16 – Sjómannablaðið Víkingur „Flóanum“, og mikill blástur undan Esju, Akrafjalli og Hafnarfjalli, urðum við ekki varir við neitt sökum þess hversu vestarlega við flugum. Hið sama varð ekki sagt um hressilega ókyrrðina S og SV við Snæfellsjökul meðan við fór- um þar fyrir. Kl. var 09:53 þegar ég gaf flugstjóranum upp stefnuna á upphafs- punkt leitarsvæðisins, 66° 18´N og 24° 58´W., en þá vorum við komnir út af Jökli. Nýja stefnan lá beint yfir Bjarg- tanga, sem sáust nú greinilega fram- undan og voru nú um 38 mínútur þar til beygt yrði í fyrstu leitarlínuna sem okk- ur var úthlutað. Ljóst var að það tæki okkur ekki undir 6 klst. að fljúga allar leitarlínurnar og að á þeim tíma stæði ég varla lengi upp frá kortaborði vélarinnar ef ég ætlaði að sjá til þess að vélin fylgdi einstigi blýantsstrikanna, sem mörkuðu leitarlínurnar í kortið. Því var eins gott að nota þennan hálftíma til að fara í gegnum aðra þætti sem þurftu að vera klárir í leitarflugi eins og talfæri til að tengja niður í lest flugvélarinnar og reyk- bombur til að henda út við gúmmíbát ef slíkt kæmi í ljós. Undirbúningurinn Þegar rekald finnst í leitarflugi, t.d. björgunarbátur, gengur mikið á. Fyrsta og mikilvægasta verkefnið er að missa ekki sjón-ar á hlutnum og er allra aug- um beint að honum. Notuð er ímynduð og afstæð „klukkuskífa“, miðuð við nef flugvélarinnar í kl. 12, og flugmennirnir stanslaust mataðir á viðmiðum á hlutinn með því að segja þeim klukkan hvað hluturinn er frá vélinni séð meðan þeir snúa vélinni að honum. Flugmennirnir lækka hins vegar flughraðann og setja jafnvel flapsa niður í 15º. Einnig er flughæðin minnkuð í 50 til 100 fet og vélin sett í aðflugsstefnu upp í vind að hlutnum. Á meðan á þessu stendur hendist sigl- ingafræðingurinn aftur í vél og opnar hlera í gólfinu, þar sem lestarhola er undir. Talfæri eru sett upp í flýti og síðan klifrað niður í þessa lestarholu með reykbombu með sér. Þegar þangað kemur er lagst á magann og opnaður hleri á botni vélarskrokksins til að henda reykbombunni niður að björgunarbátn- um, þegar flugstjórinn gefur merkið NÚ í heyrnartólin. Þegar hlerinn á botninum opnast nötrar loftið í lestarholunni frá oftast frostköldum 130 hnúta vindi sem geysist aftur með vélaskrokknum og þrýstist að hluta inn. Það gat verið ísköld vist fyrir siglinga- fræðinginn þarna niðri ef aðflugið skipti einhverjum mínútum, enda fór hann í asanum oftast léttklæddur niður úr stofuhita vélarinnar. „Störuvakt“ Þegar búið var að ljúka þessum undir- búningi var tíminn notaður til að fá sér hressingu, kaffibolla og að fara á klósett- ið í tíma. Þetta var á tískutíma reykinga, flestir reyktu og var áhöfnin á TF SIF engin undantekning. Flugstjórinn, flug- vélstjórinn og undirritaður voru liðtækir við sígaretturnar, flugmaðurinn og skip- herrann reyktu pípur svo mökkurinn stóð í kringum þá, en loftskeytamaður- inn þurfti að láta sig hafa það að þola óbeinar reykingar. Því var það oftar en ekki að blá reykjarslæða liðaðist um vél- ina meðan flogið var til og frá vinnu- svæðum, hvort sem það voru leitar-, könnunar- eða eftirlitssvæði. Þegar Bjargtangar komu undir vélina fékk ég staðfestingu á áreiðanleika þeirr- ar stefnu sem ég hafði gefið flugmönn- unum og þeim hraða yfir jörð sem ég hafði reiknað með miðað við flughraða og vind. Framundan var nú upphafs- punktur leitarinnar eftir tæplega 20 mínútna flug og ákvað ég að taka nokkr- ar staðarákvarðanir á leiðinni út til að staðreyna stefnu, hraða og vind, áður en beygt yrði í fyrstu leitarlínu þegar Blakk- ur væri í 42.2 sml. fjarlægð og Ritur í 42.4 sml. fjarlægð. Áður en komið var í upphafspunkt leitarinnar var flugið lækkað niður í 200 fet og flughraðinn