Fréttablaðið - 30.08.2022, Side 8

Fréttablaðið - 30.08.2022, Side 8
Heilt yfir séð hefur þetta sumar verið kalt og úrkomusamt, meira en gengur og gerist Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur Eftir sumar sem einkenndist helst af kulda og rigningu má búast við að spennandi tíð með hlýindum komi til landsins í september. Frétta- blaðið fékk tvo veðurfræð- inga til að spá í spilin og fara aðeins yfir sumarið, sem er þó ekki alveg búið. ragnarjon@frettabladid.is VEÐUR Höfuðdagur var í gær, þann 29. ágúst, og hefur lengi verið sú þjóðtrú að með höfuðdegi komi fram veðurbreytingar sem haldist næstu þrjár vikur á eftir. Yfirleitt var trúin sú að hefði veður verið þrá- látt með einhverjum hætti myndi höfuðdagur bera breytingar á því í skauti sér. Fréttablaðið fékk tvo veðurfræðinga til að lesa í skýin og meta það sem af er sumri. „Það er misjafnt hvað fólk telur vera gott sumar en oftast er fólk að spá í hita, úrkomu og sólskin,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, yfirleitt þekktur sem Siggi stormur. „Það má kannski segja að þetta sumar hafi verið í lakari kantinum þó fram undan séu spennandi hlýindi þegar horft er aðeins inn í september,“ segir Sigurður og bendir á að sum- arið sé hvergi nærri búið enda teljist september vera sumarmánuður. Ef horft er yfir sumarið í heild segir Sigurður það hafa verið nokk- uð úrkomusamt og bendir hann fyrst á júní. „Úrkomudagar í Reykjavík í júní voru 18 talsins sem skiluðu 66 milli- metra úrkomu sem er yfir 52 pró- sentum meira en í meðalári. Í fyrra í sama mánuði voru úrkomudag- arnir 20 en skiluðu aðeins 39 milli- metrum af úrkomu,“ segir Sigurður og svipaða sögu sé að segja frá Akur- eyri. „Þar voru úrkomudagarnir 21 Segja að horfa megi til betri tíðar eftir höfuðdag hvað veðrið varðar Einar Svein- björnsson, veðurfræðingur thorgrimur@frettabladid.is RÚSSLAND Talið er að Sergej Shojgú, varnarmálaráðherra Rússlands, hafi að mestu verið ýtt til hliðar frá ákvarðanatöku í málefnum sem tengjast innrás Rússa í Úkraínu. Breska varnarmálaráðuneytið hafði í gær eftir óháðum rússneskum fjöl- miðlum að Vladímír Pútín Rúss- landsforseti tæki nú við skýrslum af vígvellinum frá herforingjum sínum án milligöngu Shojgú. Shojgú hefur verið varnarmála- ráðherra frá árinu 2012 og var áður ráðherra neyðarástandsmála frá 1991 til 2012. Lengi hefur mikil áhersla verið lögð á vináttu Shojgú og Pútíns, sem fara gjarnan saman í frí og hafa birt myndir af sér í fjall- göngum, á veiðum og á göngu um rússneska barrskógabeltið. Nú kann Shojgú hins vegar að vera að súpa seyðið af takmörk- uðum árangri rússneska hersins í Úkraínu. n Ráðherra ýtt til hliðar af Pútín Góðvinirnir Pútín og Shojgú. Seina- gangur í innrásinni kann að hafa valdið því að vináttan hefur kólnað. thorgrimur@frettabladid.is PAKISTAN Tala staðfestra dauðsfalla í Pakistan frá því í júní vegna ham- faraflóða þar í landi fór í gær yfir eitt þúsund. Ríkisstjórn landsins hefur lýst yfir neyðarástandi og biðlað til alþjóðasamfélagsins um neyðar- hjálp. Sherry Rehman, loftslagsráð- herra Pakistan, varaði við því að allt að þriðjungur landsins gæti farið undir vatn. „Við erum þessa stundina í miðju öfgakenndra veðurfyrirbrigða, óþrjótandi raða hitabylgna, skógar- elda, skyndiflóða, jökulvatnshlaupa og f lóða af öðrum toga,“ sagði Rehman. Rehman tengdi hamfarirnar við loftslagsbreytingar og benti á að hlýnandi loftslag hefði hraðað bráðnun jökla í Pakistan og þannig margfaldað áhrif úrhellisrigningar. Samkvæmt pakistönskum stjórn- völdum hafa að minnsta kosti 700.000 heimili verið lögð í rúst vegna flóðanna. Auk þeirra rúmlega þúsund sem hafa látist hafi milljón- ir hrakist á vergang. Fyrsta erlenda neyðarhjálpin kom til Pakistan á sunnudaginn með f lugvélum frá Tyrklandi og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þær báru meðal annars tjöld, matvæli og aðrar nauðsynjavörur. Rauði hálfmán- inn í Katar hefur einnig lofað því að koma með hjálpargögn. n Yfir þúsund látin af völdum flóða Pakistanar ösla í gegnum vatn eftir úrhellisrigningu í Kamber Shahdad- kot-umdæminu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Fýluferð í Flórída Hætt var við geimskot Artemis-áætlunarinnar sem fara átti fram í gær. Fjöldi fólks var mættur að Kennedy-geimmiðstöðinni í Flórídafylki til að fylgjast með skotinu en hætt var við það 40 mínútum áður en það átti að gerast. Bilun varð í einum af fjórum hreyflum eldflaugarinnar á Orion-geimfarinu sem er ómann- að. Ekki verður hægt að skjóta flauginni á loft fyrr en á föstudag. Prófanir á hreyflum munu ráða því hvort það verði gert. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY núna í júlí en 8 í fyrra. Í ár skiluðu þeir 47,5 millimetrum af sér en 12 millimetrum í fyrra,“ segir Sigurður. „Heilt yfir séð hefur þetta sumar verið kalt og úrkomusamt, meira en gengur og gerist,“ segir Sigurður. Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur tekur í sama streng og segir að vissulega hafi sumarið verið nokkuð rysjótt. „Það er þessi þráláti kuldapollur í háloftunum sem hefur stjórnað veðrinu hérna og gert það að verkum að ansi svalir dagar koma inn á milli. Hlýju dagana hefur svo eiginlega alveg vantað þangað til nú,“ segir Einar sem segir hlýindi á leiðinni og bendir á að hjátrúin á höfuðdag eigi sér ákveðna vísinda- lega skírskotun. „Hjátrúin var sú að á höfuðdegi yrðu breytingar og ef veður var þrá- látt með einhverjum hætti vikurnar á undan að þá kæmu fram breyting- ar þennan dag,“ segir Einar. „Það á sér alveg vísindalega skírskotun. Því um þetta leyti eða síðustu dagana í ágúst þá byrja vestanvindarnir í háloftunum að herða á sér.“ n Sólskinsdag- arnir voru fáir í júní og júlí en september gæti komið á óvart. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR 8 Fréttir 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.