Fréttablaðið - 30.08.2022, Page 11
Það ætti því að vera
sjálfsagt í lýðræðis-
ríki að ráðning í slíka
valdastöðu fari fram
með faglegum hætti,
þar sem umræða um
framtíðarsýn er opin
og gagnrýnin.
Við munum áfram
vinna að því að bæta
starfsumhverfi leik-
skólanna.
Með þessu opna bréfi vil ég annars
vegar lýsa yfir vonbrigðum með það
hvernig staðið var að ráðningu nýs
forstöðumanns Þjóðminjasafns
Íslands á dögunum og hins vegar
fara þess á leit við ráðherra að hún
útskýri hvers vegna þessi leið var
farin við skipan í embættið. Ég vil
jafnframt undirstrika að ég dreg
ekki í efa að Harpa Þórsdóttir sé
embættinu vaxin. Óánægja mín
beinist ekki gegn henni.
Eins og fram kemur í frétt um
skipanina á vef Stjórnarráðsins er
Þjóðminjasafn Íslands eitt höfuð-
safna landsins og þar með á meðal
viðamestu menningarstofnana
þjóðarinnar. Hér er stór hluti
menningararfs þjóðarinnar varð-
veittur, hér fara fram rannsóknir
á sögu og efnismenningu og jafn-
framt mikilvæg miðlun þekkingar
til almennings. Safnið er því allt í
senn varðveislustofnun, mennta- og
rannsóknastofnun. Enda þótt safn-
ið lúti lögum um bæði Þjóðminja-
safn og menningararf er þó ekkert
þessara hlutverka rist í stein. Söfn
eru nefnilega framsæknar stofnanir
sem leggja sig fram um að svara kalli
samtímans hverju sinni. Á heims-
vísu eru söfn á borð við Þjóðminja-
safn Íslands til dæmis að kljást við
spurningar um hvernig þeim beri að
bregðast við málefnum fjölmenn-
ingar og hvert hlutverk þeirra sé í
baráttunni gegn loftslagsbreyting-
um, eða hvernig þau geti sett gott
fordæmi í sjálf bærni. Hvaða áhrif
eiga þessir þættir, sem brenna á
okkur öllum, að hafa á safnastefnu,
rannsóknir og þekkingarmiðlun?
Sem eitt af höfuðsöfnum íslensks
menningararfs hefur stefna Þjóð-
minjasafns Íslands í þessum málum
jafnframt áhrif á fjölbreytt fagsvið
menningararfsfræða í landinu í
heild.
Það er ekki síst á tímamótum sem
þessum, þegar skipa á nýjan leið-
toga fyrir safninu – og slík tímamót
hafa alls ekki verið mörg í sögu þess
– að færi gefst til að setja þessar mik-
ilvægu spurningar á oddinn. Hvert
viljum við stefna? Hvar viljum við
leggja áherslurnar? Hverju viljum
við breyta? Í framhaldinu er þá líka
eðlilegt að spyrja, hvers konar leið-
toga þarf safn eins og Þjóðminja-
safn Íslands? Hvaða bakgrunn
og menntun er æskilegt að við-
komandi hafi? Auðvitað eru þessar
spurningar alltaf mikilvægar, en á
á tímamótum sem þessum ætti að
hvetja til þeirra á breiðum grunni.
Eins og staðið var að ráðningu nýs
þjóðminjavarðar á dögunum verður
ekki séð að færi hafi verið gefið á
nauðsynlegri umræðu.
