Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 29
Fasteignasalan Miklaborg
var stofnuð árið 2007. Síðan
þá hefur hún verið í miklum
vexti. Hjá Mikluborg er lögð
rík áhersla á þjónustulund og
örugg og heiðarleg viðskipti.
Miklaborg var stofnuð árið 2007
af héraðsdómslögmönnunum og
löggiltu fasteignasölunum Óskari
Rúnari Harðarsyni og Jasoni
Guðmundssyni en síðan þá hefur
hún verið í eigu þeirra tveggja.
Miklaborg hafði upphaflega
aðsetur í Síðumúla 13 en árið 2014,
vegna aukins umfangs og starfs-
mannafjölda, færði hún sig um set
og settist að í Lágmúla 4, í gömlu
húsakynnum Úrvals Útsýnar. Frá
stofnun fasteignasölunnar hefur
hún dafnað og vaxið ört og fjöldi
starfsmanna hartnær tífaldast
síðan þá, frá fjórum í tæplega
fjörutíu.
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og
löggiltur fasteignasali hjá Miklu-
borg segir það hafa verið mjög
áhugavert að sinna fasteignasölu
síðustu misserin.
„Það hefur verið ævintýralegt
að taka þátt í þeirri þróun sem
hefur verið á fasteignamarkaði
undanfarið. Fasteignaverð hefur
hækkað töluvert eins og frægt er
og því hafa eigendur aukið eigið fé
sitt umtalsvert. Þessi þróun átti sér
stað á öllum markaðssvæðum en
ekki bara höfuðborgarsvæðinu,“
segir hann.
„En eftir miklar viðvarandi
hækkanir í langan tíma, eins og
verið hefur, hefur þróunin verið
sú að markaðurinn er aðeins
að róast. Það er eðlilegt að eftir
miklar hækkanir taki við tímabil
þar sem markaðurinn leitar í jafn-
vægi. Þróun vaxta hefur auðvitað
líka haft áhrif á það. Það má segja
að nú sé fasteignasala komin í eðli-
Hafa alla viðskiptavini í hávegum
Óskar H. Bjarnasen, lögmaður og löggiltur fasteignasali hjá Mikluborg, segir það hafa verið mjög áhugavert að sinna fasteignasölu síðustu misserin. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Seljendur eru enn
að fá góð verð fyrir
eignir sínar en á sama
tíma geta kaupendur
gert góð kaup.
Óskar H. Bjarnasen
Arkarvogur 10-12 og Drómundarvogur er falleg nýbygging, byggð af ÞG verk, sem er að koma í sölu á Mikluborg .
legra horf en verið hefur undan-
farið. Dregið hefur úr söluhraða
sem er nú orðinn eðlilegri og
framboð er að aukast. Kaupendur
hafa þess vegna meiri tíma til að
skoða og meta spennandi kosti á
markaði.“
Árið verið sterkt
Óskar segir árið hafa verið sterkt
hjá á Mikluborg í ár.
„Við erum enn að selja mikið af
eignum og þær eru enn að fara á
ásettu verði og yfir það. Eignum á
skrá mun fjölga með haustinu, við
höfum þess vegna engar áhyggjur
af framtíðinni þó hægst hafi á
sölunni miðað við síðustu misseri.
Ástandið er einfaldlega að nálgast
það sem telja mætti eðlilegt. Selj-
endur eru enn að fá góð verð fyrir
eignir sínar en á sama tíma geta
kaupendur gert góð kaup. Við
vöndum okkur vel í verðlagningu
svo söluferlið skili árangri,“ segir
hann.
„Frá og með haustinu erum við
að fá inn töluvert af nýbyggingum
og það heldur áfram næstu ár
þannig að við teljum að framboð
eigna verði gott næstu misseri. Við
erum að sjá árangur af þéttingu
byggðar með spennandi þéttingar-
reitum eins og á Ártúnshöfða,
Orkureitnum og reitum í kringum
Borgarlínuna. Þessi afrakstur þétt-
ingarstefnunnar er núna að byrja
að skila sér af einhverri alvöru.“
Þjónustulund og heiðarleiki
Óskar hvetur fyrstu kaupendur,
sem margir hafa orðið eftir vegna
hækkana, til að bíða ekki með að
kaupa ef þeir standast greiðslumat.
„Við hvetjum fyrstu kaupendur
til að koma inn á markaðinn sem
fyrst. Sagan sýnir okkur að verð á
fasteignum hefur ekki lækkað til
lengri tíma en núna eru að koma
inn verkefni á verðum sem verða
ekki endilega í boði á næstu árum.
Sagan sýnir okkur að fasteignaverð
lækkar almennt ekki til lengri tíma
og að okkar mati er verð á nýbygg-
ingum ekki að fara að lækka,
meðal annars vegna hækkandi
verðs á aðföngum og aðkeyptri
vinnu. Þess vegna ætti fólk sem er í
kauphugleiðingum ekki að bíða.“
Óskar segir að á Mikluborg sé
ætíð lögð áhersla á ríka þjónustu-
lund og að fyrirtækið veiti örugg
og heiðarleg viðskipti og fram-
sækni í störfum sínum.
„Við teljum að þessi atriði spili
veigamikið hlutverk í því að skapa
traust viðskiptavina. Það er sér
í lagi mikilvægt þar sem margir
þeirra eru að eiga í stærstu við-
skiptum ævi sinnar og treysta því
að vel sé staðið að hlutunum.“
Framúrskarandi fyrirtæki
Einkunnarorð Mikluborgar eru
gæði, fagmennska og árangur í
starfi en vönduð vinnubrögð og
gagnkvæmur ávinningur vega
þungt í stefnu fyrirtækisins.
„Þetta hefur hefur kristallast á
ýmsum sviðum til að mynda því
að Creditinfo útnefndi fasteigna-
söluna sem framúrskarandi
fyrirtæki, auk þess sem velta fyrir-
tækisins er árlega sú hæsta á fast-
eignamarkaðnum,“ segir Óskar. n
Nánari upplýsingar á miklaborg.is
kynningarblað 5ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 FASTEIGNIR