Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Qupperneq 74
70
þörf jarðvegsins er hægt að bæta með áburði. Áburðurinn er
þýðingarmesta atriðið við alla nývrkju. Jurtirnar þarfnast vissra
næringarefna. Af sumum þessara efna er ætíð nægð í jarðvegi
og lofti. Önnur vantar títt, þau þurfa að koma með áburði. Þessi
efni eru aðallega köfnunarefni, fosfórsýra, kalí og stundum kalk.
Sé nægð af öllum þessum efnum í jarðveginum, svo næringar-
þörf jurtanna sé fullnægt, er hægt að vænta góðrar uppskeru.
Vanti aðeins eitt þessara efna, verður uppskeran rýr. Jarðyrkju-
maðurinn verður því ætíð að sjá fyrir að jurtirnar vanti ekkert
af þeim efnum sem þær þarfnast, ella getur hann eigi vænzt
góðrar uppskeru. Þau áburðarefni, er vér notum, má flokka
þannig: Búpeningsáburð, salernisáburð, sæþörunga, fiskúrgang
o. fl. og tilbúinn áburð.
Búpeningsáburður. í honum eru öll næringarefni sem jurtirn-
ar vantar, ef þvagið tapast eigi, sem er hið verðmætasta. Auk
þessa er í búpeningsáburðinum mikið af lífrænum efnum og
ógnin öll af gerlum, sem oft styður að því að bæta eðlisástand
jarðvegsins. Búpeningsáburður þarf að geymast vel í lagarheld-
um áburðarhúsum, helzt þvag og saur sitt í hvoru lagi. Þá er
áburður er borinn á, þarf að dreifa honum jafnt og blanda með
moldinni. Þetta má gera með herfi eða spaða. Sé áburðinum
dreift á yfirborðið, eins og tíðkast á túnum, tapast efni sem
fara forgörðum. Búpeningsáburðurinn er mismunandi, kraft-
mest er sauðatað, þá hrossatað og síðan kúamykja.
Hversu mikið þarf að bera á? í nýyrkt land þarf að bera á um
7000 kg. af búpeningsáburði á gl., eigi að nota það til erasræktar,
en sé um rófna- eða garðyrkju að ræða, allt að því hálfu meira.
Þetta er talið nægur áburður. Sé vöntun á þessu, þarf að bæta
það upp með tilbúnum áburði. Geymslu áburðarins þarf að
vanda. í þvaginu eru hin verðmætustu og auðleystustu efni,
því skiptir miklu, að þau séu varðveitt vel.
Salernisáburður er saur og þvag manna, magn þess er talið
að meöaltali um 500 kg. fyrir hvern mann árlega, þar af 9/io
þvag. í þessum áburði er talið að vera 6 kg. köfnunarefni, 1,1 kg.
kalí og 1,3 kg. fosfórsýra. Verðmæti þessa áburðar má reikna
eftir verðlagi á tilbúnum áburði. Salernisáburður er hinn verð-
mætasti áburður, er til fellst á heimilunum, þarf því að safna
honum og hirða vel.
Sæþörungar. Af þeim rekur feiknin öll við strendur lands vors.
Jurtanærandi efni í þeim eru næsta lík og í búpeningsáburði,
en þó minna af fosfórsýru. Gott er að leggja sæþörunga í safn-