Bændablaðið - 21.07.2022, Page 10

Bændablaðið - 21.07.2022, Page 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022 FRÉTTIR Landbúnaðartæki, björgunartæki og búnaður Svansson ehf Sími : 697-4900 ● sala@svansson.is ● www.svansson.is ZipWake er bylting í stöðugleikabúnaði fyrir báta. Búnaðurinn sjálfvirkur og virkar 5 til 10 sinnum hraðar en hefðbundnir flapsar og er með innbyggðum gíró og GPS. Samstarf Nova og Ljósleiðarans: Aðgengi að ljósleiðara aukið Nova og Ljósleiðarinn hafa undirritað samning um nýtingu ljósleiðara á landsvísu, sem mun flýta fyrir uppbyggingu 5G. Uppbyggingunni verður sérstaklega hraðað á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Þá hafa 65 sendar þegar verið settir upp í öllum landshlutum og er áætlað að þeir verði orðnir 200 árið 2024. „5G Nova er nú þegar komið upp í öllum landshlutum og mun eflast hratt á næstu mánuðum þar sem samstarf félaganna gegnir lykilhlutverki. Fleiri og öflugri sendar auka öryggi landsmanna. Nova hefur fjárfest umtalsvert í innviðum sínum á síðustu árum sem hefur gert félaginu kleift að stíga mikilvæg skref sem þessi og halda áfram að vera leiðandi og í fremstu röð í innleiðingu 5G á Íslandi,“ segir Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova. 99,9% þjóðarinnar með aðgengi að ljósleiðara Samstarf Nova og Ljósleiðarans ýtir enn frekar undir það markmið stjórnvalda að fyrir árslok 2025 verði 99,9% þjóðarinnar með aðgengi að ljósleiðara. „Aðgengi heimila, fyrirtækja og stofnana að öruggum fjarskiptum er mikilvægt í nútímasamfélagi. Uppbygging þessara innviða gegnir mikilvægu hlutverki í aukinni samkeppni á fjarskiptamarkaði og ekki síst fyrir heildsölu- og stórnotendur á landsbyggðinni,“ bætir Margrét við. „Við ætlum að leggja ljósleiðara- kerfi, sem getur borið yfir 1.000 þræði um allt land og með því fá allir landsmenn betra aðgengi og öruggari fjarskiptaþjónustu,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. Að sögn hefur Nova verið í fararbroddi í innleiðingu nýjustu tækni og er komið lengst í uppbyggingu 5G á Íslandi. Ljósleiðarinn samdi nýverið við utanríkisráðuneytið um afnot af tveimur af átta ljósleiðaraþráðum í ljósleiðarastreng NATO. Sá strengur liggur hringinn í kringum Ísland og til Vestfjarða. /MHH Erling Freyr Guðmundsson frá Ljósleiðaranum (t.v.), ásamt Margréti Tryggvadóttur og Benedikt Ragnarssyni frá Nova. Mynd/Gunnar Svanberg Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið: Hringrásarhagkerfi Íslands styrkt Umhverfis-, orku- og loftslags- ráðuneytið úthlutaði fyrir skömmu 230 milljónum króna til 22 verkefna sem ætlað er að efla hringrásarhagkerfið á Íslandi. Hæstu styrkir sem veittir eru til einstakra verkefna eru 20 milljónir króna. Hringrásarhagkerfi er flokkað sem hagkerfi þar sem vörur, hlutir og efni halda verðmæti sínu og notagildi eins lengi og mögulegt er. Innan kerfisins er hönnun og framleiðslu vöru þannig háttað að hún endist lengi og auðvelt er að gera við hana og endurvinna og er deiliþjónusta nýtt og neytendur endurnota vörur. Verði vara að úrgangi innan kerfisins tekur við skilvirk flokkun, söfnun og endurvinnsla sem heldur hráefnum í hringrás. Markmið hringrásarkerfisins er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Fjölbreytt verkefni Verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni eru af margvíslegum toga og til marks um mikinn áhuga á hringrásarhagkerfinu um allt land. Heildarstyrkupphæðin var 230 milljónir króna, þar af er 141 milljón veitt vegna nýsköpunarverkefna og 89 milljónir vegna annarra verkefna. Meðal verkefna sem ráðu neytið styrkir sem hluta af