Fréttablaðið - 30.08.2022, Síða 38

Fréttablaðið - 30.08.2022, Síða 38
Ég skildi alveg Pavel að fara en það er erfiðara að sjá Kristófer í Vals­ treyju að hampa titl­ um. Það er þétt spilað í enska boltanum á næstunni en Heims­ meistaramótið í Katar hefst í nóvember. hoddi@frettabladid.is FÓTBOLTI Það verður líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en þétt er spilað næstu vikurnar vegna Heimsmeistaramótsins sem fer af stað í Katar í nóvember. Tólf umferðir verða leiknar á næstu vikum fram að stórmótinu en þetta er í fyrsta sinn sem Heimsmeistara­ mótið fer ekki fram á miðju sumri. Fjórar umferðir eru búnar í ensku úrvalsdeildinni en Arsen­ al situr á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Arsenal tekur á móti Aston Villa á miðvikudag sem er í krísu undir stjórn Steven Gerrard. Liverpool vann frækinn 9­0 sigur á Bourne mouth um helgina en liðið heldur á miðvikudag til Newcastle og mætir þar heimamönnum í snúnu verkefni. Englandsmeist­ arar Manchester City taka á móti Nottingham Forrest á heimavelli og búast má við auðveldum heima­ sigri. City hefur þó verið að leka inn mörkum í síðustu leikjum sem nýliðarnir frá Nottingham vonast til að geta nýtt sér. Tottenham, undir stjórn Antonio Conte, hefur farið vel af stað en lið Tottenham er vel mannað og heim­ sækir West Ham á miðvikudag. Manchester United heimsækir Lei­ cester á fimmtudag en lærisveinar Erik ten Hag hafa unnið tvo leiki í röð eftir að hafa byrjað illa. Liðið hefur fest kaup á Antony frá Ajax sem kostar félagið 100 milljónir evra og fer hann í hóp dýrustu leik­ manna í sögu enska fótboltans. n Gleðin við völd í miðri viku Staðan: stig 1. Arsenal 12 2. Man. City 10 3. Tottenham 10 4. Brighton 10 5. Leeds 7 6. Chelsea 7 7. Newcastle 6 8. Man. Utd 6 9. Liverpool 5 10. Brentford 5 11. Fulham 5 12. Crystal Palace 4 13. Southampton 4 14. Nottm Forest 4 15. Aston Villa 3 16. West Ham 3 17. Bournemouth 3 18. Everton 2 19. Wolves 2 20. Leicester 1 14 Íþróttir 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR Eftir átta Íslandsmeistaratitla hefur Brynjar Þór Björnsson, ein besta skytta í sögu íslenska körfuboltans, ákveðið að leggja skóna á hilluna. Brynjar lék í átján ár í meistaraflokki, sextán af þeim voru með KR, en hann reyndi einnig fyrir sér í Svíþjóð og á Sauðárkróki. Hann kveður sviðið stoltur og horfir nú á ný verkefni í lífinu. KÖRFUBOLTI „Ég taldi að mínum tíma væri betur varið í annað, þetta krefst vinnu til að vera í góðu standi bæði andlega og líkamlega. Ég vil gera þetta almennilega, ég er ekki með sama hungrið til að gefa mig allan í þetta og þá er alveg eins gott að eyða tímanum í eitthvað annað,“ segir Brynjar Þór Björnsson sem greindi frá ákvörðun sinni um liðna helgi. Brynjar er 34 ára gamall og var ungur mættur á sjónarsviðið. KR gengur í gegnum kynslóða­ skipti sem hjálpaði Brynjari að taka ákvörðun sína, ólíklegt er að þetta stórveldi í íslenskum körfubolta berjist um Íslandsmeistaratitil í vetur. „Það hjálpar til, mjög mikið í raun. Liðið er ansi ungt, leikmenn sem áttu að vera þarna 28­29 ára eru hættir eða farnir annað. Það vantar þessa kynslóð til að vera í toppbar­ áttu, það er erfitt að vera kominn í lið sem er að meirihluta ungir leik­ menn sem eiga eftir að þroskast. Það vantaði leikmenn í kringum mig sem eru á svipuðum stað í lífinu,“ segir Brynjar um ákvörðun sína. Forréttindaferill Brynjar segist upplifa það sem for­ réttindi að hafa unnið alla þessa titla en einnig að hafa prófað að fara í atvinnumennsku. „Þetta er algjör forréttindaferill að upplifa alla þessa sigurgöngu, vera með í öllum þessum uppgangi sem var í KR. Svo eru ævintýri eins og í Sví­ þjóð árið 2011 og svo með Tinda­ stóli árið 2018. Þetta er búið að vera eintóm skemmtun allur þessi ferill, árangurinn er frábær. Það er gaman að hafa upplifað þetta allt saman. 