Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is Skarphéðinn Smith er framkvæmdastjóri S. Guðjónsson en verslun fyrirtækisins er staðsett á Smiðjuvegi í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Góð lýsing og ljósabúnaður er mikilvægur þáttur í tilverunni S. Guðjónsson hefur frá árinu 1967 boðið landsmönnum upp á fjölbreytt vöruúrval og þjónustu þegar kemur að lýsingu og ljósabúnaði. Lýsing getur haft bæði áhrif á heilsu okkar og skapað réttu heildarmyndina fyrir heimili og vinnustaði. 2 Lýsing Bláber eru holl og góð búbót. thordisg@frettabladid.is Ber eru rík af C-vítamíni, stein- efnum og andoxunarefnum og jafnvel talin hafa lækningamátt. Tilvalið er að drífa sig í berjamó og gera sultur, saft og hlaup. Krækiber eru algeng í þurrlendi, brekkum og móum. Berin verða svört að lit fullþroska og úr þeim er gerð saft eða hlaup. Aðalbláber eru algengust á Norðurlandi og Vestfjörðum. Þau vaxa í skógarbotnum, móum og lautum og verða fullþroska eftir miðjan ágúst, blásvört, rauð að innan og bragðmikil. Úr þeim eru gerðar sultur, hlaup og saft. Bláber eru mjög góð í bökur, en líka ein og sér með rjóma. Fagurblá bláber finnast víða um land, sérstaklega í vot- og mólendi. Úr þeim má gera sultu, hlaup, saft og nota í bakstur, súpur og grauta. Reyniber eru líka góð Hrútaber finnast í skógarbotnum og gróðursælum brekkum víða um land. Þau eru fallega rauð, safa- mikil og súrsæt, og einstaklega góð í hlaup með villibráð. Rifsber og sólber eru góð í hlaup, saft og sólber í sultu. Best er að tína berin áður en þau verða fullþroska, því grænjaxlar gefa hleypiefni og gott er að hafa stilka og blöð með. Reyniber eru tínd að hausti þegar þau eru orðin fallega rauð og ekki er verra að næturfrost hafi verið áður. Reyniberjahlaup er mjög gott en leggja þarf berin í bleyti í þrjá sólarhringa og skipta um vatn daglega til að ná burtu remmubragði. n HEIMILD: LEIDBEININGASTOD.IS Nú er berjatíð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.