Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur
Saga af sjónum
Nýlega skrifaði danskur vélstjóri endurminningar sínar um veruna
í danska kaupskipaflotanum á árunum upp úr 1970. Hafði hann
siglt um öll heimsins höf á skipum svipaðrar stærðar og algeng
voru í íslenska skipastólnum á þessum árum sem voru um 70 til
100 metra löng. Þar segir hann frá líflegum uppákomum til sjós
sem vöktu upp gömlu kaupskipagenin. Hann sigldi með merki
legum skipstjóra sem átti í erjum við afleysara sinn. Erjurnar voru
nokkuð sérstakar því skipstjórinn málaði einn daginn baðherbergið
í íbúð sinni í bláum lit. Um leið og hann fór í frí og afleysarinn
kom um borð varð það hans fyrsta verk að mála baðherbergið
hvítt. Þegar sá gamli mætti aftur um borð var það hans fyrsta verk
að setja bláu málninguna á að nýju. Svona tókust þeir á í nokkur
ár án þess að komast að samkomulagi um hvaða litur skyldi vera
ráðandi. Áhöfnin átti þó því láni að fagna að þurfa ekki að standa í
málningarvinnunni því skipstjórarnir sáu alfarið sjálfir um þetta
stríð og máluðu sjálfir.
Nýr þægindafáni?
Nú er færeyska alþjóða-
skipaskráningin (FAS)
komin í alvarlegan mót-
vindi eftir að norsk og
sænsk stéttarfélög sjó-
manna sökuðu þá um að
bjóða útgerðum að nota
FAS til að koma norskum
sjómönnum í land fyrir
ódýrara erlent vinnuafl en
skipin haldi áfram sigling-
um í norskri lögsögu.
Alþjóðaflutningaverkasambandið ITF hefur tekið málið upp og
hafa sett af stað ferli til að lýsa FAS sem þægindafána frá og með 1.
desember 2011 að telja. Færeyski viðskiptaráðherrann Johan Dahl
hefur lýst því yfir að fagfélögin séu að misnota ITF til að fara í
stríð við Færeyinga í stað þess að endurskoða reglur um flutninga
milli norskra hafna. Afstaða danskra stéttarfélaga sjómanna til
þessa máls er að þau styðja Norðmenn og Svía. Hefur talsmaður
þeirra Ole Philipsen hjá CO-Söfart bent á að grundvallarmunur
er á NIS og DIS annarsvegar og FAS hinsvegar. Tveir hinna fyrr-
nefndu skráningafána eru stofnaðir til að koma í veg fyrir útflögg-
un þarlendra skipa en tilgangur FAS sé að laða að flota annarra
ríkja. FAS var sett á laggirnar árið 1992 en árið 2008 var reglum
þeirra breytt á þá vegu að skipin gátu frá þeim tíma siglt með al-
þjóðlegar áhafnir. ITF tók þetta mál fyrst upp í júní sl. og lagði til
að aðilar næðu samkomulagi en það hefur ekki enn tekist þegar
þetta er skrifað. Það er því mikil hætta á því að FAS skipaskrán-
ingin lendi á lista þægindafánaríkja ásamt ríkjum eins og Bahama,
Kambódíu og Panama. Íslenskar kaupskipaútgerðir hafa nýtt sér
færeyska alþjóðaskráningu en skip Samskipa og Skipafélagsins
Ness eru skráð þar í landi.
Hækkandi kostnaður
Þrátt fyrir mikinn vöxt að undanförnu hjá kaupskipaútgerðum
bendir farmmarkaðurinn ekki til að hækkandi farmgjöld séu í boði
á næstu tveimur en á sama tíma megi búast við hækkandi rekstrar-
kostnaði sem er lítil gleði fyrir útgerðina. Í nýlegri könnun sem
fyrirtækið Moore Stephens LLP gerði koma fram vísbendingar um
að kostnaðaraukning vegna olíu- og áhafna vegi þar þyngst. Gera
þeir ráð fyrir kostnaðarauka upp á 3,8% og mun smurolíukostn-
aður vera þar dýrasti útgjaldaliðurinn. Þá benda þeir á að með nýj-
um ákvæðum í STCW samþykktinni um menntun og þjálfun, skír-
teini og varðstöðu, svokallað Manila breytingum, muni þjálfun-
ar- og menntunarkostnaður aukast til muna vegna aukinna krafna.
