Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 46
„Þetta var auðvitað ákveðið
áfall þegar tilkynnt var að
hann væri að hætta,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson
sem sendi Sigga Hlö kveðju í
bundnu máli á meðan hann
sendi útvarpsþáttinn Veistu
hver ég var? út í síðasta sinn á
laugardaginn eftir fjórtán ára
úthald og stöðugar vinsældir.
toti@frettabladid.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins og fyrrver-
andi forsætisráðherra, sendi Sigga
Hlö hjartnæma og innblásna kveðju
á laugardaginn á meðan Siggi var í
beinni útsendingu á Bylgjunni í síð-
asta sinn með þáttinn sinn sívinsæla
Veistu hver ég var?
„Þetta var auðvitað ákveðið áfall
þegar tilkynnt var að hann væri að
hætta. Maður er svona rétt að kom-
ast af afneitunarstiginu,“ segir Sig-
mundur Davíð sem sendi Sigga þrjár
ferskeytlur með kveðju og hvatningu
til þess að taka þráðinn upp að nýju
síðar.
„Ég ætla að fá að lesa hérna eitt ljóð
sem mikill unnandi þáttarins var að
senda mér,“ sagði Siggi í beinni og lét
þess getið að umræddur hlustandi
væri stjórnmálamaður og héti Sig-
mundur Davíð. „Hann er nú hagyrt-
ur, blessaður, þó að við séum nú ekki
í sama flokki,“ hélt útvarpsmaðurinn
áfram áður en hann las upp þriðju og
síðustu ferskeytluna.
Að lestri loknum sagði Siggi að
þetta væri „rosalegt!“ og bað fólk um
að „klappa fyrir kallinum“.
Óskalög stjórnmálamanna
„Ég henti á hann þremur ferskeytl-
um. Ekkert sérstaklega góðum,“
segir Sigmundur og áréttar að
kveðskapurinn dragi dám af hugar-
ástandi hans þá stundina. „Þegar
maður var að átta sig á að þetta væri
síðasti þátturinn. Þannig að gæðin
mættu nú vera betri en þetta voru
svona viðbrögð til að takast á við
þetta ástand.“
Auðheyrt var á Sigga að hann
var vel meðvitaður um aðdáun Sig-
mundar Davíðs sem staðfestir að
þetta hafi ekki verið í fyrsta skipti
sem hann setur sig í samband við
Sigga á meðan hann er í loftinu.
„Já, já. Maður hefur stöku sinnum
fengið að lauma inn óskalagi hjá
honum þegar sérstakt tilefni er
til,“ segir Sigmundur. Þá hefur Siggi
sjálfur greint frá því að honum finn-
ist það einna minnisstæðast í fjór-
tán ára sögu þáttarins þegar hann
hringdi í Sigmund og Bjarna Bene-
diktsson þar sem þeir voru í sumar-
bústað að mynda ríkisstjórn 2013.
Þá þáði Bjarni boð um óskalag
með því að biðja um Wild Boys
með Duran Duran sem varð til þess
að ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarf lokks var löngum kennd
við lagið og allur vafi tekinn af um
pólitísk áhrif Veistu hver ég var?
Fullkominn tónlistarsmekkur
„Þetta er, var, skemmtilegur þáttur,“
heldur Sigmundur Davíð áfram.
„Tilbreyting frá amstri dagsins á
laugardögum. Skemmtilegt kæru-
leysi og auðvitað góð tónlist.
Hann Sigurður Helgi Hlöðversson
er nú líklega sá maður sem kemst
næst því að vera með fullkominn
tónlistarsmekk. Ég náttúrlega er sá
eini sem hefur fullkominn tónlistar-
smekk,“ segir Sigmundur Davíð af
nokkurri sannfæringu. „Ég meina,
ef það væri ekki þannig, svona frá
mínum bæjardyrum séð, þá myndi
ég hafa annan smekk. En Siggi Hlö
er sá sem kemst næst því, svona af
þeim sem maður þekkir til.“
Sigmundur Davíð tekur undir
að níundi áratugurinn sé ákveðin
gullöld í tónlist og langvarandi vin-
sældir tónlistarinnar sem kennd
er við „með sítt að aftan“ séu óum-
deildar þótt þau sem aðhyllist þessa
skoðun fái oft bágt fyrir.
