Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 15
Húsasmiðjan býður upp
á gríðarlegt úrval snjall-
lausna fyrir heimili. Hægt er
að snjallvæða heimilið frá
A-Ö eftir heimsókn þangað.
Markmið Húsasmiðjunnar
er að vera með besta úrval
landsins af snjalllausnum.
Húsasmiðjan setur snjalllausnir á
oddinn og ætlar sér að taka forystu
í snjallvæðingu heimilisins. Snjall-
lýsing frá Phillips hefur verið seld
í Húsasmiðjunni frá árinu 2018
og sífellt bætist við vöruúrvalið,
að sögn Eggerts Gottskálkssonar
vörustjóra hjá Húsasmiðjunni.
„Við erum með tvær línur í
snjalllýsingu frá Phillips, þær heita
Hue og Wiz. Hue er flaggskipið
í þessum vörum og býður upp á
marga möguleika eins og sam-
tengingar við sjónvörp og Spotify.
Wiz er aftur á móti einfaldara
og er meira keypt af yngra fólki,“
útskýrir hann.
Spurður að því hver helsti
munurinn sé á þessum tveimur
vöruflokkum segir hann að
Wiz sé frekar hugsað fyrir ein-
faldar aðgerðir eins og að kveikja,
slökkva og stilla birtustig en að
Hue bjóði upp á fjölbreyttari still-
ingarmöguleika.
Óteljandi stillingarmöguleikar
„Með samtengingu við Spotify og
sjónvarp er til dæmis hægt að láta
ljósin breytast í takt við tónlist,
sem er skemmtilegt í barnaher-
bergjum, eða ef þú ert að halda
veislu. Það er líka hægt að tíma-
stilla ljósin, til dæmis þannig
að þau kvikni og slökkni alltaf
ákveðnum tímum. Það er hægt
bæði með Hue og Wiz. Þú getur til
dæmis stillt ljósin þannig að þau
kvikni alltaf inni á baðherberginu
á ákveðnum tímum á nóttunni
þannig að það líti út fyrir að þú sért
að fara á klósettið ef þú ert ekki
heima,“ segir hann.
„Þá er hægt að stilla það þannig
að það gerist ekki alltaf á sama
tíma, kannski kvikna þau eina
nóttina klukkan þrjú og næstu
korter yfir þrjú. Ef einhver er að
fylgjast með húsinu þínu þá grunar
hann síður að enginn sé heima
ef ljósin kvikna á mismunandi
tímum. Ef þú hefur séð Home
Alone þá veistu að þú þarft að
Snjallvæðing heimilisins hefst í Húsasmiðjunni
Eggert segir að
Húsasmiðjan
í Skútuvogi sé
með eitt mesta
úrval af Philips
snjallperum
í allri Skand-
inavíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Hægt er að kaupa bæði inni- og útiljós, perur og ljóskastara, lampa og loft-
ljós af öllum stærðum og gerðum í snjallljósalínu Philips Hue.
Í stærri verslunum Húsasmiðjunnar eru ljósin uppsett og hægt að sjá með
eigin augum hvernig þau virka.
Í september er
tilboð á start-
pakka frá Philips
Hue.
passa þig á því,“ segir hann og hlær.
Stillimöguleikarnir fyrir ljósin
eru óteljandi. Auk þess að tíma-
setja þau eða tengja við önnur
öpp eins og Spotify, er hægt að
stilla mismunandi liti og birtu á
ákveðnum tímum dags. Það er
meðal annars hægt að stilla ljósin á
morgnana þannig að þau líki eftir
sólarupprás.
„Það er hægt að stilla á hvíta
birtu, sem líkist dagsbirtu. Þá eru
ljósin svipuð og í lömpum sem
hafa verið notaðir gegn skamm-
degisþunglyndi. Þú getur stillt
ljósin á morgnana þannig að
birtan eykst smám saman þar til
dagsbirta er komin inn í svefn-
herbergið.
Ég hefði ekki trúað því sjálfur
fyrr en ég prófaði þetta, en
þetta auðveldar manni gríðar-
lega að vakna á morgnana,
sérstaklega í skammdeginu,“
segir Eggert.
Einfalt í notkun
Ljósunum er hægt að stjórna
á einfaldan hátt í gegnum
app í símanum. Einnig er
hægt að tengja þau við
Google home eða Alexu.
Perurnar eru einfald-
lega settar í þá lampa
og ljósastæði sem fyrir
eru á heimilinu.
„Viðmótið á appinu
er mjög neytendavænt
svo allir geti lært að nota
það. Þetta er neytendavara og hver
og einn á að geta opnað pakkann,
sett peruna í og fengið hana til að
virka án þess að nota tæknimann.
Appið sér svo um alla stýringu á
ljósum heimilisins,“ segir Eggert.
„Það er hægt að kaupa start-
pakka frá Hue en inni í honum
eru nokkrar perur og brú sem þú
stingur í samband við netbeini.
Brúin sér til þess að öll ljósin tali
við Philips Hue appið. Við verðum
með sérstakt tilboð á startpakk-
anum núna í september.“
Eggert segir að snjallperur séu
framtíðin í öllum perum. „Það
verður þannig í framtíðinni að öll
ljós á heimilinu verða stillanleg
með appi. Þú þarft ekki einu sinni
að vera heima hjá þér þegar þú
stillir ljósin. Þú getur verið hvar sem
er í heiminum og stýrt ljósunum
heima hjá þér,“ segir hann og bætir
við að fyllsta öryggis hafi verið gætt
við gerð appsins og ekki sé hægt að
hakka sig inn í það.
Gríðarlegt úrval
Eggert segir Húsasmiðjuna eiga
gríðarlegt úrval af snjallljósum frá
Philips, bæði perum og lömpum,
inniljósum og útiljósum.
„Ég held að ég geti fullyrt að við
séum með eitt mesta úrvalið af
Hue ljósum í allri Skandinavíu, hér
í Húsasmiðjunni í Skútuvogi. En
við erum með gott úrval í öllum
verslunum Húsasmiðjunnar,“ segir
hann.
„Við erum einnig með gott úrval
af öðrum snjalllausnum, eins og
myndavélum, reykskynjurum,
hurðaskynjurum, hitaskynjurum á
grillið og fleira. Þú getur snjallvætt
heimilið frá A-Ö í Húsasmiðjunni.“
Í stærri verslunum Húsasmiðj-
unnar eru ljósin uppsett og hægt að
sjá með eigin augum hvernig þau
virka og viðskiptavinir geta prófað
að stjórna ljósunum sjálfir. Þar er
einnig starfsfólk sem er boðið og
búið að aðstoða viðskiptavini við
að velja réttu ljósin fyrir heimilið. n
Nánari upplýsingar á husa.is
ALLT kynningarblað 3ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 Lý s i n g