Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 36

Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 36
Noregi. Þrjú olíufélög annast olíusöluna hér á landi. þau byggja upp þrefalt olíukerfi og margfalda þannig eðlilegan stofnkostnað olíusölunnar. Og enn liggja fyrir beiðnir um gífurlega fjárfestingu þess- ara aðila, sem algjörlega væri óþarft að efna til, ef einn aðili hefði olíusölumálin með höndum. Olíufélögin hafa rakað saman gróða og gera það enn. Ríkið á því að taka olíuverzlunina í sínar hendur og þannig má lækka olíuverðið til útvegsins. Að verð á beitu og veiðarfærum lækki Síld til beitu kostar nú kr. 1,40 pr. kg. Það verð er miðað við kr. 0,70 kg. fyrir nýja síld upp úr reknetabát. Nú er megnið af síldinni sem fryst er, keypt inn á kr. 0,40 til 0,50 kg. Það er því auðvelt og sjálf- sagt að lækka í verði frysta síld til beitu. Veiðarfæri til þorskveiða vélbátaútvegsins eru framleidd og seld hér aðallega af einu fyrirtæki. Veiðarfæraverðið er tvímælalaust hægt að lækka og virðist sjálfsagt að samtökum útvegsmanna sé gef- inn köstur á að reka veiðarfæragerðina og hafa með höndum alla verzlun veiðarfæra og útilcka þar með óþarfa milliliði. Að auk þess, sem hér hefur verið talið verði svo lækkuð útgjöld útvegsins vegna vátrygginga, við- haldskostnaðar, afborganir lækkaðar með lengdum lánstíma o. fl. 34

x

Þingtíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þingtíðindi
https://timarit.is/publication/1694

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.