Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 34
 Í alþjóðlegri könn- un sem gerð var árið 2018 af Staples sögðu yfir 80% starfs- manna á skrifstofum mikilvægt að hafa góða lýsingu. Umhverfið skiptir miklu máli og ekki síst lýsingin sem hefur mikil áhrif á fram- leiðni og sköpunargáfu. Góð lýsing er mikilvægur þáttur í vinnuumhverfinu og minnkar hættuna á vöðva- spennu og augnþreytu. Rétt lýsing er skilyrði þess að hægt sé að vinna í þægilegri stöðu. Þegar vinnustaður er skipulagður þarf að meta hversu mikil lýsing er nauð- synleg og hvers konar ljós- gjafar henta best. elin@frettabladid.is Þetta kemur fram á vef Vinnueftir- litsins. Þar segir einnig að stað- setning ljósgjafa eigi að ákveða eftir að vinnuumhverfið hefur verið skipulagt. Ef ekki hefur verið vandað nægilega til lýsingar í upp- hafi eða aðstæður breytast þarf að endurskoða lýsinguna. Rétt lýsing, hvort sem er í skrif- stofu- eða iðnaðarhúsnæði, er afar mikilvæg. Viðeigandi lýsing, án glampa eða skugga, getur dregið úr þreytu í augum og höfuðverk en einnig komið í veg fyrir atvik á vinnustað með því að auka sýni- leika hluta á hreyfingu og hindrað þannig slys og óhöpp, segir enn fremur á vef Vinnueftirlitsins. „Mikilvægt er að hafa þægilega almenna lýsingu og möguleika á sérlýsingu eða auka birtustigið eftir þörfum hvers og eins.“ Þá er einnig vert að muna að með aldrinum breytist sjónin og þörfin fyrir lýsingu eykst. Tölvan gegn glugga Tölvuskjárinn ætti alltaf að vera staðsettur þannig að dagsljós komi frá hlið. Ef birta er of mikil verður erfiðara að lesa á skjáinn. Stilla þarf tölvuskjánum upp gegnt glugganum þannig að dagsbirtan skíni ekki í augun og heldur ekki þannig að skjárinn snúi að glugg- anum. Þegar sólin skín á skjáinn verður endurkast. Góð lýsing er sömuleiðis mikil- væg í dimmustu mánuðum hér á landi. Það á bæði við á vinnu- stöðum og á heimilum. Þegar fólk vinnur við tölvuskjá þarf það að huga að lýsingunni. Á skrifstofu- og tölvuvinnustöð- um þarf að vera aðgengi að bæði viðeigandi almennri lýsingu og rýmislýsingu. Ef fólk hefur aðgang að góðum ljósmæli getur það fund- ið út birtuskilyrði í fundarherbergi og á skrifstofunni sem ætti að vera 500 lúx (ráðlögð birtugildi) á við- komandi vinnuborði. Ef lúx-gildin Góð lýsing eykur einbeitingu og starfsvilja Lýsing á vinnu- stöðum þarf að vera þannig að fólki líði vel í umhverfinu. Of sterk eða of dauf lýsing getur skapað höfuðverk og þreytu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Ekki þarf að vera sama lýsing í vinnurými og til dæmis í kaffi- stofu. Tölvur eiga að snúa til hliðar við gluggabirtu. eru nokkuð mismunandi getur lýsingin samt virkað þokkalega. Það getur verið flókið að ná góðri lýsingu á heimaskrifstofu nema að fá lýsingarhönnuð í ráðgjöf. Forð- ast skal endurkast á skjánum og beina lýsingu að vinnuborðinu. Skipta skal út gömlum ljósaper- um og flúrperum fyrir sparperur. Þær gefa dempaðra ljós og spara rafmagnið. Þú færð betri og skil- virkari lýsingu og meiri vellíðan í starfi. Hefðbundnar glóperur og ýmsar röralýsingar mynda mikinn hita. Með því að nota LED-lýsingu er hægt að spara rafmagn og það verður þægilegra hitastig í kringum