Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 32
Norrœn jól
Frá stúdentamóti
Norrœna félagsins að
Laugarvatni.
í Stokkhólmi á næsta ári til þcss að kynna íslenzka menningu og óskaði samvinnu
og aðstoð héðan. Tók félagsstjórnin þegar að undirbúa þátttöku íslendinga og
fékk til þess stuðning ríkisstjórnarinnar. Framkvæmdastjóri vikunnar af íslands
hálfu var ritari félagsins. Fór héðan allmargt manna til að koma fram fyrir hönd
íslands í Stokkhólmi. Fyrirlestra um land og lýð héldu þeir Ásgeir Ásgeirsson,
þáverandi forsætisráðherra, Sigurður Nordal prófessor, Einar Arnórsson prófessor,
og Guðmundur Finnbogason landsbókavörður. Rithöfundarnir Gunnar Gunnars-
son, Davíð Stefánsson, Halldór Kiljan Laxness og Kristmann Guðmundsson fluttu
kafla úr verkum sínum. Tónlist fluttu Páll Isólfsson, Haraldur Sigurðsson og María
Markan. Enn fremur var flokkur íþrótta- og glímumanna undir stjórn Jóns Þor-
steinssonar íþróttakennara. Sýndar voru myndir eftir 13 íslenzka málara.
Það mun ekki ofmælt, að íslenzka vikan í Stockhólmi hafi á marga lund breytt
viðhorfi frændþjóðanna til íslands og íslendinga.
2. Námskeið fyrir stúdenta í íslenzku var haldið dagana 16.—22. júní
1936 að Reykholti og Laugarvatni. Sóttu það 35 stúdentar frá Norðurlöndum að
Finnlandi undanskildu. Síðar hefur það orðið fastur siður að halda slík stúdenta-
námskeið á vegum Háskóla íslands. En Norræna félagið reið á vaðið.
Sumarið 1939 var haldið kennaramót að Laugarvatni á vegum Norræna félags-
ins. Þátttakendur voru 53, þar af 10 danskir, 4 finnskir, 15 norskir, 9 sænskir og
15 íslenzkir. Voru allmargir fyrirlestrar haldnir á námskeiði þessu og sögustaðir
skoðaðir.
Auk þess hefur félagið tekið á móti hópferðum til Islands. Árið 1938 kom
30