minnkaður úr 160 hnútum niður í 130 til 140 hnúta. Með þessu átti sjónsviðið úr vélinni að vera nógu vítt til að hver blettur milli leitarlínanna væri vel sýni- legur. Útkikksmennirnir áttu, tveir í senn, að stara á sjóinn í 15 mín., skima um sjóinn næstu 15 mín. og fá svo 15 mín. algjöra hvíld frá því að horfa út, þar til þeirra „15 mín. störuvakt“ hæfist á ný. Þar sem fjarlægðin til Blakks breyttist hraðast, því hann var svo til beint aftur- undan, hafði ég fjarlægðarhringinn stillt- an á þá fjarlægð þegar við nálguðumst punktinn. Um leið og vélin fór yfir 42. sjóm. fjarlægðina frá Blakk gaf ég flugmönn- unum upp stefnuna eftir fyrstu leitar- línunni miðað við 17° drift til vinstri. Leitin var hafin og hamaðist ég nú við sífelldar staðarákvarðanir til að breyta stefnunni í takt við breytingu í driftinni eftir því sem vindurinn minnkaði nær landinu. Þegar leitarlínan var flogin til enda snéru flugmennirnir vélinni um 194° til að fara inn á næstu leitarlínu út frá landinu, með öndverðri drift sem var komin niður í 7° næst landinu. „Krappari beygju næst“ Þannig átti nú dagurinn að líða fram og aftur, inn og út frá landinu í 7 klst. til- breytingalausu flugi ef ekkert fyndist. Fyrir mig, stöðugar staðarákvarðanir og leiðréttingar á stefnu. Þegar við snerum til að fara inn á næstu línu vorum við komnir út í 50 hnúta vindinn og sá ég þá að við höfðum „fokið“ vel suður fyrir leitarlínuna sem við áttum að fylgja svo ég lét taka stefnuna þvert á línurnar, upp í vind, þar til við hittum á línuna aftur. Varð mér að orði við flugmennina, eftir að við vorum komnir á línuna, að ég vildi fá „krappari beygju næst“. Sama endurtók sig nú í nokkur skipti þegar við snérum við á ytra svæðinu, við þurft- um alltaf að fljúga þvert á, til að hitta á línurnar, en þó styttra í hvert sinn, þar sem flugmennirnir tóku alltaf krappari beygjur. Upphóf ég alltaf sama sönginn um „krappari beygju næst“. Þegar við nú nálguðumst enn einu sinni ytri enda leitarsvæðisins heyri ég flugstjórann segja við félaga sína frammí: „Látum nú kvikindið fá 60° beygju næst svo hann hætti í eitt skipti fyrir öll þessu tuði.“ 60° beygja þýðir að vélinni er hallað um 60° í beygjunni. Þegar við komum svo á staðinn til að snúa inn fann ég að vélinni var rykkt upp á rönd, að mér fannst, og að ég margfaldaðist í þyngd. Allt blóð fór úr hausnum niður í tær, handleggirnir urðu sem blý á kortaborð- inu og ég barðist við að halda áttum í til- verunni. Út um gluggann fyrir ofan kortaborðið sást bara beint upp í blátt himinhvolfið en loftskeytamaðurinn og þeir sem sátu vinstra megin sáu ekki betur en að vinstri vængurinn næmi við grængolandi öldurnar á sjónum. Gárung- arnir sögðu að skipherrann, sem var í góðum holdum, hefði í raun flast út í sínum stól og flætt niður með honum beggja vegna. Menn með falska góma í efri skolti hefðu ekki getað fengið þá til að tolla í langan tíma á eftir. Það ískraði hins vegar í flugmönnunum yfir hrekkn- um. Þeir réttu vélina við eftir 215° beygju og spurðu í intecominn: „Var þetta nóg“? Það sem eftir lifði leitarinnar hélt ég stólpakjafti um „krappari beygju næst“, og sætti mig alveg við svolítinn auka- flugtíma, þvert á línur, eftir hvern snúning. Klukkan var orðin 17:00 þegar við snérum til Reykjavíkur eftir árangurs- lausa leit, úrvinda eins og undnar tuskur. Framundan var svo framhaldsleit daginn eftir og var þá áætlað að fljúga ísröndina undan Vestfjörðum ef ske kynni að Trausti hefði lent inni í ísnum. Það gerð- um við daginn eftir, en án árangurs eftir langa leit og var Trausti talinn af með fjögurra manna áhöfn. Enn einn mann- skaðinn á sjó við Vestfirði.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.