Bændablaðið - 21.07.2022, Page 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
FRÉTTIR
Fleiri nýir sveitarstjórar ráðnir
Á síðustu vikum hafa nokkrir nýir
sveitar- og bæjarstjórar verið
ráðnir til starfa kringum landið.
Geir Sveinsson fékk starf
bæjarstjóra í Hveragerði og tekur
þar við af Aldísi Hafsteinsdóttur
sem hefur stýrt bænum í 16 ár.
Í Mosfellsbæ tekur Regína
Ástvaldsdóttir við bæjarstjórastól
Mosfellsbæjar, en hún var áður
bæjarstjóri á Akranesi og sviðsstjóri
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Í Norðurþingi tekur Katrín
Sigurjónsdóttir, fyrrverandi
sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, við
keflinu af Kristjáni Þór Magnússyni.
Þá mun Iða Marsibil Jónsdóttir
gegna embætti sveitarstjóra
Grímsnes- og Grafningshreppar, en
hún hefur á undanförnum árum alið
manninn í Vesturbyggð og var þar
meðal annars forseti bæjarstjórnar.
Nokkur umræða skapaðist
um ráðningu Björns Bjarka
Þorsteinssonar í starf sveitarstjóra
Dalabyggðar, en hann var ekki
meðal umsækjenda um stöðuna.
Hann hefur verið framkvæmdastjóri
Brákarhlíðar í Borgarnesi.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
var ráðin í starf sveitarstjóra
Húnaþings vestra í byrjun mánaðarins
en er málefnum sveitarfélagsins
nokkuð kunn, enda fyrrum oddviti
sveitarstjórnar. Eyrún Ingibjörg
Sigþórsdóttir verður sveitarstjóri
Dalvíkurbyggðar en hún hefur áður
gegnt starfi sveitarstjóra á Tálknafirði.
Sveitarstjórn Svalbarðs-
strandarhrepps réði Þórunni Sif
Harðardóttur í starf sveitarstjóra
en hún hefur unnið hjá hreppnum
undanfarið ár og áður verið virkur
þátttakandi í sveitarstjórnarmálum
hjá Akureyrarbæ. Stefán Broddi
Guðjónsson tekur við kefli Þórdísar
Sifjar Sigurðardóttur í Borgarbyggð.
Stefán Broddi ólst upp í Borgarnesi
og hefur síðastliðinn áratug starfað
hjá Arion banka.
Þá er Hulda Kristjánsdóttir
nýr sveitarstjóri í Flóahreppi og
tekur þar við starfi af Eydísi Þ.
Indriðadóttur. /ghp
Slátrun á lífrænu sauðfé vandkvæðum bundin:
Sláturhús sjá ekki hag sinn í
að viðhalda lífrænni vottun
Eydís Magnúsdóttir og Rúnar
Máni Gunnarsson í Sölvanesi í
Skagafirði fengu lífræna vottun
fyrir sauðfjárbúið sitt vorið 2021,
eftir að hafa farið í gegnum þriggja
ára aðlögunarferli. Í sömu viku
og vottunarstofan Tún fullgilti
lífrænu vottunina þeirra bárust
fréttir af því að öll sláturhús í
þeirra landshluta myndu ekki
endurnýja sína lífrænu vottun.
Með því varð Sláturhús
Vesturlands í Borgarnesi eina
sláturhúsið á landinu sem hefur
viðhaldið sinni lífrænu vottun frá
Túni. Þetta gerist í kjölfar þess að
breytingar urðu á aðbúnaðarkröfum
til lífræns sauðfjárbúskapar sem varð
til þess að allir sauðfjárbændur, nema
þau í Sölvanesi, misstu sína vottun.
Bæði vegna hás flutningskostnaðar
og þeirrar þversagnar að flytja
lífræna sláturgripi um svo langan
veg fannst þeim óraunhæft að senda
féð í Borgarnes. Þar af leiðandi
slátruðu þau öllum sínum lömbum í
sláturhúsi SAH á Blönduósi haustið
2021 og gátu ekki markaðssett
kjötið sem lífrænt.
„Síðasta haust voru lömbin okkar
lífræn alveg þangað til þau fóru í
sláturhúsið,“ segir Rúnar Máni.
Sláturhúsin þurfa að sækja um
þessa lífrænu vottun á hverju ári og
er það kostnaðarsamt. SAH afurðir
á Blönduósi höfðu endurnýjað sína
vottun þangað til á síðasta ári.
„Okkur fannst skjóta skökku við
að keyra féð okkar í Borgarnes og
koma svo með það til baka aftur til
þess að verka það – en við vinnum
allt kjötið á Skagaströnd og seljum
sjálf,“ segir Rúnar Máni.
„Það er ekki alveg í takti við
þessa lífrænu hugmyndafræði að
lengja flutningsleiðina – meira en
tvöfalda hana,“ bætir Eydís við.
