Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 51

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Qupperneq 51
Norrœn jól samanburði við þessa stórveldisrisa hafa Norðurlönd virzt vera dvergríki. En þeim, sem meta allt eftir stærð, má benda á það, að í heild eru Norðurlönd á ýmsan máta jafnoki stórveldis, enda þótt þau séu ekki stór hvert um sig. Satt er það, að samanlögð íbúatala Norðurlanda er ekki nema um 18 milljónir. En verðmæti samanlagðs útflutnings þessara landa var árið 1947 um 33 milljarðar ísl. króna (samkv. núverandi gengi), og slagar það hátt upp í útflutning Frakka, sem þetta ár var um 36 milljarðar króna. Kaupskipastóll Norðurlanda var í fyrra um 12 millj. tonn, þrisvar sinnum stærri en Frakklands og röskur helmingur af kaup- skipaflota Breta. Norðurlönd framleiða um þriðjung heimsframleiðslunnar af timbri og pappírsmassa. Skipasmíðar þeirra eru á stórveldismælikvarða. Svona mætti áfram telja. Það er þó meira um vert, að andleg afköst þessarar þjóðaheildar þola saman- burð við hvaða stórveldi sem er, og hefur svo verið nú síðustu aldirnar. Lönd, sem hafa fóstrað Linné, Kirkegaard, H. C. Andersen, Ibsen og Björnson, Berzelius, Abel og Bohr, Grieg og Sibelius, Munch og Nansen, þurfa ekki að láta í minni pokann fyrir neinu stórveldi. Og svo að aftur sé talað í tölum, má nefna, að Norður- löndin hafa fengið 10 af 45 bókmenntaverðlaunum Nobels, sem veitt hafa verið, eða næstum fjórða hvert. Það stórveldi, sem næst kemur, Frakkland, hefur fengið 7, Stóra Bredand og Bandaríkin fjögur hvort um sig. Þótt taka verði tillit til þess, að það eru Norðurlandabúar sjálfir, sem úthluta þessum verðlaunum, eru þetta þó tölur, sem tala sínu máli. Norðurlöndin hafa og hlotið nær tíundu hver Nobels- verðlaun í læknisfræði, eðlisfræði og efnafræði. Þeim, sem telja íþróttir alls aðal, má á það benda, að í þeim ólympsku leikj- um, sem haldnir höfðu verið fyrir 1950, að vetrarleikjum meðtöldum, höfðu Norður- löndin hlotið samanlagt 1120 stig (eru þá reiknuð þrjú stig fyrir gullverðlaun, tvö fyrir silfurverðlaun og eitt fyrir bronsverðlaun), og var aðeins eitt stórveldi nokkru hærra að stigatölu, nfl. Bandaríkin, með 1524 stig. Stóra Bretland hafði hlotið 677 stig, Frakkland 504 stig og Þýzkaland 468 stíg. Það þarf því ekki að fylgja því nein vanmáttarkennd að teljast til Norður- landa. Satt er það að vísu, að þau eru ekki eins grá fyrir járnum og stórveldin, þau eiga ekki eins myndarleg herskip, og þau eiga enga kjarnorkusprengju. En það hefur lengi verið aðal íslendingsins að látast ekki um þá, sem bíta í skjaldar- rendur. Menning frændþjóðanna á Norðurlöndum er samgróin okkar menningu. Rit- 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.