Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Eignamiðlun er elsta starfandi fasteignasalan á Íslandi og býr starfsfólk fyrirtækisins yfir mikilli reynslu og sérþekkingu á sviði fast- eignaviðskipta. „Við leggjum mikið upp úr því að starfsfólk okkar vinni saman og með því höfum við náð góðum árangri í sölu fast- eigna,“ segir Guðlaugur Ingi Guð- laugsson, löggiltur fasteignasali og annar eigenda Eignamiðlunar. „Eignamiðlun er rótgróið fyrir- tæki þar sem markmiðið hefur alltaf verið að veita viðskipta- vinum fyrsta flokks þjónustu. Hér er lítil starfsmannavelta og eigend- urnir hafa lagt sig fram við að skapa gott vinnuumhverfi þar sem starfsfólk getur þróast og þroskast. Við höfum siglt í gegnum miklar breytingar á síðustu áratugum en alltaf haldið okkar striki. Mark- mið okkar er að gera enn betur í framtíðinni og halda áfram að vera leiðandi í fasteignaviðskiptum á Íslandi um ókomin ár.“ Ótal nýjar áskoranir Fyrrnefndar breytingar hafa haft mikil áhrif á fasteignasölur og þar með talið starfsfólk þeirra, að sögn Guðlaugs. „Fasteignamarkaðurinn er fljótur að taka breytingum með ótal nýjum áskorunum. Við þær aðstæður skiptir miklu máli að hafa reynslumikið starfsfólk sem hefur farið í gegnum þær breyt- ingar og tekist á við þær áskoranir. Þaðan kemur verðmæt reynsla sem sölumenn okkar miðla áfram til viðskiptavina okkar.“ Um leið er stærsta eign hverrar fasteignasölu orðspor hennar og heiðarlegt starfsfólk, að sögn Guðlaugs. „Í okkar huga byggjast fasteignasölur fyrst og fremst upp með vönduðum vinnubrögðum og því fólki sem starfar hjá okkur. Viðskiptavinir okkar geta stólað á reynslu, heiðarleika og þekkingu á fasteignamarkaðnum hjá starfs- fólki okkar.“ Vanda þarf valið Þegar fasteign er seld skiptir mjög miklu máli að velja réttu fasteigna- söluna enda er sparnaður flestra landsmanna að stórum hluta bundinn í henni. „Fyrirtæki verða ekki rótgróin nema þau geri hlut- ina rétt og vel. Við höfum starfað í áratugi og stefnum á næstu áratugi fram undan, ánægðir við- skiptavinir gera okkur það kleift. Fasteignasala þarf að vera sýnileg á markaði, vanda til verka við alla framsetningu á því sem verið er að selja og ekki síður mikilvægt er að veita faglega og yfirvegaða ráðgjöf til viðskiptavina.“ Rótgróið vörumerki Guðlaugur segir starfsfólk Eigna- miðlunar vera að koma út úr tímabili þar sem velta á fasteigna- markaðnum hefur verið gríðarlega mikil en hefur farið minnkandi sökum skorts á fasteignum til sölu. „Eignamiðlun er sterkt og rótgróið vörumerki og það hefur hjálpað okkur við að fá eignir til sölu. Margir okkar viðskiptavina leita til okkar með öll sín fast- eignaviðskipti og því höfum við haldið góðum takti það sem af er ári. Það er mikið fram undan hjá okkur, nýjar íbúðir að koma í sölu í Garðabæ, Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjavík. Allt eru þetta íbúðir á þéttingarsvæðum sem hafa verið vinsæl í sölu undanfarin ár. Árið hefur verið og verður krefjandi en gott heildina yfir.“ Líflegir tímar fram undan Fasteignamarkaðurinn hefur verið afar líflegur undanfarin ár og á Guðlaugur von á því að svo verði áfram. „Það er þó ljóst að fram- boð á nýbyggingum mun aukast á næstu árum og allar líkur eru á því að markaðurinn nái jafnvægi. Þó er ólíklegt að þau verkefni sem eru í vinnslu nái að fullnægja þeirri þörf sem undirliggjandi er á höfuðborgarsvæðinu og því ljóst að einhver hluti þessa kaupenda- hóps mun enda í nágrannasveitar- félögum í nálægð við höfuðborgar- svæðið.“ Hann segir því mjög mikilvægt á næstu árum að sveitarfélög og fjármálastofnanir nái að stuðla að stöðugleika í formi lóðaframboðs og góðra lánskjara til að koma í veg fyrir þær sveiflur sem einkennt hafa fasteignamarkaðinn hér á landi síðustu ár. „Utan þessara breytinga má helst nefna upptöku rafrænna þinglýsinga, sem lengi hefur verið í bígerð. Búast má við verulegum breytingum á þjónustu við viðskiptavini þegar þessar lausnir verða tilbúnar.“ n Nánar á eignamidlun.is. „Í okkar huga byggjast fasteignasölur fyrst og fremst upp með vönduðum vinnubrögðum og því fólki sem starfar hjá okkur,“ segir Guðlaugur Ingi Guðlaugsson (t.h.). FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Margir við- skiptavina Eignamiðlunar leita til fast- eignasölunnar með öll sín fast- eignaviðskipti. Eignamiðlun er sterkt og rótgróið vörumerki. Markmið okkar er að gera enn betur í framtíðinni og halda áfram að vera leiðandi í fasteignaviðskiptum á Íslandi um ókomin ár. 2 kynningarblað 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFASTEIGNIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.