2007­titillinn stendur mikið upp úr, það er sá fyrsti. Þetta var sá eini þar sem við áttum ekki að geta unnið, við vinnum Njarðvík þrátt fyrir að vera undir nánast alla þá seríu. Það skapaðist múgæsingur í líkingu við það sem gerðist hjá Tindastóli í úrslitakeppninni núna. Miðjan (stuðningssveit KR) mætti Einn sá besti kveður sviðið sáttur Brynjar við einn af þeim átta Ís- landsmeistara- titlum sem hann landaði á mögnuðum ferli sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Erling Haaland fer af stað með látum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY þarna á körfuboltaleiki í fyrsta skipti og það var ógleymanlegt.“ Ótrúleg stemming myndaðist í kringum KR­liðið á þessum árum og þær minningar sitja eftir hjá Brynjari. „Það var ógleymanlegt að koma í þessa stóru leiki og stúkan var full þegar þú varst að hita upp. Það var geggjað að labba inn og sjá alla vini sína vera mætta og fá sér að borða löngu fyrir leik. Það er ógleymanlegt í fjórða leik árið 2007 gegn Njarðvík þegar það lak niður sviti með öllum veggjum, loft­ ræstingin hafði ekki undan. Það er frábært að hafa upplifað þetta, allur Vesturbærinn og allir í raun voru að fylgjast með. Það eru forréttindi að hafa upplifað alla þessa úrslitaleiki, það eru fáir sem fái að upplifa þessi augnablik.“ Vildi hætta Í KR Þegar íþróttafólk tekur ákvörðun um að hætta keppni kemur oft tómarúm í líf þeirra sem Brynjar er vel meðvitaður um. „Það tala allir um það, þú færð ekki þessa keppni í öðru. Það er erfitt að búa hana til í þessu daglega lífi, en það er meiri tími til að huga að einhverju öðru. Maður getur prófað eitthvað nýtt, það fer rosalegur tími í þetta. Maður verður að vera sáttur við að hafa upplifað þetta frekar en að horfa í eitthvað annað.“ Eldri KR­ingar hafa á undan­ förnum árum endað feril sinn í Val og nægir þar að nefna Jón Arnór Stefánsson og Pavel Ermolinskij. Brynjar íhugaði ekki að spila þar undir stjórn Finns Freys Stefáns­ sonar fyrrverandi þjálfara KR. „Ég hef ekki leitt hugann að því, maður er fyrst og fremst KR­ingur. Mér finnst réttast að hætta í KR og vera sáttur við það. Ég skildi alveg þegar Pavel fór í Val, hann þurfti áskorun. Það er sárara að sjá Kristófer Acox á hátindi ferilsins þarna hinum megin. Þetta voru sex ár í röð hjá okkur sem við vinnum, það er meira en að segja það að halda í hungrið. Ég skildi alveg Pavel að fara en það er erfiðara að sjá Kristófer í Vals­ treyju að hampa titlum, hann er enn ungur og ferskur.“ Hið daglega líf hefur tekið við hjá Brynjari sem ræðir þó íþróttir daginn út og inn. „Ég byrjaði að vinna hjá DHL í janúar og vinn með miklum íþróttamönnum, fyrr­ verandi körfubolta­ og fótbolta­ mönnum. Það er mikið spjallað um íþróttir, það er gott að vera kominn hingað inn,“ segir Brynjar sáttur við ákvörðun sína. n Hörður Snævar Jónsson hordur @frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.