Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 34

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 34
Norrœn jól 7. Endurskoðun kennslubóka í sögu og landafræði. Það hefur lengi verið vitað, að Norðurlandaþjóðum hefur borið allmikið á milli um einstök sögu- leg atriði og jafnvel landfræðileg einnig. Því var á fulltrúafundi í Stockhólmi 1932 ákveðið, að Norrænu félögin skipuðu nefndir til að kanna kennslubækur í þess- um greinum og fá numið úr þeim eða löguð þau atriði, sem helzt væri ágrein- ingur um. Hefur allmikil vinna verið lögð í þetta og niðurstöður prentaðar sem nefndarálit. 8. Fulltrúaráðsfundur Norrænu félaganna var haldinn í Reykjavík 22.— 27. júlí 1939. Voru mættir fulltrúar allra Norðurlanda sem hér segir: Frá Dan- mörku: Nationalbankdirektör C. V. Bramsnæs, framsögumaður; Borgmester dr. phil. Ernst Kaper, Direktör Chr. H. Olesen og Oberstlöjtenant Helge Bruhn, ritari. Frá Finnlandi: Kanslichef K. Antell og Kari Lavonius. Frá Noregi: Harald Grieg forstjóri, J. L. Mowinckel forstæisráðherra, Magnús Nilsen stórþingsforseti og H. N. Bache. Frá Svíþjóð: Kammarráttsrád C. Carlesen, rektor Harald Elldin og Karl Stenberg ritari. Af Islands hálfu voru Stefán Jóh. Stefánsson utanríkis- ráðherra, Steindór Steindórsson menntaskólakennari, Vilhj. Þ. Gíslason skólastjóri og Guðlaugur Rósinkranz, ritari Norræna félagsins. Stjórn Norræna félagsins tók á móti fulltrúunum, er þeir stigu af skipsfjöl að morgni dags hinn 22. júlí. Hófst þegar fundur í Oddfellowhúsinu og stóð til kvölds með litlum hvíldum. Þá var setið miðdegisboð bæjarstjórnar Reykja- víkur. Daginn eftir bauð Norræna félagið gestunum til Þingvalla. Hádegisverður var snæddur í Valhöll, en á heimleið var hitaveita Reykjavíkur skoðuð undir leiðsögn Péturs Halldórssonar borgarstjóra. Einnig var gestunum boðið austur að Geysi og Gullfossi. Hinn fjórða dvalardag var fundi haldið áfram og lokið nndir miðaftan, en um kvöldið hafði Norska Ameríkulínan boð inni fyrir íslenzku fulltrúana og allmarga gesti aðra að tilhlutun hinna erlendu fulltrúa Norræna félagsins. Daginn eftir, miðvikudaginn 26. júlí, flutti J. L. Mowinckel erindi í Iðnó á vegum félagsins. Kallaði hann það „Frá Versölum til Múnchen“ og fjall- aði um stjórnmál í Norðurálfu frá friðargerðinni í Versölum 1919 til samning- anna í Múnchen við Hitler haustið 1938. Var húsfyllir áheyrenda, en að loknu crindi þakkaði Ólafur Thors atvinnumálaráðherra hinum virðulega gesti erindið og komuna. Um kvöldið, kl. 22, fóru fulltrúarnir með „Stavangerfjord“ til Akur- cyrar, og tók Norræna deildin þar á móti þeim og sýndi þeim bæinn og nágrennið. Frá Akureyri hélt skipið beint til Noregs. 32
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.