Þingtíðindi - 01.12.1947, Side 32
konar vörum og tækjum, sem ekki snerta beint vísi-
töluútreikninginn.
Einnig ber þess að gæta, að lækkun tollanna og
þar með lækkun vísitölunnar, hefur í för með sér
mikla lækkun á útgjöldum ríkisins á fjölmörgum
sviðum, svo sem vinnulaunagreiðslum og ýmiskonar
reksturskostnaði.
1943 var tekjurýrnun ríkissjóðs vegna afnáms
tolla á þessum sömu vörutegundum ekki nema 8,5
millj. kr., en sparnaður vegna lækkaðra útgjalda um
4 millj. og raunverulegur tekjumissir ríkissjóðs því
aðeins 4,5 millj. kr. Þingmenn Sósíalistaflokksins
munu gera nákvæma grein fyrir hversu miklu þetta
nemur nú í sambandi við flutning í frumvarps þeirra
á Alþingi. Allt bendir til að útkoman fyrir ríkissjóð
af þessum ráðstöfunum verði mun hagstæðari nú.
1 tillögunum er þó gert ráð fyrir, að ríkissjóði
verði séð fyrir tekjum í stað tollanna. Nokkuð
myndi koma í móti með ágóða ríkissjóðs af nokkr-
um álagningarháum vörum, sem nú rennur í vasa
milliliða. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að ríkissjóði
verði séð fyrir auknum tekjum, að svo mik-lu leyti,
sem þörf krefur, með hækkuðum sköttum á stór-
eignum og hátekjum og ríkisrekstri fyrirtækja, sem
gefa mikinn arð.
Ein sjálfsagðasta og öruggasta leiðin til lækk-
unar á dýrtíðinni er gjörbreyting á skipulagi verzl-
unarmála.
Sú skipun sem ríkt hefur um innkaup á vörum til
landsins og um heildsöluverzlun, er svo kostnaðar-
30