Líka er spurt hvort hagræðing, í kjölfar kreppunnar, hafi verið
nægjanleg og hvort offramboð verði á skipum.
Spár sem ekki gengu eftir
Samkvæmt spám Alþjóðaútgerðarsamtakanna ISF, sem þau gerðu
fyrir fimm árum, var gert ráð fyrir að verulegur skortur yrði á yfir-
mönnum kaupskipaflotans þegar kæmi fram á árið 2010. Nýlega
birti ISF niðurstöður á mati þessarar fimm ára spár og kom þá í
ljós að þörfin hafði verið verulega ofmetin. Fram kom í rannsókn-
inni að samtals sigldu 1,4 milljónir manna og kvenna í heimsskipa-
flotanum og væri skiptingin 626 þúsund yfirmenn og 747 þúsund
undirmenn. Þrátt fyrir heimskreppuna kom fram að þörfin fyrir
sjómenn hafði vaxið umtalsvert en þrátt fyrir það þá væri því sem
næst jöfnuður á framboði og eftirspurn í dag. Þó væri skortur á
yfirmönnum sem næmi 2% en það er fjarri þeim spám sem gerð-
ar voru árið 2005 en um hana var skrifað á sínum tíma í þessum
pistlum. Í ljós koma að skortur á vinnuafli sé aðallega í sérhæfðum
gerðum skipa eins og tankskipum og olíuþjónustuskipum. Þá jókst
einnig framboð á sjómönnum umfram spár í nokkrum löndum og
má rekja það til bættrar menntunar. Niðurlag rannsóknarinnar
benti á að mikilvægt væri að viðhalda jöfnuðinum til að koma í
veg fyrir erfiðleika í rekstri.
Flagga rétt
Skipstjóri og áhöfn olíuskipsins Yong An, sem er í eigu norður-
kóreanskrar útgerðar, eiga yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi í
Malasíu. Ástæðan? Jú, skipið lagðist fyrir akkeri fyrir utan Tanjung
Piai og áhöfninni varð á að draga upp fána Malasíu – á hvolfi. Það
að óvirða fánann fór illa í yfirvöld sem kváðu skipstjórinn ekki
heldur hafa fengið heimild til að varpa akkerum fyrir utan höfnina.
Stækkandi stéttarfélag
Nýlega bættust 800 svissneskir sjómenn í stéttarfélagið Nautilius
International (NI) sem upphaflega var Numast stéttarfélag yfir-
manna í Bretlandi og síðar Nautilius UK. Eftir að hollensku yfir-
mannafélögin sameinuðust Nautilius UK árið 2009 var nafninu
breytt í NI og þar með var lagður grunnur að öflugu stéttarfélagi
yfirmanna, lærlinga og faglærðra landstarfsmanna við útgerðir.
Félagsmenn voru ekki af færri endanum eða 23 þúsund. Með því
að sameina svissneska félagið Unia NI er stigið enn eitt skrefið í að
þróa félagið á heimsvísu. Formaður NI, Mark Dickinson, sagði að
með þessu samkomulagi væri félagið að standa við skuldbindingar
sínar um að útvíkka starfsemina til fleiri landa og fleiri faglærðra
innan kaupskipageirans.
Kyrrsetningar aldrei færri
Á árinu 2010 voru færri skip kyrrsett en nokkru sinni áður af
hafnarríkiseftirlitinu (Paris Memorandum of Understanding) eða
790 skip. Er það fækkun um 25% frá árinu á undan en þá voru
1059 skip kyrrsett. Fram kemur að allt frá 2007 hefur dregið jafnt
og þétt úr kyrrsetningum skipa. Bendir þetta til að ástand skipa
fari batnandi enda er mikið í húfi fyrir útgerðir og áhafnir þeira 24
þúsund skipa sem árlega eru skoðuð.
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Ekki blæs byrlega fyrir færeyska alþjóða-
fánanum en Norðmenn, Svíar og Danir vilja
flokka hann sem slíkan. Mynd af skut Arnar-
fells.)