Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 46
II. Öflun fiskiskipa.
1. Keyptir verði til 1950 25—30 togarar til við-
bótar þeim, sem þegar hafa verið keyptir. Bæjarfé-
lög og sveitarfélög, sem vilja koma á togaraútgerð
hjá sér og þarfnast fjárhagslegrar aðstoðar, skulu
sitja fyrir um kaup á skipunum. Bæjar- og sveitar-
félög eiga þess kost að fá lán fyrir öllu kaupverði
skipanna.
2. Aflað verði skipa, sem til þess eru fallin að
stunda á þeim selveiðar frá Islandi annað hvort með
því, að ríkið reki veiðarnar sjálft eða styðji félög
eða einstaklinga til þess fyrst um sinn og geri auk
þess ráðstafanir, til þess að hægt sé að vinna úr
aflanum.
3. Ríkið láti byggja hvalvinnsluskip og hvalbáta
til hvalveiða á suðurhöfum með tilliti til þess, hve
hagkvæmt er að hafa hvalfeiti til blöndunar á síld-
arfeiti til smjörlíkisfrmleiðslu.
III. Hafnarmannvirki og viðlegupláss
fyrir bátaútveginn:
1. Lögð verði megináherzla á, jafnframt því að
haldið verði áfram að bæta aðstöðu fiskiflotans til
löndunar og skapa honum nauðsynlegt öryggi í að-
al viðlegu- og framleiðsluhöfnum, að hraða
sem mest byggingu hafna á þeim stöðum, sem hægt
er að stunda vetrarvertíðarveiðar frá, með það fyrir
44