Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 72
bækur bókaútgáfu flokksins við móttöku, gegn
20% afslætti frá útsöluverði.
4) Flokksdeildirnar komi á fót bókastöðvum á sem
flestum stöðum, og velji hver deild sérstakan
mann til þess að veita þeim forstöðu.
5) Komið verði á fót fræðslunámskeiðum eða les-
hringum allsstaðar, þar sem tök eru á.
6) Komið verði á fót bréfskóla fyrir deildirnar utan
Reykjavíkur til þess að auka þekkingu félaganna
á kenningu sósíalismans.
Samþykktir um flokksgjöld og innheimtu
þeirra
1. Nýir meðlimir skulu greiða inntökugjald kr. 5.00
og fá fyrir það flokksskírteini. Óheimilt er flokks-
félögum (deildum) að lækka þetta gjald, svo og að
taka greiðslu fyrir endurnýjun skírteina. Félögin
fá skírteini með kostnaðarverði. Fyrir iðgjald skal
kvitta með merkjum, sem límd eru á skírteinið.
2. Flokksgjöldin eru ársgjöld og miðast við
tekjuskatt flokksmanna, en skulu innheimt mánað-
arlega með 12 gjalddögum á ári. Gjalddagar eru 1.
dagur hvérs mánaðar og greiðist þá sá tólftungur
gjaldsins, sem fellur á þann mánuð sem er að byrja.
Gjöldin skulu vera stighækkandi og mánaðargreiðsl-
urnar sem hér segir:
70