Þingtíðindi - 01.12.1947, Side 27
3. Landbúnaðarvörur.
Vísitölugrundvöllur landbúnaðarafurða verði
endurskoðaður og miðaður við heilbrigðan bú-
rekstur við skilyrði, sem teljast mega viðunandi,
á núverandi tækni- og þróunarstigi landbúnað-
arins. Kjötverð sé miðað við bú, sem er sæmi-
lega vel fallið til sauðfjárræktar og mjólkurverð
á sama hátt við bú, sem hefur viðunandi skilyrði
til mjólkurframleiðslu og aðstöðu til að koma
vörunni á markað. Jafnframt verði gerðar
gagngerðar ráðstafanir til stuðnings smábænd-
um með það mark fyrir augum að auka svo
tækni, vélakost, samvinnu og samstillt skipu-
lögð vinnubrögð í landbúnaðinum, að allir þeir
sem landbúnað stunda geti notið mannsæmandi
lifskjara, er séu fullkomlega sambærileg við
aðrar vinnandi stéttir, samtimis því, sem verð-
lag geti farið lækkandi sakir stöðugt lækkandi
framleiðslukostnaðar.
4. Ráðstafanir gegn braski.
Hafizt verði handa með margvíslegum ráðstöf-
unum til að koma í veg fyrir brask með fast-
eignir og önnur verðmæti, sem svo mjög hefur
orðið til að trufla allt verðlag og heilbrigt við-
skiptalif í landinu. Aflað verði upplýsinga um
gjaldeyriseignir Islendinga erlendis og leitað
samkomulags við hlutaðeigandi rikisstjómir
um afhendingu þeirra.
25