Fréttablaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Árið 2022
var ein
stakt í sög
unni þegar
um 250
sjálfvirkir
rifflar voru
fluttir inn
hingað til
lands á
grundvelli
svokallaðs
safnara
leyfis.
Samþjöpp
un í sjávar
útvegi
er mikil
og fáir
útgerðar
risar verða
stöðugt
ríkari og
valdameiri
í samfélag
inu.
Elín
Hirst
elinhirst
@frettabladid.is
Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Skattinum
hagnast flestir af tekjuhæsta eina prósentinu af auð
lindum þjóðarinnar og allir þeir sem greiða meira en
300 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt eru útgerðar
menn – nema einn. Skattur af fjármagnstekjum er 22%
og ekkert útsvar rennur af þeim tekjum til sveitarfélaga.
Þeir sem fá fjármagnstekjur greiða því lægri skatta en
launamenn.
Samþjöppun í sjávarútvegi er mikil og fáir útgerðar
risar verða stöðugt ríkari og valdameiri í samfélaginu.
Við Íslendingar höldum takmörkuðu gæðunum hjá
fáum útvöldum og komum okkur ekki saman um sann
gjörn auðlindagjöld. Við í Samfylkingunni köllum eftir
breytingum og einfaldasta leiðin að réttlætinu er útboð
á aflaheimildum. Að á hverju ári haldi kvótahafar 95%
af úthlutuðum kvóta en 5% fari í útboð með leigusamn
ingum til ákveðins tíma. Þar með finnum við verðið sem
útgerðirnar eru í raun tilbúnar til að greiða fyrir veiði
heimildir og opnum fyrir nýliðun í greininni. Auðvelt
er að semja útboðsreglur sem draga úr samþjöppun og
gæta að byggðasjónarmiðum.
Útboð eru hin almenna regla og viðhöfð þegar ríkið
úthlutar réttindum eða verkefnum til fyrirtækja, hvort
sem úthluta á takmörkuðum gæðum líkt og losunar
heimildum og tíðnisviði eða úthlutun stórframkvæmda
og veitingu sérleyfa í samgöngum. Forréttindaúthlutun
sem tíðkast í sjávarútvegi gengur gegn stefnu jafnaðar
manna.
Í dag greiða útgerðirnar rúmar 17 krónur í veiði
gjald fyrir kíló af þorski sem rennur í ríkissjóð en
leiguverðið er rúmar 400 krónur samkvæmt vef
Fiskistofu um aflamarksviðskipti, útboði útgerðanna
sín á milli. Þar gilda markaðslögmálin og krónurnar
renna í vasa útgerðarmanna og þaðan í vasa erfingja
þeirra líkt og stærsti hluti arðseminnar af nýtingu
auðlindarinnar. Og óréttlætið og ójöfnuðurinn við
helst og erfist.
Stjórnvöld þurfa að standa í lappirnar og hafa kjark
til að breyta lögum um tengda aðila sjávarútvegs
fyrirtækja, vinna gegn samþjöppun, koma á útboði
á aflaheimildum til að gera nýliðun mögulega og fá
sanngjarnt veiðigjald í ríkissjóð. n
Forréttindi útvalinna
Oddný G.
Harðardóttir
alþingismaður
Samfylkingarinnar
Það var ógleymanlegt að sjá þegar fjöldi
fólks safnaðist saman á Blönduósi,
myndaði hring í kringum hlaupa
brautina í bænum, kveikti á kertum
og ungir og aldnir héldust í hendur.
Þessi áhrifamikli atburður var haldinn í þeim
tilgangi að sýna þeim samhug sem eiga um sárt
að binda vegna voðaverkanna sem framin voru
í hinu litla samfélagi og lýsir vel þeim sáru til
finningum sem allir landsmenn finna fyrir.
Skotárásin á Blönduósi vekur margar spurn
ingar um okkar friðsæla samfélag. Þar er ekki
allt sem sýnist. Staðreyndin er nefnilega sú
að hér á landi eru skráðar tæplega 87 þúsund
byssur auk þeirra fjölmörgu skotvopna sem
gera má ráð fyrir að séu óskráð og ólöglega
fengin. Þessar háu tölur vekja sannarlega óhug.
