Bændablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Nýverið var haldið Landsmót hestamanna í 24. sinn, en það er einn stærsti
íþróttaviðburður landsins.
Hefur mótið verið haldið á fjögurra ára fresti síðan 1950, þegar fyrsta
Landsmótið var haldið á Þingvöllum, en þar voru sýnd yfir hundrað hross,
gæðingar, kynbóta- og kappreiðahross. Mikill fjöldi gesta sækja mótið hvaðanæva
af landinu og þetta fyrsta ár mættu í kringum 10.000 gestir sem þótti gífurleg
aðsókn. Það met var þó slegið árið 2008, er fjöldinn fór upp í 14.000. Nú í ár
litaði rigning og hvassviðri mótið að nokkru leyti en þó var þétt setið í brekkunni
á félagssvæði hestamannafélagsins Geysis á Rangárbökkum. Gestir létu þó
veðurfarið ekki á sig fá heldur nutu
mótsins eftir bestu getu á meðan yngsta
kynslóðin öslaði um í pollunum. /SP
HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ
Austurland & Austfirðir
21.-24. júlí Franskir dagar - Bæjarhátíð á Fáskrúðsfirði
23. júlí Tónlistarhátíðin Bræðslan
24. júlí Flug & Fákar á Egilsstaðaflugvelli milli kl. 12.-16,
boðið er upp á að skoða bæði fornbíla og flugvélar
29. júlí-1. ág. Verslunarmannahelgin Neistaflug - Fjölskylduhátíð í
Neskaupstað, markaður, strandblaksmót, flugeldar o.fl.
12.-14. ág. Flugeldasýning Jökulsárlóni
Norðurland & Norðausturland
22.-24. júlí Mærudagar Húsavíkur
23. júlí Fjölskylduhátíðin Trilludagar á Siglufirði, útsýnis-
siglingar, trilluball og markaðir
29. júlí-1. ág. Síldarævintýri á Siglufirði - fjölskylduhátíð
29. júlí-1. ág. Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir á Akureyri
29. júlí-1. ág. Berjadagar, árleg tónlistarhátíð í Ólafsfirði
26. -28. ág. Akureyrarvaka – Menningarhátíð Akureyrar
Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland
28. júlí-1. ág. Flúðir um Versló - Bæjarhátíð á Flúðum
29. júlí-1. ág. Tónlistarhátíðin Innipúkinn í Reykjavík
29. júlí-1. ág. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum
29. júlí-1. ág. Unglingalandsmót UMFÍ - vímulaus íþrótta- og
fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum
11-18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum
29. júlí-1. ág. Kotmót Hvítasunnukirkjunnar, kristilegt fjölskyldumót
að Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð
2.- 6. ág. Hamingjan við hafið - Fjölskylduhátíð í Þorlákshöfn
4.- 7. ág. Sumar á Selfossi - Bæjarhátíð á Selfossi
6. ág. Grímsævintýri, fjölskylduhátíð í Borg í Grímsnesi
2.- 7. ág. Hátíðin Hinsegin dagar eru í Reykjavík
6. ág. Gleðigangan, hápunktur Hinsegin daga fer fram
12.-14. ág. Töðugjöld - Bæjarhátíð á Hellu á Rangárvöllum
12.-14. ág. Blómstrandi dagar - Bæjarhátíð í Hveragerði
12.-14. ág. Bæjarhátíðin Fjölskyldudagar í Vogum
20. ág. Menningarnótt í Reykjavík - tónleikar, skemmtanir
flugeldasýning o.fl.
22.-28. ág. Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ
26. -28. ág. Í túninu heima – Bæjarhátíð Mosfellsbæjar
26. -28. ág. Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli
Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir
20.-24. júlí Eldur í Húnaþingi - Bæjarhátíð á Hvammstanga
22.-24 júlí Reykholtshátíðin - Tónlistarhátíð sem leggur áherslu
á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld.
29. júlí-1 ág. Norðanpönk í Laugarbakka Vestur-Húnavatnssýslu
29. júlí-1 ág. Sæludagar KFUK&KFUM - vímulaus hátíð við Eyrarvatn
4-6 ág. Act Alone – árleg leiklistarhátíð á Suðureyri.
Á döfinni í júlí & ágúst
(Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur
ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er
ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við.)
Á Landsmóti var nokkuð um
að fyrirtæki kynntu vörur sínar
og var Elmar Guðlaugsson einn
þeirra.
„Sixpensarar eru afar vinsælir
þessa dagana, eiginlega vegna
Peaky Blinders þáttanna sem hafa
verið að slá í gegn – fólk hefur verið
að falla fyrir þeim þar,“ segir Elmar,
hjá fyrirtækinu sixpensarar.is.
„ Auk þess eru sixpensarar mjög
þægileg höfuðföt að bera. Þeir eru til
í mismunandi stærðum og gerðum
hjá okkur og því er málið að finna
hvað passar hverjum og einum.
Hattarnir að sama skapi, sem
er hægt að fá vatnshelda og eru
akkúrat að verða uppseldir hjá mér
núna. Þetta eru ítalskar vörur sem
henta svona vel fyrir íslenskar
aðstæður – og fólk hefur
verið að skipta þessu út fyrir
húfurnar, enda mjög kúl.
Svo eru til
sixpensarar
á krakkana
líka í ýmsum
litum þannig
að öll fjöl-
skyldan getur
verið í þessu,
enda unisex,
bæði hattar og sixpensarar,“
segir Elmar og glottir. „Annars, eins
og áður sagði, eru sixpensararnir
gríðarlega vinsælir og verða komnir
víða núna eftir Landsmótið.“ /SP
Ítalskar vörur sem henta
íslenskum aðstæðum
Elmar Guðlaugsson.
Sixpensararar þykja afar móðins þessa dagana.
Kvenfélagið Hringurinn seldi gestum Landsmóts handprjónaðar ullarvörur í bílförmum. Allur ágóði sölunnar rann beint til Barnaspítala Hringsins. Hringurinn er kvenfélag, stofnað árið 1904. Félagið hefur að markmiði að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna.
Þétt var setið í brekkunni en þröngt mega sáttir sitja.
Þórir Haraldsson, forstjóri Líflands, Sveinbjörn
Eyjólfsson hjá Nautastöðinni og Örn Bergsson,
kenndur við Hof í Öræfum, voru hressir á kantinum.
Starfsmenn Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins stóðu vaktina í markaðstjaldinu.
Gott getur verið að ræða málin í rigningunni.
Ungviðið lét ekki
rigninguna á sig fá
heldur stappaði sem
fastast í pollunum.
Dagarnir 3. júlí–10. júlí 2022:
Mannlíf á Landsmóti
Sumir voru betur búnir en aðrir
fyrir votviðrið á Rangárbökkum.
Tómlegt var á veitinga-
svæðinu er mesta votviðrið
geisaði og fólk mishresst sem
átti leið þar um.
Besti vinur mannsins var sjaldnast
langt undan.
Reynir Þór Jónsson og
Friðrik Már Sigurðarson.