Að eiga aðgang að safni eins og
Þjóðminjasafni Íslands eru forrétt-
indi. En það felst líka mikið vald
í því að geta sett mark sitt á það
hvernig fortíð þjóðar er varðveitt og
miðlað til komandi kynslóða. Það
ætti því að vera sjálfsagt í lýðræðis-
ríki að ráðning í slíka valdastöðu
fari fram með faglegum hætti, þar
sem umræða um framtíðarsýn er
opin og gagnrýnin. Ég fer þess á leit
við ráðherra að hún útskýri hvaða
málefnalegu ástæður liggja að baki
því að þetta var ekki haft að leiðar-
ljósi við ráðninguna. n
Opið bréf til ráðherra, Lilju Daggar
Alfreðsdóttur, varðandi skipan í
embætti þjóðminjavarðar
Mikil umræða hefur skapast um
leikskólamál í Reykjavík. Tilefnið
eru tafir á inntöku yngstu barnanna
í haust en spár frá því í mars gerðu
ráð fyrir að hægt yrði að bjóða 12
mánaða börnum leikskólapláss
í haust í fyrsta sinn í sögunni.
Nokkrir samverkandi þættir hafa
seinkað þeirri áætlun, þar sem vega
þyngst mun fleiri nýjar umsóknir
eftir stóru innritun haustsins eða
360 borið saman við 205 í fyrra og
93 árið áður. Í öðru lagi hefur þurft
að loka á annað hundrað plássum í
eldri leikskólum borgarinnar vegna
mikilla viðhaldsframk væmda.
Í þriðja lagi urðu tafir á nýfram-
kvæmdum vegna stöðu á heims-
markaði og þenslu á innlendum
byggingamarkaði sem sömuleiðis
hefur valdið mikilli verðbólgu í til-
boð verktaka. Við hörmum mjög
þessa töf og höfum gripið til ýmissa
aðgerða til að vega upp á móti og
koma til móts við foreldra sem hafa
orðið fyrir barðinu á henni. Við
hröðum opnun leikskóla við Naut-
hólsveg, fjölgum plássum með því
að nýta eldra húsnæði borgarinnar
fyrir leikskóla s.s. í Korpu og Bakka,
hefjum undirbúning nýrra leikskóla
í Fossvogi og við Suðurlandsbraut,
eflum dagforeldrakerfið o.s.frv.
Uppbygging á fullri ferð
Uppbygging nýrra leikskóla er
áfram á fullri ferð. Þrír nýir leik-
skólar hafa verið opnaðir á þessu
ári: við Eggertsgötu, Bríetartún og
Kleppsveg og þrír til viðbótar opna
fram til áramóta miðað við nýjustu
áætlanir: við Nauthólsveg í sept-
ember, Ármúla í október og Voga-
byggð í desember. Þá stækka þrír
eldri leikskólar borgarinnar á þessu
ári; Gullborg, Funaborg og Haga-
borg. Alls verður hægt að bjóða
a.m.k. um 600 börnum í þau nýju
pláss sem opnast í ár og á næsta ári
stefnir í svipaða aukningu. Brúum
bilið verkefnið felur í sér fjölgun
um rúmlega 2.000 leikskólarými í
heild.
Stærsta áskorunin
En verkefnið er margslungið og
stærsti vandi leikskólastigsins á
Íslandi er skortur á fagfólki en allan
síðasta áratug hefur aðsókn í kenn-
aranám verið langt undir nýliðunar-
þörf en aðsóknin féll um ríf lega
70% eftir að námið var lengt úr 3
árum í 5 með samþykkt Alþingis.
Aðsóknartölur allra síðustu miss-
era lofa reyndar góðu en betur
má ef duga skal. Önnur afdrifarík
ákvörðun ríkisins var samþykkt um
eitt leyfisbréf kennara óháð skóla-
stigi en í aðdraganda löggildingar
þess brast f lótti í hóp leikskóla-
kennara sem söðluðu um í stórum
stíl og hófu störf í grunnskólum. Alls
fækkaði um 200 leikskólakennara
við þetta sem var gríðarleg blóð-
taka fyrir leikskólana í landinu. Það
er eitt brýnasta samstarfsverkefni
ríkis og sveitarfélaga að bregðast
við þessum atgervisflótta leikskóla-
kennara með því að bæta starfsskil-
yrði þeirra, jafna aðstöðumun gagn-
vart grunnskólum og beita öflugri
hvötum til að laða fleira ungt fólk í
námið.
