Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 39
Norrœn jól
Norska skáldið
Nordal Grieg las IjóS sín
á vegum félagsins
í hátíSasal Háskólans
22. júní 1942.
stofnað hlutafélag (1945), Norræna heimilið h.f., og er Norræna félagið stærsti
hluthafi í því. — Sumarið 1946 var kjallari hússins steyptur, en um þær mundir
var Fjárhagsráð stofnað, og neitaði það um fjárfestingarleyfi til framhalds bygg-
ingarinnar. Byggingarkostnaður hefur og mjög hækkað síðan og hefur hvorki tekizt
að útvega fé til þess að ljúka byggingunni né heldur leyfi til þess að halda áfram.
25 ára afmælis Norrænu félaganna á Norðurlöndum var minnzt með
samkvæmi að Hótel Borg hinn 3. marz 1944. Ríkisstjóri íslands, herra Sveinn Björns-
son, var meðal gesta þar, og var hann gerður að heiðursfélaga Norræna félagsins við
það tækifæri og sæmdur merki félagsins úr gulli. Er Sveinn Björnsson forseti eini
maðurinn, sem gerður hefur verið heiðursfélagi Norræna félagsins. Meðal annarra
gesta, er voru í hófi þessu, var forsætisráðherra, dr. Björn Þórðarson, og sendiherrar
Norðurlanda. Fluttu þeir ræður og undirstrikuðu gildi norrænnar samvinnu. Tómas
Guðmundsson flutti frumorkt kvæði, sem samið var í tilefni afmælisins.
Eftir ófriSinn,
hefur starfsemi félagsins smám saman færzt í fyrra horf, Samgöngur hafa
orðið hraðari og tíðari, en gjaldeyrisskortur dregið nokkuð úr kynnisferðum á
báða bóga.
37