Fréttablaðið - 30.08.2022, Page 44

Fréttablaðið - 30.08.2022, Page 44
MTV VMA-verðlaunin voru afhent um helgina með til- heyrandi glamúr, gleði og stjörnufans enda mörg til kölluð en flest þurftu þó að standa í skugganum af Nicki Minaj sem hafði ekki mikið fyrir því að stela skærasta bjarma sviðsljóssins þegar hún mætti til leiks eftir fjögurra ára hlé. toti@frettabladid.is Flestar skærustu stjörnur sam- tímans og þau sem frekust eru til fjörsins í slúðurpressunni léku við hvurn sinn fingur í sínu fínasta og oftar en ekki f legnasta pússi þegar MTV-tónlistarmyndbandaverð- launin voru afhent í New Jersey í Bandaríkjunum á sunnudagskvöld. Gamalir rapphundar og fasta- stjörnur á MTV-himninum létu sig ekki heldur vanta en að f lestum öðrum ólöstuðum reyndist Nicki Minaj sérlega auðvelt að stela skær- asta bjarma sviðsljóssins þegar hún tók við brautryðjendaverðlaunun- um, Video Vanguard Award, sem kennd eru við Michael Jackson. Allra augu voru á Minaj sem stal senunni eins og henni einni er lagið með fettum, brettum, sígildu „twerki“ og „epísku súludansaugna- bliki“ eins og CNN orðar það þegar hún flutti syrpu af smellum sínum áður en hún tók við viðurkenn- ingunni sem má teljast sú eftirsótt- asta og hæst skrifaða á hátíðinni en meðal fyrri verðlaunahafa eru til dæmis Jennifer Lopez, Britney Spears, Justin Timberlake, Rihanna, Bítlarnir, Janet Jackson og Mad- onna. Verðlaunin eru veitt tónlistar- fólki fyrir framúrskarandi framlag og langvarandi áhrif á tónlistar- myndbandagerð og poppkúltúrinn og Minaj lét nokkurra áhrifavalda sinna getið í þakkarræðu sinni; Kanye West, Lil Wayne, Britney Spears, Rihanna og Drake. Atriði Minaj markaði endurkomu hennar á svið MAT-verðlaunanna eftir fjögurra ára fjarveru en þar tróð hún síðast upp 2018. Þá var Minaj einnig sýndur sá aukasómi að hún var fengin til þess að kynna hátíðina ásamt Jack Harlow og LL Cool J. n Barbie-bleik Nicki Minaj stormaði á sviðið í uppreimuðum stígvélum þegar hún „stútaði“ senunni með sígildum leik- fimiæfingum innan um fáklædda dansara áður en hún tók við hinni eftirsóttu viðurkenningu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Lil Nas X fór ekki fram hjá neinum enda sterkur leikur að vísa svona í Svartar fjaðrir Davíðs Stefánssonar. Avril Lavigne var ógeðslega töff og massakúl. En ekki hvað? Nicki Minaj hirti senuna með epískum súludansi Taylor Swift er drottning og bar sig sem slík á hátíðinni þar sem hún landaði verðlaunum fyrir myndband ársins. Vinir okkar í Euro- vision-gleðinni og sigurvegararnir þar, Måneskin, þurftu ekki 12 stig til þess að hljóta Alt-verð- launin. Lizzo er ferlega góð og krækti verðskuldað í styttu fyrir About Damn Time. Tími til kominn, kunna einhverjir að segja. Piparsveinar í góðu flippi. Undrið Flea og fé- lagar í Red Hot Chili Peppers fengu verð- laun sem besta rokkið. Alltaf eins, alltaf ferskur. Snoop Dogg er meðidda. LL Col J sem löngum var á leið- inni til Cali var hress í New Jersey og var kynnir ásamt Nicki Minaj og Jack Harlow. 20 Lífið 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.