Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 48
2. Þegar verði hafin bygging rannsóknarstöðvar
fyrir fiskiðnað, sem þegar hefur verið lagt fé til.
Ályktun um byggingarmál
I.
6. þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins telur að knýjandi nauðsyn beri til að koma
viðunandi skipulagi á byggingamál þjóðarinnar.
Til að leysa það verkefni þarf fyrst og fremst að
semja áætlanir um það hve mikið þjóðin þarf og
má nota á ári hverju af vinnuafli, gjaldeyri og fjár-
magni svo að tryggt verði:
1) að komið verði upp sem allra fyrst þeim hafn-
armannvirkjum, verstöðvum, vérksmiðjum og orku-
verum, sem nauðsynleg eru framleiðslu lands-
manna.
2) að öll þjóðin geti búið í mannsæmandi íbúðum.
3) að reist verði sjúkrahús, skólar og aðrar op-
inberar byggingar til félagslegra nota svo að mennt-
un og félagslíf megi dafna.
Til framkvæmda á þessu telur þingið nauðsyn
bera til:
1) að komið verði á sameiginlegri yfirstjórn allra
byggingamála landsmanna, er hafi með höndum all-
ar áætlanir vísindarannsóknir, samhæfingar (stand-
ardiseringar) o. fl. er þessi mál varða.
46