Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Síða 62
Norrœn jól
ári verða einnig veittir styrkir við handavinnuskúla í Svíþjóð. Þeir nemendur, sem fóru í
ár, eru þessir:
Á lýðháskóla í Svíþjóð fóru: Anna Sigurðardóttir, Stykkishólmi, til Sigtuna lýðháskóla,
Bára Þórarinsdóttir, Garði, til Tárna, Guðrún H. Thorsteinsen, Reykjavík, til Gripsholm,
Gunnar Skúlason, Reykjavík, til Katrineberg, Helga Vilhjálmsdóttir, Reykjavík, til
Brunnsvik, Hjördís Þorleifsdóttir, Reykjavík, til Malung og Þórólfur Friðgeirsson, Stöðvar-
firði ,til Kungálv.
Á húsmæðraskóla í Svíþjóð: Anna Borg, Reykjavík, til Jára, Anna Óskarsdóttir,
Reykjavík, til Eslöv, Ingveldur Valdimarsdóttir, Akureyri, til Tomelilla, Sesselja Kristins-
dóttir, Reykjavík, til Gamleby, Karólína Jónsdóttir, Vestmannaeyjum, til Bollnás og Sigur-
laug Þórisdóttir, Reykjavík til Gamleby.
Á bændaskóla í Svíþjóð: Jón Leví Bjamason, Reykjavík, til Hörby og Kristinn Bjöms-
son, Akureyri, til Skurup.
Á lýðháskóla í Noregi: Björn Pálsson, Skcggjastöðum, Fellahr., til Möre og Ingólfur
Þórarinsson, Borgarfirði, til Toten Fylkeskole.
Á húsmæðraskóla í Danmörku: Erna Aradóttir, Patreksfirði, Elín Sigurðardóttir,
Reykjavík, Olga Halldórsdóttir, Reykjavík og Sólveig Axelsdóttir, Reykjavík.
Á lýðháskóla í Finnlandi: Gísli Svanbergsson, ísafirði, til Borgá.
Jussi Björling, hinn heimsfrægi, sænski óperusöngvari, kom til fslands 5. nóv.
s. 1. á vegum Norræna félagsins og hélt hér 2 söngskemmtanir, 6. og 10. nóv. og var hinni
síðari útvarpað. Uppselt var í bæði skiptin, þótt aðgöngumiðamir yrðu óhjákvæmilega
dýrir, þar sem allur ágóði af annari söngskemmtuninni rann í Bamaspítalasjóð Hringsins.
Þótti koma Björlings einn hinn merkasti viðburður í tónlistarlífi landsins lun langt skeið.
Hinn 8. nóv. hélt félagið hóf í Þjóðleikhúskjallaranum í tilefni af 30 ára afmæli
þess. Formaður félagsins, Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, setti hófið með eftir-
farandi ræðu:
„Herra Forseti íslands!
Hæstvirtur forsætisráðherra!
Virðulegu fulltrúar Norðurlanda!
Herra borgarstjóri!
Virðulegu gestir!
Það er mér mikið gleðiefni, í nafni Norræna félagsins, að bjóða yður öll hjartanlega
velkomin til þessa hófs. Sérstaklega bjóðum vér velkominn forseta íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, og frú hans, en forsetinn hefur verið í félaginu nær því frá upphafi og heiðrar
það nú með kom sinni hingað sem Forseti íslands.
Meðal gesta vorra höfum vér tvo gesti, er komið hafa um langan veg, alla leið frá
60