Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 35
Hleðslustöðvarnar
geta lesið hvað
heimilið hefur mikið raf-
magn afgangs og er hægt
að stilla þær miðað við
hvað þær mega taka
mikið rafmagn.
Lukson er lítið fjölskyldu-
fyrirtæki sem hjónin Karl
Matthías Helgason og Íris
Björg Eggertsdóttir reka.
Lukson sérhæfir sig í net-
sölu á vönduðum rafbúnaði
beint frá framleiðanda.
Hægt er að versla á vefversl-
uninni lukson.is og fá sent
samdægurs eða daginn eftir.
Einnig er hægt að nálgast
vörurnar í Síðumúla 22 eftir
samkomulagi.
Lukson er hugsað sem vefverslun
fyrir alla. „Þetta er venjulegur
raflagnabúnaður sem passar inn
á hvert heimili og fyrirtæki; rofar,
tenglar, dósir og annað sem þarf til
þess að leggja lagnirnar inn í vegg,“
segir annar eigandi fyrirtækisins,
Karl Matthías Helgason. Hjá
Lukson fást einnig til að mynda
hleðslustöðvar fyrir rafbíla og
LED-ljós.
„Ég er rafiðnrekstrarfræðingur
og bjuggum við fjölskyldan í Nor-
egi þar sem ég kynntist Etman sem
er stærsta vörumerkið okkar,“ segir
Karl. „Við fengum samning við þá
um að fá að selja þetta á Íslandi en
vörur frá þeim hafa ekki áður verið
seldar hér á landi. Við erum með
samning beint frá verksmiðjum
þannig að það er enginn milliliður
í Evrópu. Þannig gátum við farið
að bjóða vörur á hagkvæmu verði
sem ég held að ætti að koma til
góðs fyrir alla.
Vinsæl lagnaefni
Þetta er venjulegur raflagna-
búnaður sem passar inn á hvert
heimili og fyrirtæki; rofar, tenglar,
dósir og annað sem þarf til þess
að leggja lagnirnar inn í veggi.“ Þá
fást hjá fyrirtækinu meðal annars
hleðslustöðvar fyrir rafbíla og
LED-ljós. Lagnaefni og rör og dósir.
Hvað varðar lagnaefni segir Karl að
um sé að ræða rofa og tengla sem
sænskir og norskir vöruhönnuðir
hafa hannað.
„Þetta er innlagnaefni og passar
inn á hvert heimili, skrifstofur
og allar byggingar. Einnig fæst
efnið rakaþétt. Standard efnið er
hvítt en einnig höfum við verið að
bjóða upp á svart sem er sérpönt-
unarvara. Þetta efni upplitast ekki
þannig að hvíti liturinn heldur sér
og það fylgja með rammar þannig
að þegar keyptur er tengill þá fylgir
alltaf rammi með honum en í f lest
öllum verslunum þarf að kaupa
rammana sér.
Þegar keyptur er rofi, tengill
eða dimmer, fylgir með einfaldur
rammi og vippur, svo allt er inni-
falið og enginn falinn kostnaður
eftir á.“
Nýtt á markaðnum
Þegar kemur að rörum og dósum
sem fást hjá Lukson segir Karl að
fyrirtækið sé sterkt í töflustútum.
„Þetta eru töflustútar sem menn
hafa verið mjög sáttir með. Þeir
eru mun sterkari og aðeins lengri
heldur en þessir sem hafa verið
á markaðnum. Við erum með á
lager 16 og 20 mm barka. Einn-
ig höfum við samtengihólka og
töflustúta fyrir rör frá 16 og upp í
50 mm. Erum með margar gerðir
af rofadósum á lager. Dósirnar eru
fjölbreyttar og spara vinnu; ein dós
er með sex stúta hjá okkur og sá
stútur tekur bæði 16 mm og 20 mm
rör sem á að spara tíma; að þurfa
ekki að vera að skipta um stúta
þegar verið er að leggja í veggi.
