Þingtíðindi - 01.12.1947, Blaðsíða 20
6. Markviss framfarastefna í félagsmálum og menn-
ingarmálum.
ÁLYKTUN
um ráðstafanir til lausnar á vandamálum dýr-
tíðarinnar til að tryggja og auka framleiðslu
þjóðarinnar og til bættrar afkomu almennings
Með myndun núverandi ríkisstjómar, tóku fjand-
menn nýsköpunarstefnunnar við völdum 1 landinu.
Banka- og verzlunarvaldið, sem jafnan höfðu
reynzt nýsköpuninni hættulegust náðu þá enn sterk-
ari tökum en áður á atvinnu- og fjárhagsmálum
þjóðarinnar.
Sú afturhaldssama fjármálastefna, sem upp hef-
ur verið tekin, hefur ekki aðeins stöðvað áfram-
hald nýsköpunarinnar, heldur hefur hún einnig
lamað allt atvinnulíf þjóðarinnar og ógnar því nú
með algerri stöðvun. Fjármálastefna bankanna og
boðskapur ríkisstjórnarinnar um hrun og nauðsyn
þess að rýra lífskjör almennings, liggur eins og
mara á þjóðinni. Það er því brýn nauðsyn að tafar-
laust verði gerðar víðtækar ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir þær afleiðingar, sem framhald
þeirrar stefnu, sem nú er fylgt, myndi leiða yfir
þjóðina. Þær ráðstafanir sem gera þarf, verða að
fela í sér eftirfarandi meginatriði:
1. Nota verður framleiðslugetu þjóðarinnar til hins
18