þig. Margvísleg vandamál Algengustu einkenni fólks sem starfar í lélegri lýsingu eru þreyta, sár augu, höfuðverkur, háls- og bakverkir, einbeitingarvandamál, pirringur og minnkandi vinnu- geta. Axlir og háls spennast þegar líkaminn setur sig í óhagstæðar vinnustellingar vegna lélegrar eða of mikillar birtu. Mjög mikil- vægt er því að hafa rétta birtu svo fólk eigi auðvelt með að þrauka í gegnum vinnudaginn. Aldur skiptir máli: n 40 ára þarf tvöfalt meiri lýsingu en 20 ára n 60 ára þarf 5 sinnum meira ljós en 20 ára Staðsetning ljóssins og hvernig vinnustaðurinn er staðsettur gagn- vart gluggum og öðrum ljósflötum spilar mikið inn í heildarmyndina. Með því að skoða andstæðurnar á vinnustaðnum er hægt að skoða hvar ljósþörfin liggur. Dökkir fletir þurfa sterkara ljós en þeir sem hafa ljósari lit. Lampi góð lausn Lykillinn að góðri skrifstofulýs- ingu getur legið í skrifborðslampa. Ef hver einstaklingur hefur slíkan lampa á borðinu, sérstaklega með stillingum, getur hann stjórnað eigin birtustigi án þess að trufla lýsingu annarra. Skrifborðslampi með stillanlegum armi er góður kostur og lampi með dimmer sömuleiðis. Lampinn má þó ekki varpa endurkasti á tölvuskjáinn. Til eru sérhannaðir lampar fyrir vinnustaðinn sem skapa þægilega birtu. Sænska Vinnumálastofnunin hefur látið útbúa sérstakt app sem fólk getur halað niður í símann sinn og mælt lúx-gildi á vinnu- staðnum. Vinnumálastofnunin bendir á að lýsing hefur mikil áhrif á vinnugetu fólks. Sænskur lýsingarhönnuður bendir á að margt hafi verið bætt hvað varðar lýsingu á vinnustöðum en enn sé töluvert í land til að fullkomna verkið. Góð lýsing skilar betri vinnuafköstum og það þarf fjöl- breytni í vinnuljósum. Flúrrör í loftinu er einhæf lýsing. Ekki þarf að gera sömu kröfur um birtu á kaffistofunni og í vinnurýminu. Í kaffistofunni á að vera deyfð lýsing þar sem starfsmenn geta slakað á. Ekki er hægt að bera saman lýsingu á mismunandi stöðum, til dæmis sjúkrahúsi eða veitinga- stað með kertum. Með nýrri tækni er hægt að stýra birtunni yfir daginn. Þannig verður hún róleg á morgnana, sterkari um miðjan dag en deyfð aftur seinni partinn. Hefur áhrif á framleiðni Ef fólk tekur sér hádegisgöngu á sólríkum vinnudegi finnur það hversu birtan hefur góð áhrif á bæði skap og framleiðni. Nýlegar rannsóknir í vinnuvistfræði stað- festa þetta. Í alþjóðlegri könnun sem gerð var árið 2018 af Staples sögðu yfir 80% starfsmanna á skrifstofum mikilvægt að hafa góða lýsingu. Umhverfið skiptir miklu máli og ekki síst lýsingin sem hefur mikil áhrif á framleiðni og sköpunargáfu. Of björt lýsing getur verið hörð fyrir augun, ruglað svefninn og kallað fram ein- kenni mígrenis. Of lítil lýsing getur þvingað augun og valdið syfju og þreytu. Það er því ljóst að vönduð lýsingarhönnun borgar sig fyrir alla. n Síðumúla 25 · 108 Reykjavík · 555 4440 www.ledtec.is ÚTILJÓS FYRIR HEIMILIÐ · BÍLSKÚRINN · VERKSTÆÐIÐ · HESTHÚSIÐ LEDLÝSING PANEL LJÓS LÉTTLÍNULJÓS Í STAÐ FLÚORLJÓSA FLÓÐLJÓS BETRA VERÐ OG LÆGRI REKSTARKOSTNAÐUR KASTARAR Á BRAUTIR 6 kynningarblað A L LT 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURLý s i n g

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.