Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 40

Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 40
atvnnuveganna og örbirgðar verkalýðs- og milli- stétta, ef ekki verður að gert í tíma. Þessar beinu og óbeinu árásir á lífskjör verka- lýðsins voru með öllu vonlausar, ef forusta Alþýðu- flokksins hefði ekki léð þeim allt sitt lið, tekið á sig ábyrgð á þeim og beinlínis gengið fram fyrir skjöldu afturhaldsins svo sem við setningu tollalaganna, í afstöðu sinni til hagsmunabaráttu verkalýðsins sl. sumar, þegar Alþýðuflokkurinn stimplaði verkföll sem „glæpsamlegt athæfi" o. s. frv. Jafnframt hefur forysta Alþýðuflokksins í banda- lagi við önnur afturhaldsöfl unnið sleitulaust að tilraunum til að kljúfa heildarsamtök verkalýðsins og heldur þeim tilraunum áfram af síauknu kappi. Tilgangur þessara klofningstilrauna er sá að gera verkalýðssamtökin ófær um að mæta þeim stórfelldu árásum, sem ríkisstjórn stórgróðamannanna er nú að undirbúa á lífskjör allra launþega í landinu. Um leið og þingið fagnar þeirri frábæru einingu og samheldni, er verkamenn sýndu sl. sumar í víð- tækum og langvarandi vinnudeilum, vill það vekja sérstaka athygli verkalýðs til lands og sjávar á þeirri staðreynd, að gagnvart þessari voldugu ein- ingu launþeganna bilaði áróðursvél afturhaldsins með allan sinn blaðakost, forréttindi um fundahús, útvarp o. s. frv. Hin breytta aðstaða verkalýðshreyfingarinnar leggur henni á herðar þrjú meginverkefni: 1. Að sameina öll samtök launþega til órofa varnar 38

x

Þingtíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi
https://timarit.is/publication/1694

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.