Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Page 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Page 52
52 – Sjómannablaðið Víkingur Það var heldur þungt hljóðið í Árna forseta þegar hann steig í ræðustól í upphafi þings. Aldrei hefur verið meira óvissa um okkar mál, aldrei, sagði Árni. Stjórnvöld þegja þunnu hljóði og það litla sem frá þeim kemur er neikvætt í okkar garð. Svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Menn vilja breyta lögum um fiskveiðistjórnun, kollvarpa kerfinu, án þess, að því er virðist, að meta hvaða afleiðingar það hefði í för með sér fyrir atvinnusjómenn. Svo er talað um samráð en þessir menn virðast ekki vita hvað það orð þýðir. Ráðuneytið bunar út reglugerðum þar sem ekkert tillit er tekið til raunveruleik- ans. Skjóta fyrst en spyrja síðar, það virð- ist vera taktíkin. Þeir þyrftu hreinlega sjálfir að prófa að fara á sjóinn og kynn- ast af eigin raun hversu langt er frá því að hægt sé að hlýta þeim ákvæðum sem krafist er frá ráðuneytinu. Svo eru þeir hálfnaðir að taka af mönn- um sjómannaafsláttinn. Við gengum á fund fjármálaráðherra og kröfðumst dag- peninga, svona í líkingu við það sem þeir þiggja sjálfir, ásamt öðrum opinber- um starfsmönnum og fleiri starfshópum s.s. flugfólki. Svarið var að það væri ekki í myndinni þar sem velta þurfi hverjum steini til tekjuauka fyrir ríkið, en vel var tekið í þá tillögu að kanna hvað ríkiskassinn yrði af miklum skatt- tekjum ef sjómenn þyrftu ekki einir stétta að greiða skatta af fæðis- og fata- peningum. Því var lofað af hálfu ráðuneytis- manna að sett yrði af stað vinna til fá niðurstöðu í málið. Þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hefur ekkert komið frá ráðu- neytinu og berlega ekki merkjanlegur áhugi til að standa við það sem lofað hafði verið. Ræða Árna bar þess öll merki að hann er orðinn meira en lítið svekktur á stefnu stjórnvalda, sem raunar hefur ver- ið á huldu í nokkurn tíma. Sorglegast væri þó að upplifa ítrekað að í sjálfu sjávarútvegsráðuneytinu væri ekki að finna neinn vilja til samráðs við sjó- menn. Og nú bíða menn á milli vonar og ótta eftir næsta útspili ráðherrans. Verð- ur enn á ný lagt til atlögu við fiskveiði- stjórnunarkerfið með byltingu í huga? Veiðiheimildir í vaxandi mæli fluttar til manna sem margir hverjir starfa á öðrum vettvangi, en telja réttlætismál að fá að stunda fiskveiðar þótt það hafi í för með sér að atvinnusjómenn mæli göturnar og atvinnutæki þeirra liggi verkefnalaus í höfn. Eftir að hafa rætt málin vítt og breytt endaði Árni á þeirri frómu ósk að von- andi yrði frumvarpið, sem allir bíða eftir með öndina í hálsinum, ekki í þeim anda er hann óttaðist. * Var svo kosinn þingforseti. Fyrir valinu varð Guðjón Ármann Einarsson. Þing- ritarar voru kjörnir Reynir Björnsson og Harald Holsvik, gamlir refir í því starfi. * Næstur á dagskránni átti að vera sjálfur ráðherrann, Jón Bjarnason, „eða fulltrúi hans“, eins og sagði í dagskránni. Og það var „fulltrúi hans“ er tók til máls, Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri og talaði á bjartsýnum nótum. Hann vildi þó ekki segja mikið um nýja frumvarpið, nema hvað ráðuneytið hefði lagt mikla vinnu í það, og „ég tel það líklegra til samkomulags en stóra frumvarpið í fyrra,“ sagði Sigurgeir léttur í bragði. * Sævar Gunnarsson var næstur í ræðustól og aftur þyngdist yfir mannskapnum. Sævari varð tíðrætt um hina myrku tíma, í þrjú ár hefði ríkt óvissa um fiskveiði- stjórnunina og nauðsynleg þyrlukaup handa Gæslunni væru ekki afráðin. Sævar sagðist fúslega viðurkenna að þegar sáttanefndin var skipuð hefði hann ekki verið bjartsýnn, svona stór hópur og mislitur myndi aldrei komast að neinni niðurstöðu. En það fór á annan veg, starfshópurinn skilaði af sér fínu „Óvissan aldrei meiri“ – Frá 45. sambandsþingi Farmanna- og fiskimannasambands Íslands er fram fór dagana 24. og 25. nóvember 2011 á Grandhótel í Reykjavík Árni forseti setur þingið.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.