Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Síða 61

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Síða 61
Norrœn jól laugur Rósinkranz, og ritari, Sveinn Ásgeirsson. Rædd voru mörg mikilvæg mál, sem varða norræna samvinnu og samskipti, og m. a. voru gerðar ýmsar ályktanir, sem senda skyldi ríkisstjórnum allra Norðurlandanna, og fara þær hér á eftir: „FuIItrúafundurinn fagnar því, að vegabréfaskyldan hafi loks verið afnumin á Norður- löndum. Þar með hefur verið fullnægt kröfu, sem Norrænu félögin hafa gert á hverju ári eftir styrjaldimar síðustu. Fulltrúafundurinn lítur aðeins á þetta sem fyrsta skrefið í áttina til fulls ferðafrelsis á Norðurlöndum og skorar á ríkisstjórnir og þing landanna að innleiða hið fyrsta þá grundvallarreglu, að flutningur farangurs innan Norðurlandanna sé frjáls og engar hömlur séu lagðar á gjaldeyrisveitingar til ferðalaga innan Norðurlanda. Jafnframt skorar fulltrúafundurnn á stjórnarvöldin að hrinda í framkvæmd tillögu þingnefndarinnar um fullkomið, norrænt vegabréfasamband með því að takmarka eftirlit með ferðamönnum við hin ytri mörk Norðurlandanna. Fulltrúafundurinn beinir þeirri áskorun til stjórnarvaldanna, að afnumin sé skylda norrænna ríkisborgara til að hafa atvinnu -og dvalarleyfi, og að þær reglur, sem mæla svo fyrir, að dvöl norrænna gesta á einkaheimilum sé tilkynnt lögreglunni, séu numdar úr gildi. Fulltrúafundurinn lýsir ánægju sinni yfir því, að Norðurlandaráðið hafi verið stofnað, en það er mjög merkur áfangi í sögu norrænnar samvinnu. Norrænu félögin eru þess fullviss, að Norðurlandaráðið muni stuðla stórum að norrænni samvinnu á öllum sviðum til hagsbóta fyrir Norðurlandaþjóðirnar. Með hliðsjón af þeirri viðleitni til efnahagslegrar samvinnu, sem ríkir um gjörvalla Evrópu, verður nauðsyn norrænnar efnahagssamvinnu æ ljósari. Fulltrúafundur Norrænu félaganna beinir því þeim tilmælum til ríkisstjórnanna, að þær efli svo sem bezt má verða þá viðleitni til norræns efnahagssamstarfs, sem þegar hefur verið sýnd. Fulltrúafundur Norrænu félaganna vill vekja athygli ríkisstjórnanna enn á ný á því, hversu mikilvægt mál það sé, að stefnt sé að norrænu atvinnufrelsi með veitingu gagnkvæmra atvinnuréttinda, en fulltrúafundur Norrænu félaganna tók það mál upp 1951, um leið og bent sé á það, að meðal iðnaðarmanna á Norðurlöndum ríki mikill áhugi 1 þessu efni. Fulltrúafundurinn beinir þeirri áskorun til ríkisstjórnanna, til framdráttar norrænni samvinnu á nýju sviði, að þær komi á fót póst- og ritsímasambandi Norðurlanda, þar sem samræmd séu að fullu burðargjöld og skeytagjöld". S v o s e m undanfarin ár hefur Norræna félagið annast milligöngu um veitingu náms- styrkja á Norðurlöndum, en sú starfsemi hefur aldrei verið jafnvíðtæk og á þessu ári, þar sem 22 nemendur fóru á vegum félagsins til náms í hinum Norðurlöndunum fjórum. Nægja styrkirnir til þess að greiða allan námskostnaðinn eða meginhluta hans. Nú var ekki aðeins um lýðháskóla að ræða og búnaðarskóla, heldur og húsmæðraskóla, og á næsta 59

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.