Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 56

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 56
56 – Sjómannablaðið Víkingur Harald S. Holsvik, Reynir Björnsson og Guðjón Ármann Einarsson. Þessir þrír sáu um að halda til haga því sem fram fór á þinginu og að halda öllu, og öllum, að settum reglum. Eitthvað hvílir þungt á þeim Kristni Gestssyni, Birgi Sigurjónssyni og Guðjóni Ármanni sem stjórnaði þinginu með léttum húmor. Svipmyndir frá 45. sambandsþingi Farmanna- og fiskimannasambands Íslands Guðlaugur Gíslason og Guðjón Arnar Kristjánsson. Guðlaugur vakti máls á því að honum þætti Víkingurinn ekki nógu beittur í hagsmunabaráttu sjómanna. Það eru ekki nema leiðarar Árna forseta sem eitthvað snúast um kjarabarátt- una, annað er það varla í blaðinu, benti hann á og óskaði breytinga – að vísu aðeins í samtali við Víkinginn sem liggur aldrei á því þegar honum er hælt og getur því illa samvisku sinnar vegna þagað í hel gagnrýni. Talið frá vinstri; Sigurður Jónsson, Ólafur P. Steingrímsson og Jóhann Ingi Grétarsson. Hækjurnar tilheyra Jóhanni Inga en eftir að hafa rætt öryggismál við Hilmar skólameistara viðurkenndi hann að hækjurnar væru áminning til eldri manna og kappsfullra um að þeir ættu ekki að spila knattspyrnu við sér mikið yngri menn. Annars væri fótbolti hin besta heilsurækt. Guðjón Ármann Einarsson, skemmtilega ósvífnasti fundarstjóri Íslandssögunnar, hafði góð tök á þing- mönnum. Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, ávarpaði þingið og var bjartsýnn á framtíðina. Bergur Páll Kristinsson, formaður Verðanda. Við hlið hans hefði Halldór Guðbjörnsson átt að sitja en hann stríðir nú við erfið veikindi. Við sendum Halldóri baráttukveðjur, hugur okkar er hjá þér, Halldór.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.