Bændablaðið - 21.07.2022, Qupperneq 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni
skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf
um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar.
Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar
í síma 515 1100 eða pontun@olis.is.
Svo heyskapurinn
gangi smurt
Dieci skotbómulyftarar og liðstýrðir skotbómulyftarar eru gríðarlega öflugir og hannaðir fyrir
mikla notkun við erfiðar aðstæður.
Vinnuaðstaða stjórnenda Dieci skotbómulyftara er hin besta þar sem sýn úr ökumannshúsi er
framúrskarandi og mikil áhersla lögð á öryggi tækjanna. Dieci býður breiða línu tækja, yfir 75
gerðir með lyftigetu allt að 23.000 kg og lyftihæð allt að 30 metrar. Aukabúnaður er fáanlegur
í miklu úrvali í Dieci skotbómulyftara hjá Velti.
Hafðu samband í dag
Hafðu samband við sérfræðinga okkar varðandi Dieci skotbómulyftara með því að hringja í
síma 510 9100 eða sendu okkur fyrirspurn á dieci@veltir.is eða komdu til okkar í kaffi til að
ræða málin í nýrri glæsilegri þjónustumiðstöð okkar að Hádegismóum 8. Hjá okkur starfar
framúrskarandi teymi fagmanna sem búa yfir áratuga reynslu í söluráðgjöf og þjónustu við
atvinnutæki.
Dieci á Íslandi | Hádegismóar 8 | Sími 510 9100 | Salah8@veltir.is
DIECI á Íslandi | VELTIR
Þú færð öfluga DIECI
skotbómulyftara hjá Velti
HECHT Rafmagns-
fjórhjól fyrir 15 ára
og eldri Götuskráð
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
HECHT 1115
jarðvegsþjöppur
117 kg
SERES 3
Næsta sending
ágúst-september
Hin norska Elisabet N Michelson er efnafræðingur og þróunaraðili Bio
Power Protection, auk þess að vera meðeigandi fyrirtækisins Nordic
Horsecare.
Um ræðir línu lífrænna vara sem ætlaðar eru til þess að vinna á þurrki,
exemi eða öðrum kvillum hesta, hvort sem um ræðir á húð eða hári. Hér má
sjá hestasjampó, aloe vera gel, smyrsl og hófaolíu sem bæði gefur hófunum
gljáa auk þess að vinna á eymslum eða sýkingum sem geta myndast. Elisabet
hefur einnig til sölu hálsmen með hesti – úr silfri eða gullhúðað, en hesturinn
er gerður eftir verðlaunafáki vinkvenna hennar. /SP
Anna Rósa hefur starfað sem grasalæknir síðustu
þrjá áratugi og leit við á Landsmótinu.
„Ástæðan fyrir því að ég er hér er sú að andlitskremið
mitt er afar vinsælt hjá útivistarfólki. Svo er það nú að
sárasmyrslið, sem er upphaflega ætlað mannfólki, er
gífurlega mikið notað á hestana og hunda. Fyrir sár,
exem og annað. Auðvitað er í boði að versla meira magn
eða fá afslátt á magninnkaupum ef fólk hefur samband
við mig á netfangið mitt,“ segir Anna Rósa hlæjandi.
„Hér er ég annars að kynna ýmis lækningasmyrsl fyrir
húðina, allt frá bóluhreinsi til áðurnefndra smyrsla.
Ég tíni allar jurtir í vörurnar
mínar sjálf og gaman er að geta
þess að vallhumallinn, sem ég nota
mikið, kemur héðan af svæðinu
ekki langt frá. Ég tíni mjög mikið
af Suðurlandi vegna þess að ég er
nú staðkunnug, er úr Tungunum
og þekki vel til.“ /SP
Anna Rósa
Róbertsdóttir.
Sárasmyrsl og græðikrem eru afar
vinsæl á bæði menn og dýr.
Anna Rósa framleiðir hreinar húðvörur úr íslenskum lækningajurtum og
lífrænum innihaldsefnum.
Grasalækningar nútímans
Lífrænar heilsuvörur fyrir hesta
Það kennir ýmissa grasa hjá efnafræðingnum henni Elisabet og vert að skoða.