Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 33
Flúrlampar eru eina fyrir- tækið á landinu sem sér- smíðar ljós og lampa eftir óskum viðskiptavina. „Gott orðspor hefur fylgt Flúr- lömpum frá upphafi, það hlýst kannski helst af því að það er engin fansí yfirbygging, okur né bull, bara heiðarleg vinna, framúrskar- andi þjónusta og sanngjarnt verð.“ Þetta segir Elma Björk Júlíus- dóttir, eigandi fjölskyldufyrir- tækisins Flúrlampa sem hún rekur með manni sínum, Jóhanni Lúðvík Haraldssyni og tveimur sonum Jóhanns, en Jóhann keypti fyrir- tækið í ársbyrjun 2004. „Flúrlampar urðu til árið 1977 þegar gamla Rafha (Raftækja- verksmiðja Hafnarfjarðar) var skipt upp í nokkur fyrirtæki, þar á meðal Flúrlampa ehf. sem framleiddi lampa ýmisskonar til notkunar innan- og utanhúss og seldi perur og íhluti í lampa. Slíkir lampar eru undir aragrúa þak- kanta á húsum og stærri bygg- ingum víðs vegar um landið og enn í fullri notkun enda vönduð smíð sem hentar fyrir íslenskar aðstæð- ur. Í dag smíðum við sjaldan nýja flúrlampa frá grunni, meira er um að við séum að setja nýja ljósgjafa í eldri lampa, ekki síst frá skólum, stofnunum og byggingum þar sem varðveita þarf útlit þeirra. Þá er komið með gömlu lampahúsin til okkar og við skiptum um ljósgjafa og oftar en ekki þá dufthúðum við líka lampana og þeir verða þá eins og nýir. Við dufthúðum reyndar ekki bara ljós heldur líka hurðarhúna, borðfætur, stóla og flest sem er úr málmi, eins og hluti á bíla, kerrur og vélsleða svo dæmi séu tekin. Fólk er mikið að láta dufthúða húsgögn og nýlega fundust til dæmis fjörutíu gullfallegir stólar í geymslu þekkts kaffihúss sem við dufthúðuðum og eru í dag eins og glænýir og einstaklega flottir,“ greinir Elma frá. Þekking, reynsla og hugvit Eftir að Jóhann keypti Flúrlampa árið 2004 hefur fyrirtækið þróast og vaxið og vöruúrval og þjónusta aukist mikið. Í verslunni að Reykjavíkurvegi 66 fæst flest það sem tengist ljósum og lýsingu og meira til. „Okkur var ráðlagt að halda upprunalega nafninu, Flúr- lampar, enda rómað fyrir afbragðs þjónustu, vönduð vinnubrögð og ráðgjöf í áranna rás. Í daglegu tali notum við þó nafnið Lampar meira og það er heiti heimasíð- unnar okkar, lampar.is. Fyrirtækið byggir á traustum grunni og hefur alltaf verið á sömu kennitölunni.“ útskýrir Elma, og Flúrlampar eru í raun og sann einstakt fyrirtæki. „Hér býr mikil þekking, reynsla og hugvit og hingað koma raf- virkjar, verktakar, hönnuðir og svo einkaaðilar, fyrirtæki og verslanir til að leita lausna og við gerum okkar besta til að aðstoða alla.“ Landsins stærsti íhlutalager Verslun Flúrlampa á Reykja- víkurveginum er full af ljósum og lömpum, bæði fallegri hönnun sem Flúrlampar smíða sjálf, í bland við glæsilegan ljósabúnað sem þau Elma og Jói flytja inn til landsins. „Úrvalið er glæsilegt og verðin góð. Við erum í grunninn fram- leiðslufyrirtæki og heildsala en við erum jafnframt með verkstæði þar sem við lögum lampa og ljós og gefum þeim nýtt líf. Við erum líklegast með stærsta íhlutalager landsins og eina verslunin sem ég veit um sem enn selur alla íhluti sem þarf í lampa. Við erum líka með mikið úrval af allskonar ljósa- perum en undanfarin ár hafa orðið miklar breytingar í sambandi við perur og ljósgjafa og perukaup geta því verið snúin fyrir marga. Því heyri ég oft hjá fólki að því finnst gott að geta komið í sérverslun eins og hjá okkur, fengið persónulega þjónustu og þá er minni hætta á að viðkomandi kaupi peru og eða ljós sem hentar ekki,“ segir Elma. Frá árinu 2007 hafa Flúrlampar smíðað kubbaljósin vinsælu, fyrir veggi og loft. „Þau eru enn í stöðugri fram- leiðslu og ekkert lát á því. Við vinnum líka mikið fyrir skip og báta og smíðum til dæmis ný LED-ljós í borð fyrir fiskvinnslur. Einnig höfum við smíðað ljós fyrir kvikmyndaver og leikhúsförðun. Við komum því víða við þótt Flúr- lampar séu bara lítið fjölskyldufyr- irtæki með sex til sjö starfsmenn.“ Jólaljósin heilla marga Dali-ljósastýringar eru í dag mjög stór hluti af starfsemi Flúrlampa. „Ljósastýringar eru oftast í stærri byggingum en líka á einka- heimilum. Oft eru það hönnuðir og eða arkitektar sem hafa sett línuna hvað útlitið varðar, en svo taka rafverktakar við og við vinnum með þeim að lausnum á því sem er fyrirskrifað og forritum Dali-ljósa- stýringar fyrir hvaða húsnæði sem er. Stundum er hægt að finna ljós í líkingu við þau sem arkitektinn lagði upp með en stundum eru þau bara ekki til og þá sérsmíðum við þau frá grunni. Flúrlampar eru eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á slíka sérsmíði og þjónustu, svo ég viti til,“ upplýsir Elma. „Okkur þykir líka ótrúlega gaman að vera með glæsilegar jóla- ljósavörur og þær hverfa eins og dögg fyrir sólu fyrir jólin og stund- um fá færri en vilja. Ég held að fólki þyki gott að koma í Flúrlampa því hér fær það góða þjónustu. Við tökum vel á móti öllum og leggjum okkur fram um að leysa hvers kyns vanda og velja það rétta þegar kemur að vali á ljósum, lömpum og öllum vörum.“ n Flúrlampar eru á Reykjavíkurvegi 66 í Hafnarfirði. Sími 550 1300. Netfang: lampar@lampar.is. Nánar á lampar.is Smíða draumaljós og gefa gömlum ljósum nýtt líf Elma Björk Júlíusdóttir hjá Flúrlömpum sem er einstök sérverslun þegar kemur að ljósum og lýsingu, með framúrskarandi þjónustu, þekk- ingu, hugvit og reynslu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Ítalskar skrautperur fást í glæstu úrvali hjá Lampar.is. MYND/AÐSEND Verslun Flúr- lampa á Reykja- víkurveginum er sneisafull af fallegum ljósum á góðu verði. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON Hægt er að koma með hugmynd að draumaljósinu og láta fagfólkið hjá Flúrlömpum skapa það frá grunni. MYND/AÐSEND Flúrlampar hafa frá árinu 2007 smíðað geysivinsæl kubbaljós sem fást bæði sem veggljós og loftljós, og í einkar fallegu litaúrvali. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Ljósin í Flúr- lömpum eru bæði sérsmíðuð á staðnum en líka innflutt frá fjölmörgum flottum hönn- uðum. MYND/AÐSEND ALLT kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 Lý s i n g

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.