Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Side 92
88
Tafla um líkamshita dýra o. fl.
líkamshiti æðaslög andardráttur
Hestar 37,5—38,5° C. 30—45 10—16 pr. minútu
Nautpeningur 38,0—39,5° C. 40—75 16—20 pr. mínútu
Sauðfé 38,0—41,0° C. 70—80 10—20 pr. mínútu
Lægri tölurnar gilda fyrir fullorðnar skepnur, hinar hærri
fyrir imgar.
Skýrsla um meðgöngutíma búfjár.
Meðgöngutíminn er talinn að vera fyrir hryssur 340 dagar,
kýr 280 dagar, ær 149 dagar, geitur 152 dagar, gyltur 144 dagar,
kanínur 31 dagur, tíkur 63 dagar, kettir 58 dagar, silfurrefir
52 dagar.
Þetta eru meðaltöl, en frá því getur vikið um nokkra daga.
Byggingar.
Eftir Þóri Baldvinsson.
Flestar byggingar tU sveita eru nú gerðar úr steinsteypu.
Margar þeirra eru reistar fyrir lán, sem veitt eru til mjög margra
ára og verða byggingarnar ásamt jörðunum að vera trygging
fyrir þeim lánum. Af þessum ástæðum gera lánsstofnanir mjög
harðar kröfur um það, að byggingamar séu traustar og ending-
argóðar, og skiptir það mjög miklu máli, að steinsteypan sé úr
traustum efnum, rétt blönduð og rétt með farin. Hirðuleysi í
þessum efnum og smávægilegur sparnaður getur valdið því að
hús, sem hefðu að öðru leyti haft alla möguleika til þess að
verða hin bezta bygging, verða hin mesta ómynd og hrörna langt
um aldur fram, og það getur einnig svift menn möguleikum til
þess að verða byggingarlána eða byggingarstyrkja aðnjótandi.
Steinsteypa.
Hefjið aldrei byggingu neins húss, án þess að hafa aflað yður
fyrst allra nauðsynlegra íslenzkra byggingarefna, svo sem möl
og sand. grjót, þurrt torf o. s. frv. Mölin og sandurinn verða
ætíð að vera aðskilin og síðan blandað saman í réttum hlutföll-
um, án þess er ómögulegt að fá góða steypu.
Gætið þess að steypuefnið sé hreint, að það sé ekki blandað
mold og leir, móbergi, móhellu eða öðrum mjúkum og molan-