Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 74
að nauðsynlegt er. Framkvæmdaráði er heimilt að
leyfa einstökum flokksfélögum að fækka gjalddög-
um niður í 4 á ári, enda falli þá þrjár mánaðar-
greiðslur í gjalddaga samtímis. Þau flokksfélög, sem
telja slíkt fyrirkomulag heppilegra á félagssvæði
sínu en mánaðarlegar greiðslur skulu sækja um það
til framkvæmdaráðs, sem veitir félaginu leyfið, ef
meirihluti þess þykir nauðsyn til bera.
3. Félagsstjórnir annast innheimtur og fá til þess
gjaldmerki frá miðstjóm fyrir helming nafnverðs
gegn staðgreiðslu eða póstkröfu. Ný félög fá ókeyp-
is gjaldmerki til eins mánaðar handa stofnendum.
4. Eigi flokksmaður ógreidd flokksgjöld fyrir sex
mánuði skal setja hann á aukaskrá, en strika hann
út af félagaskránni, ef eitt ár er ógreitt.
5. Heimilt er miðstjórn að endurgreiða Æ. F. sinn
hluta af gjaldi flokksmanna, yngri en 27 ára, sem
jafnframt eru meðlimir Æ. F., enda liggi fyrir
sannanir um að þeir hafi greitt flokksgjald sitt
samkvæmt gjaldstiga hans.
Breytingar á flokkslögnm
Við 4. gr. Greinin orðist svo:
Þar sem því verður við komið, skal í hverju kjör-
dæmi stofna eitt eða fleiri sósíalistafélög, eftir stað-
háttum. Séu félögin fleiri en eitt í sama héraði
(kjördæmi), skal vera fulltrúaráð fyrir héraðið.
Fulltrúaráðið kýs sér þriggja manna héraðsstjóm,
72