Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Qupperneq 82
78
TRJÁ- OG RUNNARÆKT.
Frá trjáreitum er nú hægt að fá til gróðursetningar tré og
runna. Við hvert heimili þarf að gróðursetja tré og runna. Þeim
þarf að velja stað, þar sem skýlt er og jarðvegurinn næringar-
ríkur. Gamlir garðar eru hentugir. Þau tré, sem bezt þrífast, eru:
Reynir. Beztur jarðvegur er leirkennd mold, þar sem eigi er
hálent. Hann er þakklátur fyrir áburð. Góðar plöntur til gróður-
setningar eru 30—70 cm. háar.
Birki. Það þarf þurrlendari jarðveg, þrífst hér ágætlega.
Lœvirkjatré. Vex bezt í moldar- og leirjarðvegi. Bezt er að fá
smávaxnar plöntur af því til gróðursetningar.
Runnar. — Ribsber vaxa bezt í leirblandinni mold. Þau má
setja með 70 cm. bili. Berin verða fullþroskuð. Sólber má rækta á
likan hátt og ribsber. Síberískt baunatré, Fjallarósir þrífast hér
vel, ennfremur ýmsar tegundir af spirea og fleiri runnum.
Víðir má æxla á þann hátt, að settar eru niður 20—30 cm.
langar greinar. Þeim er stungið í jörð og þrýst vel að. Upp úr
jörðinni má standa 2—3 cm. sproti, greinin festir síðan rætur
og ber stöngul og blöð. Víðir er sú trjátegund, sem auðveldast er
að rækta.
FRÆGEYMSLA.
Fræ þarf að geymast á þurrum stað og getur þá haldið frjó-
magni sínu í nokkur ár. T. d. er talið að fræ af gulrófum geym-
ist í 5—8 ár, af káltegundum 5—7 ár, af gulrótum 4—5 ár, af
salati 3—4 ár, af korntegundum 2 ár, af grasfræi 2—3 ár.
ILLGRESI.
Það er einna mestum erfiðleikum bundið með jarðyrkju hér
á landi, að landið verður oft og tíðum þakið með illgresi.
Þessar jurtir taka vatn og næringu frá nytjajurtunum og varna
því að sólarljósið vermi jarðveginn. Þetta getur orðið til mikils
tjóns og verður því að verja landið eins vel og mögulegt er fyrir
öllu mögulegu illgresi. Hér skal bent á nokkur einföld atriði.
1. Jarðvegurinn í görðunum þarf að vera hæfilega rakur og vel
boriö á.
2. Það er gott að hafa sáðskipti, láta eigi sömu jurtirnar vaxa
meira en 2—3 ár á sama stað. Undantekning frá þessari reglu
er þó með grastegundirnar.
3. Illgresi má helzt aldrei fella fræ, því þá breiðist það út óð-
fluga.