Bændablaðið - 21.07.2022, Síða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Í tískuheiminum þetta sumarið má
vart snúa sér í hálfhring án þess
að verða var við stefnu er kallast
Barbiecore og á rætur sínar að
rekja til klæðaburðar leikfangs.
Ekki eru allir hrifnir af þeirri
hugmynd að Barbara Millicent
Roberts, eða plastdúkkan Barbie,
sé í hávegum höfð – en þess verður
þó að gæta að áður en ímynd hennar
er dæmd óhæf mætti líta framhjá
ytra útliti hennar og einblína frekar
á sterkan karakter, áhrif, afrek og
aðra jákvæða punkta.
Alveg síðan Barbie var kynnt
til leiks árið 1959 hefur hún án efa
borið þann titil að vera tímalaus
fyrirmynd. Hún hefur sýnt börnum
að þau geti orðið það sem þau vilja,
án tillits til þess hvernig ytra útlit
þeirra er. Barbie sjálf hefur til dæmis
verið í hlutverki skordýrafræðings,
læknis, prinsessu og sendiherra
UNICEF – auk þess að vera geimfari
áður en Neil Armstrong komst
til tunglsins.
Í heimi þar sem enn er stundum
litið á styrk og kvenleika sem
andstæða eiginleika, sýnir Barbie
fram á að allt er mögulegt. Samkvæmt
framleiðanda hennar, Mattel, fagnar
vörumerkið fjölbreytileikanum á
sem víðtækastan hátt, er fylgjandi
hjónabandi samkynhneigðra og hefur
nú nýverið framleitt transdúkku.
„Við teljum það mikinn heiður
að fagna verðlaunaleikkonunni og
LGBTQ+ réttindabaráttumanninum
Laverne Cox með dúkku,“ sagði
Lisa McKnight, framkvæmdastjóri
og alþjóðlegur yfirmaður Barbie
&Dolls hjá Mattel í viðtali við The
Guardian.
Veitir fyrirtækið einnig framlag
í nafni Cox félagasamtakanna
TransFamilySOS, sem hafa það
hlutverk að þétta samfélag trans-
fjölskyldna á einn eða annan hátt.
Er rétt að kenna börnum að
dæma eftir útlitinu?
Áhugavert er að samfélög víðast
hvar í heiminum virðast ekki eiga
auðvelt með að líta framhjá
óraunhæfum líkamshlut-
föllum Barbie. Dæma hana út frá
útliti hennar, frekar en lífssýn,
afrekum og yfir 200 starfsferlum.
Jú, líkamshlutföll hennar eru ekki
raunhæf, en Barbie er plastdúkka.
Barnaleikföng eru sjaldan ná-
kvæm framsetning á raunveru-
leikanum, ef vel er að gáð. Börn vita
það nema þeim sé bent á annað og
því ekki jákvætt að foreldrar brengli
hugsunarhátt þeirra óumbeðin.
Framleiðendur hafa þó tekið rólega
á móti allri gagnrýni. Barbie hefur
haldið sínu striki og verið áfram
hún sjálf, sem er til fyrirmyndar út
af fyrir sig.
Sýn tískunnar 2022-2023
Hvað viðkemur tískuhræringum
ársins er nú helst uppi á teningnum
vísun í klæðaburð Barbie, sem
hefur gegnum árin verið áberandi
litskrúðugur öllu jöfnu, fjörugur
og oft í bleikari kantinum. Slíkar
áherslur má finna víða á pöllum
tískunnar þessa dagana og þá
undir heitinu Barbiecore – ef til
vill ætlað fólki sem eru „hardcore“
aðdáendur Barbie.
Tískuveldi Valentino sem lauk
haustsýningu sinni fyrir árið 2022 nú
nýverið í Róm, er meðal annars undir
áhrifum Barbiecore og kynnti fuchsia-
bleika kjóla, buxnadress og platform
hæla í stíl undir stjórn hins skapandi
stjórnanda Pierpaolo Piccioli.
Pönkdrottningin og hönnuðurinn
Betsey Johnson er önnur sem hefur
umfaðmað Barbicore og má sjá ýmsa
gleði frá henni nú í ár – en hún hefur
reyndar alltaf leikið sér með rokk og
ról útgáfu þess sem mætti flokkast
undir fjöruga tísku Barbie.
Áhrifavaldar og ýmsar stjörnur
á borð við Paris Hilton, Kim
Kardashian og söngkonuna Nicki
Minaj hafa þó – í gegnum árin – verið
óhræddar við að klæðast alklæðnaði í
anda dúkkunnar margfrægu, í bleiku
frá toppi til táar. Hönnuðir eru þar
ekki undanskildir, t.d. ef litið er á
vorsýningu Moschino árið 2015. Þar
strunsuðu módelin um tískupallana
eins og klippt út úr pöntunarlista
Barbiefatnaðar við mikla gleði
viðstaddra. Má því segja að grunnt
sé á Barbídúkkunni í fólki og skilji
það hver á sinn hátt.
Barbiecore-tískan er greinilega
eitthvað sem gleður hjartað, opnar
fyrir þann möguleika að ekki þurfi
alltaf allt að vera svart og mælir
óhikað með því að taka sér Barbie
til fyrirmyndar.
Hún hefur a.m.k. jákvæða sýn á
sjálfa sig, full lífsgleði og tekur ekki
mark á hvað öðrum finnst. / SP
Barbiecore-tíska með gleðina í fyrirrúmi:
Heilbrigð og jákvæð sýn á líkamann
UMHVERFISMÁL - TÍSKA
FUGLINN: FÝLL
Fýll eða múkki, besti vinur sjómannsins, er stór og gráleitur sjófugl. Hann er einn af algengustu fuglum landsins og af mörgum talinn sá næstalgengasti á eftir lundanum. Þeir eru mjög langlífir og vitað
er til þess að þeir geti orðið a.m.k. 60 ára gamlir. Fýllinn heldur tryggð við makann sinn og parast ævilangt. Þeir verða seint kynþroska og dvelja fyrstu tíu árin á hafi. Fýllinn verpir einu eggi og tekur
útungun tæpa tvo mánuði, eða lengst allra íslenskra fugla. Ungatíminn tekur síðan aðra tæpa tvo mánuði. Fýllinn er úthafsfugl sem unir sér best á sjó. Hann er þungur til gangs á landi, en þar þarf hann
tilhlaup til að komast úr kyrrstöðu og hefja sig til flugs. Jafnvel á sjó getur hann stundum átt í erfiðleikum með að komst á loft. Fuglinn treystir á vindinn til að rífa sig upp úr hafinu en ef það er logn
þarf hann að taka tilhlaup á sjónum, líkt og á landi. Þegar á flug er komið svífur fýllinn með stífum vængjum með fáeinum vængjatökum inn á milli og flakkar þannig víða um norðanvert Atlantshaf og
jafnvel alla leið í Norður-Íshaf. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Í sumar verður enginn
maður með mönnum nema að fjárfesta
í bleikum platformskóm.
Andi Barbie sveif um
palla Moschino á vor-
sýningunni árið 2015.
Hönnuðurinn Betsey Johnson er
ávallt með puttana á púlsinum.
Frá haustsýningu Valentínó á
dögunum. Mynd / Myndskeið
Áhrifavaldurinn Kim Kardashian í
bleikum alklæðnaði. Mynd / Instagram