Þar að auki hefur innflutningur á sjálfvirkum
vopnum aukist gríðarlega á fáum árum. Með
sjálfvirku skotvopni er átt við byssu sem skjóta
má úr röð skota með því að taka einu sinni í
gikkinn. Árið 2022 var einstakt í sögunni þegar
um 250 sjálfvirkir rifflar voru fluttir inn hingað
til lands á grundvelli svokallaðs safnaraleyfis.
Börn eru ekki óhult. Ekki er lengra síðan en
nokkrar vikur að karlmaður á sjötugsaldri skaut
á tvo bíla fyrir utan fjölbýlishús í Hafnarfirði. Í
öðrum þeirra var sex ára drengur ásamt pabba
sínum á leið í leikskólann.
Ráðamenn eru ekki óhultir. Skotið var á bíl
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra fyrir utan
heimili hans í fyrra en tvö kúlnagöt fundust
í afturhurð bílsins og byssukúlurnar innan í
hurðinni. Þetta vekur líka þá áleitnu spurningu
hvort fólk sem gegnir opinberum stöðum
á Íslandi eigi á hættu að verða fyrir slíkum
árásum.
Skipulögð glæpastarfsemi er orðin raun
veruleg ógn í samfélaginu og sagan sýnir að
slíku athæfi fylgir beiting skotvopna. Maður
var myrtur fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði:
skotinn níu sinnum. Hinn myrti sem var fjöl
skyldufaðir hafði lagði bílnum í bílskúrnum og
var á leið inn á heimilið þegar árásin var gerð.
Talið er að morðið tengist einhvers konar upp
gjöri í undirheimunum.
Sem betur fer hefur Jón Gunnarsson dóms
málaráðherra boðað endurskoðun á skotvopna
löggjöfinni á Alþingi í haust þar sem hann mun
leggja fram frumvarp til breytinga á henni.
Ráðherrann gerir sér grein fyrir því eins og allir
landsmenn að nýir tímar eru runnir upp. Bara
það að á þessari fámennu friðsömu eyju skuli
vera að finna skotvopn í tugþúsunda tali er
náttúrulega galið. n
Byssueign
vekur óhug
ser@frettabladid.is
Formennskan farin
Fjaðrirnar reytast af Sjálfstæðis
flokknum sem lengi hefur geng
ið að völdunum svo vísum að
stappað hefur nærri náttúrulög
máli að hann haldi um taumana.
Ekki einasta virðist Flokkurinn
vera búinn að játa sig endanlega
sigraðan í borginni við sundin
blá, heldur er samfelldri for
mennsku í Samtökum íslenskra
sveitarfélaga lokið, en engin
önnur stjórnmálahreyfing hefur
átt leiðtogastöðuna þar jafn vísa,
gott ef Vilhjálmur Þ. Vilhjálms
son var ekki kjörinn formaður
samtakanna án mótatkvæða
í 16 ár. En sumsé, Heiða Björg
Hilmisdóttir, Samfylkingunni,
lagði Rósu Guðbjartsdóttur,
Sjálfstæðisflokki, um helgina –
og já, þá er það farið …
Gömul saga og ný
Í skýrslu starfshóps um aðgerðir
til eflingar leikskóla segir að
nýta þurfi allt námspláss til að
uppfylla lög um að tveir þriðju
hlutar starfsmanna hafi leik
skólakennarapróf. Hins vegar
sé „ljóst að ekki næst að upp
fylla ákvæði laganna fyrr en í
fyrsta lagi árið 2041 miðað við
óbreyttar forsendur, það er að
því gefnu að þau 180 námspláss
sem háskólarnir hafa til ráð
stöfunar fyrir leikskólakennara
nema verði fyllt og ekkert brott
fall verði.“ Þetta er ekki ný frétt.
Þetta er frétt frá árinu 2012. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR