Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Side 63
Norrœn jól
Stokkhólmi, gagngert til þess að flytja oss list sína, þá Jussi Björling ópei-usöngvara og
undirleikara hans Harry Ebert.
Herr hovsángare Björling det ar oss en stor gládje att ha Eder hár som vár gást.
Vi ha ju alla lánge kánt Eder och beundrat, fastán vi nu för första gángen fátt den gládjen
att personligen bliva med Eder bekant. Herr Björling! vi bjuda Eder innerligt vál-
kommen. Ni har ju reden med Eder hárlige stámma och stora charm sjunget Eder rakt
in i vára hjártan.
Herr Ebert! Det gláder mig innerligen att nu för andra gángen, pá ett ár, fá hálsa
Eder válkommen till várt avlágsna Iand. Varen báda hjártligt válkomna.
Það er eins og vér vitum, gamall siður og góður, að staldra við á tímamótum, líta til
baka um farinn veg, gleðjast yfir því sem vel hefur tekizt og halda hátíð, en gera sér þó
jafnframt grein fyrir því sem miður hefur farið, stíga síðan á stokk og strengja þess heit
að halda áfram á þeirri braut sem til gæfu og gengis megi verða. Þetta gerum við í
kvöld, er vér minnumst 30 ára starfs Norræna félagsins á íslandi. Það er oss ánægjuefni
að í kvöld er meðal gesta vorra fyrsti formaður félagsins og hvatamaður að stofnun þess,
Matthías Þórðarson fomminjavörður og cinnig síðasti formaðurinn, já, nú að segja næst
síðasti formaður félagsins, Stefán Jóhann Stefánsson fyrrverandi forsætisráðherra er var
formaður þess í 15 ár, eða hálft æviskeið félagsins. Um leið og ég býð ykkur innilega vel-
komna hér í kvöld vil ég flytja ykkur þakkir fyrir langt og heillaríkt starf í þágu félagsins
og jafnframt persónulegar þakkir mínar fyrir langt og mjög ánægjulegt samstarf. Tveir
aðrir ágætismenn hafa verið formenn félagsins, þeir Klemens Jónsson fyrrverandi ráð-
herra, sem látinn er, og prófessor Sigurður Nordal sendiherra í Kaupmannahöfn. Báðum
ber þeim þakkir.
Eins og kunnugt er, er tilgangur Norræna félagsins að treysta og efla samhug og
samstarf hinna norrænu bræðraþjóða, sem sakir skyldleika og samstofna menningar, eru
tengd sterkum skyldleikaböndum. En bönd menningar og vináttu þarf jafnan að auka
og treysta.
Verkefni Norræna félagsins er að treysta sem bezt þau bönd vináttu, bræðralags og
menningar, er tengja Norðurlandaþjóðh-nar saman svo að þau bönd treýstist, verði órjúf-
andi í nútíð og framtíð.
Vænti ég þess að vér öll, sem hér erum samankomin, séum reiðubúin til þess að taka
höndum saman um að leggja hugsjónamálum félagsins það lið er vér megum, hver og
einn af drengskap og dug.
Verið öll velkomin!“
Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, sýndi félaginu þann heiður að vera gestur
þess og flytja ávarp. Aðrir gestir félagsins voru Steingrímur Steinþórsson, forsætisráð-
herra, Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrv. forsætisráðherra,
sendifulltrúar Norðurlanda, Matthías Þórðarson, fyrrv. þjóðminjavörður og fyrsti for-
maður félagsins, Jussi Björling, óperusöngvari og Harry Ebert undirleikari hans. Bæður
61