„Algjörlega. Þetta er besti áratug-
urinn í tónlist. En eins og þú segir,
við sem kunnum að meta þetta
höfum mátt þola fordóma alla tíð
frá þeim sem telja þetta á einhvern
hátt ekki nógu …“ heldur Sigmundur
áfram og hugsar sig síðan um. „Ég
veit ekki hvað menn hafa fyrir sér í
því, en það hefur verið svona ákveð-
ið snobb og litið niður á þennan ára-
tug í tónlist. Bæði á sínum tíma og
svo auðvitað seinna líka og maður
hefur bara gengið í gegnum þetta í
þeirri fullvissu að þetta væri best.“
Skotheld rök
Rökstuðninginn sækir Sigmundur
Davíð síðan úr nokkuð óvæntri átt
en staðfestir um leið að honum er
full alvara og veit hvað hann er að
tala um. „Og hafi maður einhvern
tímann efast þá er nóg bara að
Sigmundur Davíð
vonar að Siggi Hlö
snúi aftur
Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugs-
son, formaður
Miðflokksins og
fyrrverandi for-
sætisráðherra,
sendi Sigga
Hlö hjartnæma
og innblásna
kveðju á laugar-
daginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Síðasti þáttur Veistu hver ég var? á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
hlusta á Modern Talking eða ABBA.
Ég tala nú ekki um það. Kemur
manni alltaf í gott skap.
Það sem ég var helst ósáttur við
hjá Sigga Hlö var þegar hann ákvað
að útvíkka þáttinn eitthvað og fara
að hleypa inn einhverju frá áratug-
unum fyrir og eftir. Tónlist sem átti
ekkert heima í þættinum. Hollensk
danstónlist frá 10. áratugnum og
eitthvert svona rugl. Það á aldrei
heima þarna.“
Vandséð er hvernig skarð Sigga
Hlö verður fyllt með góðu móti en
Sigmundur Davíð telur víst að fólk
reyni að bjarga sér með lagalistum
á Spotify. „Og hlusta á upptökur af
gömlum þáttum inni á milli en það
er ekki alveg það sama þegar maður
fær ekki að heyra í fólki í heita pott-
inum í beinni útsendingu,“ segir Sig-
mundur sem þó lifir í voninni sem
hann lýsir í kveðju sinni til Sigga.
„Ég er nú enn að vona að hann
komi aftur. Ég veit ekki hvort ég á að
hefja svona undirskriftasöfnun eins
og er í tísku núna en ég bind allaveg-
ana vonir við að einn daginn þá verði
hann kallaður til baka til að sinna
skyldum sínum fyrir þjóðina.“ n
Kveðja Sigmundar til
Sigga Hlö
Þjóð vor þráði laugardag,
þá klukkan fjögur léttist lund.
Að velja lög var Sigga fag.
Við áttum saman gleðistund.
En eftir árin tvisvar sjö;
óvænt barst sú harmafrétt,
að hætta myndi Siggi Hlö.
Hvernig má það vera rétt?
Við elskum þig öll herra Hlö
og bíðum bara eftir því,
að Siggi segi „taka tvö“,
svo gleðjist okkar þjóð á ný.
Þú finnur allar nýjustu fréttir dagsins á
frettabladid.is. Innlendar og erlendar fréttir, léttar
fréttir, íþróttafréttir, viðskiptafréttir, skoðanapistla,
spottið og auðvitað blað dagsins ásamt eldri blöðum.
Hvað er að frétta?
frettabladid.is
22 Lífið 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