Fréttablaðið - 22.10.2022, Qupperneq 18
Endalok Cristiano Ronaldo
í treyju Manchester United
virðast nálgast. Þessi magnaði
íþróttamaður tók þá ákvörð-
un á miðvikudag að ganga af
velli áður en leik lauk þegar lið
hans vann sigur á Tott enham.
Hann fær ekki að æfa með
liðinu eða spila gegn Chelsea
um helgina.
hoddi@frettabladid.is
Ronaldo var ónotaður varamaður
þegar Untied vann 2-0 sigur á Tott-
enham á miðvikudagskvöld, ein
besta frammistaða liðsins í mörg
ár og Erik ten Hag, nýr stjóri liðsins,
með byr í seglum. Ronaldo sá til
þess að ekkert yrði rætt um liðið og
frammistöðu þess. Þegar leikurinn
nálgaðist endalok ákvað Ronaldo
að yfirgefa svæðið, gekk til búnings-
klefa og tók dótið sitt. Hann hafði
yfirgefið klefann og komið sér heim
á leið áður en leik lauk. Hollenski
þjálfarinn fékk ekki að njóta sigurs-
ins nema í nokkrar mínútur þegar
hann þurfti að svara fyrir hegðun
Ronaldo.
Ronaldo fagnar 38 ára afmæli sínu
í febrúar, hann vildi fara frá United
í sumar en fann engan vænlegan
áfangastað. Ten Hag hefur svo látið
hann vera í aukahlutverki, eitthvað
sem þessi magnaði íþróttamaður
hefur ekki þurft að venjast áður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn á þessu
tímabili sem Ronaldo er ónotaður
varamaður og nú virðast endalok
hans í rauðu treyjunni nálgast.
Óvirðing við liðsfélagana:
Aron Jóhannsson, framherji Vals,
hefur ýmsa fjöruna sopið í bolt-
anum. Hann segir hegðun Ronaldo
óvirðingu við liðsfélaga hans. „Horf-
andi á þetta utan frá, þá er þetta
alveg galið. Þetta er fyrst og fremst
gríðarleg óvirðing við liðsfélagana.
Þetta var besta frammistaða United
í mörg ár, sannfærandi sigur á Tott-
enham. Það eina sem er talað um er
þessi ákvörðun Ronaldo. Það er fróð-
legt að sjá hvernig Ten Hag byrjar á
að tækla málið og henda honum út
úr hóp í dag. Framhaldið er óráðið
en ljóst er að framtíð Ronaldo hangir
á bláþræði. Hvernig Ten Hag tæklar
þetta setur fordæmi fyrir alla aðra
leikmenn. Ef stjarna liðsins yfirgefur
völlinn og klefann, tekur ekki þátt í
fagnaðarlátum eftir besta leik liðsins
á tímabilinu. Ef Ten Hag tæklar það
ekki almennilega, þá setur það vont
fordæmi,“ segir Aron um stöðu mála.
Hefði átt að fá að fara:
Ronaldo vildi fara frá United í sumar
en United og Ten Hag vildu ekki
hleypa honum burt. „Þeir hljóta
að sjá eftir því að hafa ekki leyft
honum að fara. Það er skrýtið að
Ten Hag hafi ákveðið að halda fast
í hann en nota hann svo þetta lítið.
Það hefði verið hægt að koma í veg
fyrir svona farsa. Þetta er vont fyrir
bæði United og Ronaldo.
Þetta er markahæsti leikmaður
United á síðasta tímabili, við sjáum
Rashford núna fremstan og hann
klikkar á hverju dauðafærinu á
eftir öðru. Ronaldo horfir á það og
pirrast líklega við það. Hann var
einn af tveimur bestu leikmönnum
í heimi í 15 ár. Maður skilur alveg
að það sé erfitt fyrir hann að venj-
ast því að vera ekki aðalmaðurinn.
Það er samt einhver lína sem þú
getur ekki farið yfir og hann fór
yfir hana á miðvikudagskvöld,“
segir Aron. n
Fúll á móti
Þetta er í fyrsta sinn
sem ég get sagt að ég sé
verulega ósáttur við
hann.
Peter Schmeichel
Þetta er lélegt frá
manni sem allir hafa
litið upp til svo lengi
sem einn þann besta í
sögunni.
Micah Richards
Ég held að hann sé
mjög reiður og ég
myndi ekki búast við
neinu öðru.
Rio Ferdinand
Það er því miður ekki
hægt að verja þetta,
þetta er illa gert.
Gary Lineker
18 Íþróttir 22. október 2022 LAUGARDAGURÍþRóttiR Fréttablaðið 22. október 2022 LAUGARDAGUR