Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 4
Mestu hækkanir milli mánaða verða á fötum og skóm, 5,5 prósent. JEEP.IS • ISBAND.IS PLUG-IN HYBRID FÆRÐIN ER ALLTAF GÓÐ EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX! Leyfðu Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid að spreyta sig á krefjandi slóðum. Leiðin verður rafmögnuð. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16 kristinnhaukur@frettabladid.is SVEITARFÉLÖG Heiða Björg Hilmis- dóttir, borgarfulltrúi og varafor- maður Samfylkingarinnar, var kjör- in formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga í kosningu sem fór fram 15. til 29. ágúst. Hún hlaut rúmlega 51 prósent atkvæða en Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hlaut tæplega 49 prósent. „Ég þekki vel aðstæður fólks á landsbyggðinni ekki síður en á höfuðborgarsvæðinu, enda fædd og uppalin við Eyjafjörð og á þar djúpar rætur. Ég mun leggja mig fram um að vera formaður allra sveitarfélaga landsins af því ég veit að það skiptir máli,“ segir Heiða sem var fyrir kosninguna sitjandi vara- formaður sambandsins. Samkvæmt Heiðu eru ýmsar áskoranir sem sveitarfélög lands- ins þurfa að leysa úr. Meðal annars óvissa í málefnum fatlaðs fólks, skortur á húsnæði, loftslagsmálin og vitaskuld fjármálin. „Það er mikil- vægt að tryggja sjálfbæran rekstur sveitarfélaga svo þau geti sinnt þeirri mikilvægu þjónustu og inn- viðauppbyggingu sem nauðsynleg er um allt land,“ segir hún. Heiða segist vilja efla sambandið sem talsmann sveitarfélaga og samstarfsaðila ríkis og atvinnu- lífs í því verkefni að gera Ísland að eftirsóttum stað til að búa, starfa og fjárfesta á. Hún muni ef la sambandið sem sameiginlegan samráðs- og sam- talsvettvang sveitarstjórnarfólks og stjórnenda sveitarfélaga og auka samvinnu við landshlutasamtök. Aðspurð um fyrirsjáanlega erf- iðan vetur í kjaraviðræðum segir Heiða að öll þjónusta sveitarfélaga byggi á því að þau geti laðað til sín gott starfsfólk. Það sé sameiginlegt hagsmunamál verkalýðshreyfingar- innar, sveitarstjórna og samfélags- ins alls að þetta verkefni takist vel. Samningsmarkmið sveitarfélag- anna í kjaraviðræðunum verði til í samstarfi sveitarfélaganna og þar verði svigrúmið metið. Heiða segist þó ætla að leggja áherslu á að sameiginlegir hags- munir samfélagsins verði öllum ljósir í kjaraviðræðunum. n Heiða kjörin formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga olafur@frettabladid.is NEYTENDUR Íslandsbanki býst við að tólf mánaða verðbólga hækki lítið eitt í ágúst og fari í 10 prósent en Landsbanki býst við óbreyttri verðbólgu frá því í júlí, 9,9 prósent. Veritabus býst við að raunveruleg tólf mánaða verðbólga lækki um 0,1 prósent og fari í 9,8 prósent en telur að Hagstofan muni mæla verðbólg- una 10 prósent og að munurinn stafi af mismunandi tímasetningu á mælingum. Veritabus telur að í mælingu Hag- stofunnar muni ferðir og flutningar, sem verið hafa mikill drifkraftur verðhækkana síðustu tólf mánuði, lækka um 2,5 prósent milli mánaða. Húsnæði, hiti og rafmagn hækki um 1,1 prósent milli mánaða. Mestu hækkanir milli mánaða verða á fötum og skóm, 5,5 prósent, og húsgögnum og heimilisbúnaði, 2 prósent. Þessar hækkanir stafa að mestu af útsölulokum. Matvara, húsnæði og eldsneyti hafa hækkað meira en flestir aðrir liðir síðastliðna tólf mánuði. Í ágúst lækkaði verð á eldsneyti töluvert og fer að mati Veritabus sennilega lækkandi. Matvara virðist einn- ig hafa hækkað minna en undan- farna mánuði. Margt bendir til þess að húsnæðismarkaður muni róast. Hagstofan birtir vísitölu neyslu- verðs fyrir ágúst í dag. n Verðbólgan er mögulega að