Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Síða 98
»4
starfs síns. Búreikningaskrifstofan er starfandi á Hvanneyri og
hefir undirrituðum verið falin forstjóm hennar.
Síðan 1935 hefir á hverju hausti verið haldið búreikninga-
námskeið á Hvanneyri. Eru þau aðallega ætluð þeim, er síðar
vilja taka að sér að leiðbeina öðrum á því sviði. Um 40 þátttak-
endur hafa útskrifazt af námskeiðum þessum, næstum allt
búfræðingar. Hafa margir þeirra stofnað búreikningafélög. Fá
þau styrk til starfsemi sinnar, til þess að launa leiðbeinandi
manni. Nemur styrkurinn 30 kr. á hvern bónda, er skilar búreikn-
ingum til Búreikningaskrifstofunnar og hún viðurkennir sem
styrkhæfa. Einstakir menn fá ekki styrk til búreikningafærslu,
en þeir fá þó ókeypis form, ef þeir skila reikningum sínum upp-
gerðum til búreikningaskrifstofunnar og hún telur þá nothæfa
til þess að vinna úr þeim. Fyrir árið 1936 bárust búreikninga-
skrifstofunni 40 búreikningar, sem unnið var úr og gefin skýrsla
um.
Þýðing búreikninga er margþætt. Þeir gefa bóndanum full-
komið yfirlit um hina hagfræðilegu hlið búskaparins, þeir kenna
honum betur en allt annað að leggja hugsun í starfið og gera
áætlanir fyrir framtíðina, þeir kenna honum reglusemi í við-
skiptum og þeir sýna honum greinilega hvernig margt smátt
gerir eitt stórt. Ekkert getur eins og vel færðir búreikningar
kennt bóndanum, hvernig hann á að fara að því að reka búskap
sinn með sem mestu viti, en sem minnstu striti. Þess vegna eiga
búreikningar að verða fastur liður í búrekstri allra bænda.
ÝMISLEGT.
ÚR HAGSKÝRSLUM ÍSLANDS.
Byggð býli á landinu hafa verið talin: 1703 : 4059; 1801: 4761;
1847 : 5621; 1922: 6146; 1932: 5736, þar af í einkaeign og sjálfs-
ábúð 3390.
Heimilatala á landinu var: 1703: 7537; 1850: 8750; 1901: 12679;
1931: 20877. Meðalstærð heimila var 1930: 5,6 manns.
Heyfengur á landinu hefir verið talinn:
Taða Úthey
hestar 100 kg. hestar 100 kg.
1882 ............................. 181.000 420.000
1900 ............................. 538.000 1.036.000
1937 ............................. 989.000 1.045.000
Uppskera á garðávöxtum hefir verið: