Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 33

Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 33
söm og óhagkvæm að veltiár þarf til að halda slíku uppi. Nú annast 222 heilsöiufyrirtæki vöru-innkaup þjóðarinnar. Þessi fyrirtæki hafa flest marga starfs- menn og sum svo tugum skiptir. Þau binda ótrú- lega mikið húsnæði og festa mikið fjármagn fram yfir það sem eðlilegt mætti telja. Á vegum þessara fyrirtækja ferðast mörg hundr- uð manna út um allan heim. Kostnaðurinn við inn- kaupin verður gífurlegur en við hann bætist svo okurgróði heildsalanna. Það óhagstæðasta og hættu legasta fyrir þjóðina við þetta fyrirkomulag, er þó það, að innkaupin eru oft og tíðum vegna sérhags- muna heildsalanna gerð óhagkvæmari en þörf er á og oft er gjaldeyri beinlínis óleyfilega komið úr landi undir yfirskyni innkaupanna til landsins. Þannig er gjaldeyri eytt að óþörfu og jafnvel stolið úr bönkum þjóðarinnar vegna núverandi verzlunarskipulags. Með samræmingu á vöruinnkaupum til landsins má spara mikið fé. Innkaupin yrðu hagkvæmari, kostn- aður allur minni, milliliðagróðinn gæti horfið og þannig mætti lækka vöruverðið og dýrtíðina í land- inu. Ef ríkið sjálft hefði innkaupin í sínum hönd- um, eða ef innkaupin væru í höndum fárra aðila með eðlilegu ríkiseftirliti, væri auðvelt að tryggja hagstæð innkaup og koma í veg fyrir óleyfilega notkun gjaldeyris og gjaldeyrisflótta úr landi. Að þessu miða tillögur Sósíalistaflokksins. Telja má víst að væru þessar tUl. framkvæmdar í verzlunarmálum mætti þannig lækka verðlagið og vísitöiuna um 20—30 stig. 31

x

Þingtíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi
https://timarit.is/publication/1694

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.