Kostnaður við vottun
lendir á Sölvanesbændum
Rúnar segir að þau séu í viðræðum
við SAH afurðir núna, í samvinnu
við Tún, um að þeir slátri í verktöku
undir þeirra vottun. „Við þurfum þá
persónulega að sjá til þess að Tún
fái aðgang að sláturhúsinu til þess
að skoða aðbúnað – og greiða sjálf
fyrir úttektina.“
Ef það gengur eftir þá fá þau
að nota vottunarmerkið. „Við
erum ekki búin að fá á hreint
hver kostnaðurinn við að votta
sláturhúsið verður. Nú erum við
þegar búin að borga rúmlega 200
þúsund fyrir vottunina hérna heima
og þurfum við að gera það á hverju
ári,“ segir Eydís.
Þegar málin fara að skýrast þá
þurfa þau að meta það hvort þessi
aukakostnaður borgi sig. Rúnar
segist alveg búast við því að það
verði svipað dýrt og að fá vottunina
á bænum og þar með tvöfaldast
vottunarkostnaðurinn
„Þá er orðið býsna mikið sem við
þurfum að leggja á lambakjötið til
þess að þetta borgi sig. Við slátrum
ekki nema 300 lömbum á ári þannig
að það getur orðið snúið að láta
dæmið ganga upp.“
Hvort kemur á undan,
hænan eða eggið?
Eydís bendir á að Ísland sé búið að
skuldbinda sig til til þess að styðja
við lífrænan búskap.
„Það er gert á margan hátt – t.d.
aðlögunarstyrkjum til bænda og
með því fjármagni sem fer til VOR.
Spurningin er þó hvort það þyrfti
ekki eitthvert fjármagn að vera í
boði fyrir sláturhús sem myndu vilja
endurnýja sína lífrænu vottun. Ef
ekki er hægt að slátra lífrænu búfé
þá eru ekki miklar líkur til þess að
fleiri myndu vilja komast í þann
búskap og ef enginn er í lífrænni
ræktun þá munu sláturhúsin ekki
endurnýja sínar vottanir. Þetta
er eins og með eggið og hænuna
– hvort kemur á undan? Það er
mjög skrýtin staða að vera komin
með lífræna vottun heima á bæ,
en vera svo komin út í horn með
sláturmálin.“
Lífrænt býður upp á ýmis
tækifæri
Rúnar segir að lambakjöt selt beint
frá lífrænt vottuðu sauðfjárbúi sé
auðseljanleg vara. Þau verka allt sitt
kjöt sjálf og koma því til neytenda
upp á eigin spýtur.
„Virðisaukinn verður eftir heima
á búinu þar sem við erum ekki að
borga öðrum fyrir að verka kjötið og
koma því á markað. Svo er enginn
sem bannar okkur að segja frá því
að sjálft búið sé vottað en þetta slitni
í sláturhúsinu.“
Eydís telur tækifæri leynast
í lífrænum búskap – sérstaklega
fyrir minni sauðfjárbú sem selja
afurðirnar sínar sjálf. „Þau sem vilja
kaupa okkar vörur geta haft beint
samband við okkur, en við seljum
beint frá býli á haustin – og keyrum
heim til fólks.“
Einnig er hægt að fá kjötið
þeirra á Kaffi Laugalæk, á stöku
bændamörkuðum og með Bíl
smáframleiðenda sem ferðast um
Norðurlandið. /ÁL
Mikil tækifæri geta falist í því fyrir bændur að verka og selja kjöt milliliðalaust. Myndir / Eydís Magnúsdóttir
Eydís Magnúsdóttir og Rúnar Máni Gunnarsson eru með lífrænt sauðfjárbú
í Sölvanesi. Þeim hefur reynst erfitt að koma lömbunum í sláturhús sem eru
lífrænt vottuð.
Fundir með bændum
Bændasamtök Íslands halda
bændafundi um allt land í ágúst.
Rætt verður um stöðu
landbúnaðar, komandi búvöru-
samninga, afkomu, horfur og annað
sem brennur á bændum.
Léttar veitingar verða í boði á
fundunum, en þeir verða sem hér segir:
• 22. ágúst kl. 12 á Landnáms-
setrinu í Borgarnesi
• 22. ágúst kl. 20 í
Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
• 23. ágúst kl. 12
á Hótel Laugarbakka
• 23. ágúst kl. 20 á
Ljósheimum í Skagafirði
• 24. ágúst kl. 12 í Hlíðarbæ
í Eyjafirði
• 24. ágúst kl. 19 í Breiðamýri
í Þingeyjarsveit
• 25. ágúst kl. 20 í Kirkjubæjar-
stofu á Kirkjubæjarklaustri
• 26. ágúst kl. 12 í Goðalandi í
Fljótshlíð
• 26. ágúst kl. 16 á Icelandair
Hótel Flúðum.