ná hámarki sínu Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og varafor- maður Sam- fylkingarinnar Húsnæði sem Kópavogsbær leigir af einkaaðila og er nýtt sem dagsvistunarúrræði fyrir fötluð ungmenni er skráð fok- helt auk þess sem þar fannst mygla. ragnarjon@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Nýjustu mælingar sýna að mygla fannst í húsnæði sem Kópavogsbær leigir af fyrirtækinu Árkór ehf. Núverandi hlutverk hús- næðisins er hýsing dagvistunar úrræðis fyrir fötluð ungmenni á menntaskólastigi. Mælingarnar sem um ræðir voru framkvæmdar af Sýni ehf. þann 19. ágúst síðastliðinn og var loftsýna- skálum komið fyrir á fimm stöðum víðs vegar um húsið. Ekki fannst mygla í sjálfum stof- unum sem notaðar eru en þó fund- ust ummerki myglu á öðru svæði á sömu hæð. Er það svæði skilgreint sem 1. hæð stigi norðvestur en aðeins einar dyr liggja á milli þess svæðis þar sem skólastofurnar standa og svæðisins þar sem myglan mældist. Kolbeinn Reginsson, líffræðingur og bæjarfulltrúi Vina Kópavogs- bæjar, segir að með þessu sé verið að taka óþarfa áhættu, enda geti sveppur borist á milli staða í húsinu með margvíslegum hætti. „Ef gró komast með einhverju móti inn í húsnæðið þá lifa þau jafnvel árum saman og um leið og þau komast í vatn þá spíra þau,“ segir Kolbeinn en hann hefur kallað eftir útskýringum á því hvers vegna húsnæðið sé í notkun þegar mælst hafi mygla í einhverju magni á sömu hæð og er nú í notkun. „Bæjaryfir- völd í Kópavogsbæ virðast telja að hér sé um ásættanlega áhættu að ræða,“ segir Kolbeinn. „Svona sveppagróður getur ferðast tugi kílómetra í lofti, þetta er svo harðgert,“ segir Kolbeinn og bætir við: „Segjum að ef einhver labbar þarna inn fyrir slysni, þá geta gróin sogast yfir í önnur svæði í húsinu. Þetta getur verið undir skó- sólanum þínum,“ segir hann. Kolbeinn telur að frekari mælinga sé þörf og tekur fram að ástæða þess að ekki mælist gró í þeim stofum sem notaðar séu í úrræðinu sé að það tiltekna svæði hússins hafi nýlega verið tekið í gegn. Ekki hafi þó verið framkvæmdar viðlíka end- urbætur á öðrum hæðum hússins. Samkvæmt mælingum frá 2019, sem unnar voru af Verkís, fannst talsvert af myglu á þeim hæðum húsnæðis- ins. Því sé líklegt að myglu sé enn að finna þar í miklum mæli. Í svörum Kópavogsbæjar við fyrirspurn Fréttablaðsins kemur fram að núverandi ástandsskráning Fannborgar 2 sé að húsið sé skráð fokhelt. Kaupandi hafi beðið um að húsið yrði skráð sem slíkt og Kópa- vogsbær hafi ekki gert athugasemd við beiðni eigenda um þá skráningu vegna þess að efri tvær hæðirnar, af fjórum, væru ekki hæfar til notk- unar. Kópavogsbær tekur fram að Heil- brigðiseftirlitið hafi verið kallað til áður en starfsleyfi var veitt fyrir úrræðinu. Heilbrigðiseftirlitið hafi framkvæmt sjónmat á húsnæðinu ásamt rakamælingu. Farið hafi verið að tilmælum Heilbrigðiseftirlits og húsnæðið þrifið, málað og loftræsti- kerfi hússins yfirfarið. Þessi úrræði hafi þó einungis farið fram á fyrstu hæð hússins. Í svörum Kópavogsbæjar kemur fram að enginn umgangur sé í hús- inu og að efri hæðir húsnæðisins séu ekki í notkun. Með þessum aðgerðum og viðurlögum telur Kópavogsbær jarðhæð Fannborgar 2 í góðu ástandi og að hægt sé að nýta hæðina í áðurnefnd úrræði. n Hús sem í finnst mygla er nýtt af Kópavogsbæ fyrir fötluð ungmenni Fannborg 2 á sér þó nokkra sögu en húsið hýsti áður bæjarskrif- stofur Kópa- vogs. Kópavogs- bær keypti það af Árkór ehf. árið 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Kolbeinn Reginsson, líf- fræðingur og bæjarfulltrúi Vina Kópavogs 4 Fréttir 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.