Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 19
Einstakt hús við
Háteigsveg sem
byggt er í dönskum
herragarðsstíl er til sölu
hjá fasteignasölunni
Höfða. Húsið er steinhús,
byggt árið 1950. Tvö-
faldur rúmgóður bílskúr
er við húsið en hann var
byggður árið 1964.
Fasteignasalan Höfði var
stofnuð í júní árið 1997 af
þeim Ásmundi Skeggjasyni,
löggiltum fasteignasala, og
Runólfi Gunnlaugssyni, við-
skiptafræðingi og löggiltum
fasteignasala. Stofan fagnar
því 25 ára starfsafmæli á
þessu ári.
Sex fasteignasalar starfa hjá
Höfða. Skrifstofan er til húsa í Bláu
húsunum við Faxafen í Reykja-
vík. Margar eignir hafa skipt um
eigendur á þeim 25 árum sem
fasteignasalan Höfði hefur starfað.
Mikil reynsla skapar traust milli
seljenda og kaupanda. Höfði er
með aðgengilega heimasíðu þar
sem hægt er að skoða þær eignir
sem eru til sölu á hverjum tíma.
Hús í herragarðsstíl
Meðal þeirra eigna sem fast-
eignasalan Höfði býður upp á er
Háteigsvegur 44. Einstakt hús á
mjög eftirsóttum stað sem byggt
er í dönskum herragarðsstíl. Húsið
er steinhús og var byggt árið 1950
en tvöfaldur rúmgóður bílskúr við
húsið var byggður árið 1964. Þetta
er stórt hús, alls 419 fermetrar.
Húsið stendur á móti Háteigskirkju
á fallegum stað, næg bílastæði eru
fyrir utan og gott aðgengi er að
eigninni.
Húsið þarfnast viðhalds og
endurbóta en það hefur verið í
skamm- og langtímaleigu að hluta
undanfarin ár. Eignin býður upp
á marga nýtingarmöguleika. Tvær
íbúðir eru á jarðhæð með sérinn-
gangi.
Á aðalhæð er fimm herbergja
íbúð sem skiptist í tvær stofur, þrjú
svefnherbergi, eldhús og bað-
herbergi. Á efri hæðinni eru sex
herbergi ásamt stúdíóíbúð með sér
eldhúsi og baði.
Dökkar innréttingar og stigi á
efri hæð setja virðulegan svip á
húsið. Garðurinn er stór og býður
upp á mikla möguleika. Stórar
flísalagðar svalir á húsinu bjóða
einnig upp á ýmsa möguleika.
Ásett verð er 220 milljónir. n
Allar nánari upplýsingar um eign-
ina veitir Ásmundur Skeggjason,
löggiltur fasteignasali, as@hofdi.is
og sími er 895 3000.
Fasteignasalan Höfði fagnar 25 ára afmæli
Húsið stendur á
góðum stað við
Háteigsveg. Góð
aðkoma er að
húsinu og næg
bílastæði.
Húsið hefur yfir sér virðulegan blæ. Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi. Stórar svalir eru á húsinu sem nýtast vel sem verönd.
kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 FASTEIGNIR