Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 30
Viðskiptavinirnir eru númer eitt, tvö og þrjú. Við hugsum ekki bara um þá sem eru að spá í að kaupa heldur líka um þá sem eiga fasteignir eða eru að velta því fyrir sér láta gera eitthvað fyrir fast- eignina. Spánarheimili er fasteigna- og þjónustumiðlun sem býður upp á alhliða þjónustu við íslenska fasteignakaup- endur og fasteignaeigendur á Spáni en fyrirtækið er með skrifstofu bæði á Spáni og í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Öll þjónustan fer fram á íslensku en hún er allt frá einkaviðtölum á Íslandi til skoðunarferða fyrir hugsanleg kaup, þjón- ustu við kaupferlið ásamt fasteigna- og leiguumsjón. Starfsfólk Spánarheimila er stað- sett bæði á Íslandi og á Spáni en fyrirtækið hefur áralanga reynslu af sölu fasteigna á Spáni sem og fjármögnun fasteignakaupa og aðstoðar fólk að finna drauma- eignina á Spáni, aðallega á Costa Blanca og Costa Calida svæðinu. Hjá Spánarheimilum starfar öflugur og reynslumikill hópur Íslendinga ásamt íslenskum og spænskum lögfræðingi sem starfar bæði á skrifstofum fyrirtækisins á Íslandi og á Spáni. „Fyrirtækið tók til starfa árið 2008 og við höfum vaxið ansi hratt,“ segir Bjarni Sigurðsson, framkvæmdastjóri og eigandi Spánarheimila. „Við höfum farið inn á þá braut að hlusta kannski svolítið eftir þörfum og óskum viðskiptavinarins sem hefur leitt til þess að við erum ekki bara fast- eignamiðlun heldur alhliða þjón- ustumiðlun líka til allra Íslendinga sem eiga eða eru að kaupa fasteign á Spáni,“ bætir Bjarni við. Bjarni segir að fyrirtækið hafi í mörg ár verið rekið með skrif- stofum bæði hér heima og á Spáni og Spánarheimili sé eina fasteigna- miðlunin sem er með skrifstofur í báðum löndum. „Viðskiptavinirnir eru númer eitt, tvö og þrjú. Við hugsum ekki bara um þá sem eru að spá í að kaupa heldur líka um þá sem eiga fasteignir eða eru að velta því fyrir sér að láta gera eitthvað fyrir fast- eignina. Við stöndum nær kúnn- unum okkar með því að þjónusta þá bæði á Íslandi og á Spáni. Það er íslenskumælandi starfsmaður Kaupferlið hefst á Íslandi Bjarni Sigurðsson, efst til hægri í aftari röð, eigandi Spánarheimila ásamt hluta starfsfólks fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Hjá Spánarheim- ilum er hægt að fjárfesta í nýjum og notum fast- eignum. 6 kynningarblað 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.