Sömuleiðis eru allar dósir með
stillihring sem hægt er að skrúfa út
sem passar svo beint að endanlegri
veggklæðningu, allt þetta hentar
til bygginga á hagkvæmu hús-
næði sem er svo mikilvægt þegar
verið er að spara tíma og pening,“
segir Karl en ekki þarf að smíða og
byggja undir þær og er auðvelt að
Lukson með rafbúnað fyrir alla
Karl Matthías Helgason og Íris Björg Eggertsdóttir eru eigendur Lukson sem selur alhliða raflagnaefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Mikið úrval af alls kyns raflagnaefni meðal annars kapalspenna.Rofadós fyrir rafmagn.
Rofadós en Lukson er með samning við verksmiðjuna.
Snjallar hleðslustöðvar.
Slökkvarar af
ýmsum gerðum
eru fáanlegir hjá
Lukson.
setja þær saman og raða eins og
þarf.
Hagkvæmt verð
„Þá erum við með fjölnotadós sem
hægt er að setja eftir á og hún á
að vera á verði sem enginn annar
getur keppt við.“
Hvað festingar varðar segir Karl
að um sé að ræða kapalspennu til
þess að festa rör og kapla og fást
margar tegundir hjá Lukson. „Við
erum með festingar og kapal-
spennur frá 5 mm og upp í 20 mm.
Kapalspennurnar koma 100
stykki í pakka en hægt er að fá
kapalspennu fyrir rör sem passar
fyrir 16 til 20 mm rör, þar sem við
höfum 750 saman í fötu og er hægt
að fá svo áfyllingu í fötuna, verður
ekki hagkvæmara.“ Hvað töflu-
búnað og rafstrengi varðar segir
Karl að um sé að ræða samvinnu
við Rafport.
Aðgangsstýrðar hleðslustöðvar
Karl segir að hleðslustöðvarnar
fyrir rafbíla sem fást hjá Lukson
séu mjög snjallvæddar. „Þær geta
lesið hvað heimilið hefur mikið
rafmagn afgangs og er hægt að
stilla þær miðað við hvað þær
mega taka mikið rafmagn.
Hleðslustöðvarnar geta byrjað
að hlaða þegar viðkomandi óskar
eftir því. Þær eru 22 kílóvött eins
og hámark er leyft á íslensk heim-
ili. Þær eru aðgangsstýrðar þannig
að það getur ekki hver sem er sett
þær í gang; það þarf annaðhvort
að hafa kort sem fylgir stöðvunum
eða að hægt er að tengja þær appi
og stýra þeim þaðan. Þær eru
álagsstýrðar þannig að þær taka
ekki frá og ofgera rafkerfi heim-
ilisins.“
Hleðslustöðvarnar hafa einnig
verið teknar bæði í sumarhús og
veitingastaði. „Það er mjög auðvelt
fyrir veitingastaði að selja aðgang
að þeim. Úr appi er hægt að lesa
hversu margar kílóvattsstundir
hafa verið notaðar þannig að þú
þarft ekkert að kaupa neinn auka-
búnað til þess að gera það. Þeir sem
eru að leigja sumarhús hafa verið
að nota þessar stöðvar því þær eru
aðgangsstýrðar og það er sá sem
er með aðgengi að sumarhúsinu
sem hefur þá aðgengi að stöðinni.
Þannig að það eru margir kostir
við að nýta álags- og aðgangs-
stýrðar hleðslustöðvar.
LED-ljós fást í Lukson
Þessi innfelldu ljós eru mjög nett og
orkusparandi og þægileg í uppsetn-
ingu. Öll okkar ljós eru dimmanleg
og eru á mjög góðu verði. Við erum
með til dæmis með hringlaga
kubba sem lýsa beint niður auk
þess sem við erum stillanleg og
dimmanleg ljós sem gefa sam-
bærilega birtu og eru í sama hvíta
litnum. Við höfum bara verið með
þau í hvítu en við höfum einnig sér-
pantað í öðrum litum.
Þá erum við með LED-borða sem
er 10 metra langur og honum er
stungið í samband og hægt er að
stjórna honum með fjarstýringu
eða símanum. Fjarstýring fylgir og
virkar með appi, Google Assistant
og Amazon Alexa. Hann er dimm-
anlegur, í honum eru 16 milljón litir
sem einnig er hægt að láta stjórnast
í takti við tónlist. Þetta er vinsælt á
meðal yngri viðskiptavina.“
Nánar á lukson.is Innfelld ljós eru nett og þægileg. Öll ljós eru dimmanleg.
ALLT kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 Lý s i n g