Þingtíðindi - 01.12.1947, Síða 55
Bjarnasyni, sem sæti áttu í fyrrverandi ríkisstjórn,
þakkir fyrir hin þýðingarmiklu og glæsilegu störf,
er þeir inntu af hendi í þágu íslenzkrar alþýðu og
þjóðarinnar í heild.
Jafnframt því sem þingið vottar þessum fyrrver-
andi ráðherrum fyllsta traust sitt, fordæmir það
árásir þær, sem þeir og þó einkum Áki Jakobsson
hafa orðið fyrir af hálfu afturhaldsins. Þingið sér í
þessum árásum tilraun til þess að ófrægja í augum
þjóðarinnar þær stórstígu efnahagslegu framfarir,
er urðu í sjávarútveginum undir stjórn Áka Jak-
obssonar sem sjávarútvegsmálaráðherra og sem
þjóðin mun búa lengi að.
Skorar þingið á þjóðina að svara þessum ódrengi-
legu og tilefnislausu árásum með því að fylkja sér
enn fastar um áframhaldandi nýsköpun atvinnu-
veganna og efnahagslegt sjálfstæði Islands.
Ályktun um landheJgismál
Eitt höfuðskilyrði þess, að uunt verði að tryggja
sjálfstæði íslenzku þjóðarinnar, er það, að Islend-
ingum sé tryggt, að fiskimiðunum úti fyrir strönd-
um landsins verði ekki spillt með offiski. Fiskiveið-
ar og fiskiðnaðarframleiðsla verður um langan ald-
ur aðalatvinnuvegur þjóðarinnar, og sú atvinnu-
grein, sem framleiðir megnið af útflutningnum.
Þannig er það vöxtur og viðgangur sjávarútvegsins
53