Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 50

Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 50
n. 6. þing Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalista- flokksins átelur harðlega framkvæmdir fjárhags- ráðs á sviði byggingamála. Þingið viðurkennir fyllilega þörfina fyrir skömmt- un byggingarefnis, en telur mjög hafa skort á, að sú skömmtun, er fjárhagsráð hefur komið á hafi verið framkvæmd svo að viðunandi geti talizt, þar sem hún að óþörfu með heimskulegri skriffinnsku hefur valdið þeim er að byggingum standa, stór- kostlegum töfum, óþægindum og kostnaði. Sérstak- lega vill þingið leggja áherzlu á, að ekki nái nokk- urri átt, að menn utan Reykjavíkur þurfi að sækja leyfi til hvers konar byggingarframkvæmda til póli- tískrar nefndar í höfuðstað landsins, er takmarkaða þekkingu hefur á staðháttum og byggingarmálum hinna einstöku héraða. Þingið telur, að ekki hafi verið lögð nægileg á- herzla á það að ljúka þeim byggingarframkvæmd- um, er byrjað var á, og sumar langt á veg komnar. Vegna aðgerða fjárhagsráðs liggja stórkostleg verð- mæti ýmis undir skemmdum eða til einskis gagns um ófyrirsjáanlegan tíma, og hefði þó oft verið hægt að halda þessum byggingum áfram án verulegrar gjaldeyrisnotkunar. Þingið vill því leggja sérstaka áherzlu á það, að skömmtunin sé framkvæmd þannig, að hún valdi sem minnstum kostnaði og óþægindum, og að hvert hérað hafi, sem mesta sjálfstjóm um þessi mál, enn- 48

x

Þingtíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingtíðindi
https://timarit.is/publication/1694

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.