Bætt starfsumhverfi í Reykjavík
Reykjavík hefur tekið forystu í því
að bæta starfsumhverfi leikskól-
anna með fjölmörgum umbótaað-
gerðum á síðustu árum og mun
halda því áfram. Við höfum m.a.
fjölgað starfsfólki, fækkað börnum
í hverju rými, aukið undirbúnings-
tíma og fjármagn í faglegt starf sam-
hliða því að bæta launakjör, stytta
opnunartíma og auka fjármagn í
viðhald húsnæðis.
Það er tímabært að skoða leik-
skólastigið í landinu í stærra sam-
hengi. Sterk rök hníga að því að
lengja enn frekar fæðingarorlofið og
gefa þeim foreldrum sem það kjósa
kost á að vera með börnum sínum
til 2 ára aldurs eins og þekkist á
Norðurlöndunum. Skynsamlegt er
að ná breiðri samstöðu um styttri
vistunartíma yngstu barnanna til
samræmis við styttingu vinnuvik-
unnar og fyrir því eru ýmis fagleg
rök. Samspil lengra fæðingarorlofs
og styttri vistunartíma yngstu
barnanna myndi efalítið stuðla að
betra samfélagi að minnsta kosti
meðan meiri árangur næst í að
fjölga fagfólki í leikskólum.
Þrátt fyrir fjölmargar áskoranir
er leikskólastarf í Reykjavík með
miklum ágætum þökk sé frábærum
stjórnendum og starfsfólki, ánægja
foreldra með starfið mælist ítrekað
um 90%, leikskólagjöld eru með
þeim lægstu í landinu og vinnuum-
hverfi starfsfólks og barna hefur
batnað verulega. Við munum áfram
vinna að því að bæta starfsumhverf-
ið og renna styrkari stoðum undir
leikskólastarfið í borginni samhliða
því að koma betur til móts við þarfir
ungbarnafjölskyldna í borginni. n
Leikskólamál í samhengi
Skúli Helgason
borgarfulltrúi
og formaður
stýrihóps um leik-
skólauppbyggingu
í Reykjavík
Dr. Þóra
Pétursdóttir
dósent í fornleifa-
fræði og menn-
ingararfsfræðum
við Oslóarháskóla
*Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða
eða aðgang að útsölum á undan öðrum með
því að skrá þig á póstlista Dorma.
STÓLA
DAGAR
18. - 31. ágúst
20%
afsláttur
af öllum
stólum
Fullt verð: 199.900 kr.
Nú 159.920 kr.
AVIGNON
hægindastóll með skammel
Stillanlegur hægindastóll með innbyggðum
skemli. Brúnt, svart, dökkgrátt og rautt PVC leður.
Fullt verð: 169.900 kr.
Nú 135.920 kr.
KOLDING
hægindastóll
með skammel
Stillanlegur hægindastóll
með skemli. Svart, rautt eða
grátt leður/PVC.
Fullt verð: 199.990 kr.
Nú 159.992 kr.
Fullt verð: 229.900 kr.
Nú 183.920 kr.
CANNES hægindastóll
með skammel
BUFFALO lyftistóll - rafdrifinn
Vandaður, glæsilegur og þægilegur
hægindastóll með þykku leðri á
slitflötum á sterkum snúnings fæti.
Koníaksbrúnt, svart, grátt
eða rautt leður.
Leður á slitflötum. Hægt að halla baki.
Aðstoðar þig á fætur. Brúnn, grár
eða svartur. 84 x 94 x 110 cm.
Vandaður, glæsilegur og þægilegur hægindastóll
með þykku leðri á slitflötum á sterkum
snúnings fæti. Koníaksbrúnt, svart, grátt
eða rautt leður.
BUFFALO
lyftistóll - rafdrifinn
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