hringrásar- hagkerfinu eru: Græn efnavara úr úrgangi og útblæstri, Notkun plastúrgangs í stað kola í kísilmálms- og málmblendiframleiðslu, Endur-vinnsla á sláturúrgangi, Endurnýting byggingarefna á Íslandi og Blöndun kjötmjöls og mykju við áburðardreifingu. Innleiðing hringrásarhagkerfis mikilvæg Í tilkynningu vegna úthlutunar styrkjanna er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að innleiðing hringrásarhagkerfis sé mikilvægur liður í að Ísland nái markmiðum sínum í loftslagsmálum. „Það er því ánægjulegt og veitir tilefni til bjartsýni að skynja hversu mikill áhugi er á þessum málaflokki og verður áhugavert að fylgjast með framþróun þeirra verkefna sem hér hljóta styrk.“ /VH Hringrásarhagkerfi er flokkað sem hagkerfi þar sem vörur, hlutir og efni halda verðmæti sínu og notagildi eins lengi og mögulegt er. Mynd / www.ssne.is Kemur næst út 25. ágúst Landgræðslan vill fá almenning í lið með sér: Sjálfboðaliðar vakta landið Landvöktun – Lykillinn að betra landi er nýtt verkefni sem var hleypt af stokkunum í síðasta mánuði á vegum Landgræðslunnar. Því er ætlað að virkja almenning í því að vakta og safna gögnum um ástand lands. Vonast þau til að öll þau sem hafa áhuga á eða nýta náttúruleg svæði á einn eða annan hátt leggi fram krafta sína í gagnaöflun. Með þessu er stefnt að því að safna nægum gögnum til þess að auka sjálfvirkni og áreiðanleika tölvukerfa sem meta ástand lands út frá gervihnattamyndum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landgræðslunni. Hluti af GróLind Við framkvæmd og skipulagningu verkefnisins er unnið eftir hugmyndafræði lýðvísinda (e. citizen science). Þannig getur almenningur með hjálp snjalltækninnar safnað miklu magni af gögnum með litlum tilkostnaði. Notast er við smáforritið Survey123 til þess að vakta árlega svæði sem er 50 metrar í þvermál. Þátttakendur merkja miðju vöktunarsvæðisins með staur frá Landgræðslunni og fylgja aðferðarfræði sem auðvelt er að læra. Þetta verkefni er hluti af verkefninu GróLind sem Land- græðslan hefur unnið að undanfarin ár. Í því verkefni er notast við fjölbreyttar aðferðir við gagnaöflun til þess að meta ástand lands og eru lýðvísindi ein aðferð af nokkrum. Aðrar aðferðir eru til að mynda varanlegir vöktunarreitir sem starfsfólk Landgræðslunnar kannar á fimm ára fresti og notkun loftmynda ýmist frá gervitunglum eða drónum. Landgræðslan vonast til þess að sem flestir taki þátt í þessari gagnaöflun, en þetta er sérstaklega viðeigandi fyrir bændur, landeigendur, ferðafólk og landverði. Skilyrði er að vöktunarsvæðið sé einsleitt og náttúrulegt. Með einsleitni er átt við að svæðið sé ekki á mörkum tveggja vistgerða. Skógrækt, tún, akrar og græn svæði í byggð falla ekki undir skilgreiningu Landgræðslunnar um náttúruleg svæði. Fylgjast með og hafa áhrif „Þarna er komið tækifæri fyrir fólk til að fylgjast með landinu sínu með skipulögðum hætti, sjá árangur af uppgræðslu, glöggva sig á þróun gróðurfars og hafa bein áhrif á þá þekkingu sem við erum að skapa á hverjum degi,“ segir Jóhann Helgi Stefánsson, umhverfis- og auðlindafræðingur hjá Landgræðslunni sem stjórnar verkefninu. Áhugasömum er bent á að skoða kynningarmyndbönd sem Landgræðslan hefur sett á youtube. com, en þau er hægt að finna með því að nota leitarorðið „landvöktun“. Einnig er hægt að hafa samband við Jóhann Helga sem stýrir verkefninu í síma 866-7119 eða með því að senda póst á netfangið johannhelgi@land. is. /ÁL Jóhann Helgi Stefánsson. Almenningur getur með hjálp snjalltækninnar safnað miklu magni af gögnum án mikils tilkostnaðar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.